Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.1968, Qupperneq 20

Heima er bezt - 01.12.1968, Qupperneq 20
greip ég um húninn hinum megin, opnaði dyrnar og kallaði til ekils míns, Charles. Hann stóð hjá vögnun- um. Mér hafði verið innrætt, að ef og þegar þetta gerð- ist, yrði ég að láta einhvern vita, hvað sem það kostaði. Ég hrópaði af öllum kröftum, og sekúndu áður en hurð- inni var skellt á höfuðið á mér, sá ég Charles snúast á hæli og veifa og taka á sprett í áttina til bílsins. Svo spörkuðu þungir fætur í bak mitt við nýrun og eitt- hvað máimkennt hæfði mig á gagnaugað. Þetta var um klukkan sjö föstudaginn 2. nóvember 1962. Þegar ég raknaði úr rotinu, hafði mér verið troðið ofan á bílgólfið, hendurnar voru járnaðar fyrir aftan bak, fætur hvíldu á baki mínu, og ég var alblóðugur í framan. Bíllinn var á ferð, og þegar hann staðnæmdist nokkrum mínútum síðar, var ég dreginn hálfmeðvit- undarlaus um fangelsishlið. Sóðalegur, borgaralega klæddur maður sat við sóðalegt skrifborð í sóðalegu herbergi, og var lampi með skermi á skrifborðinu. Ég var enn hálfdasaður, en ég sá þó, að þeir höfðu slitið boðangana af jakkanum mínum. Það er í boðöngun- um, sem njósnarar leyna eitri. Maðurinn sat letilega á stólnum og boraði í nefið á sér. „Svo að þú ert herra Veen?“ „Já.“ „Því njósnar þú um okkur?“ „Ég veit ekki, um hvað þú ert að tala.“ „Ha!“ Hann var óhreinn, órakaður og virtist ekki hafa far- ið í rúmið í viku. Hann starði á mig í fulla mínútu. Þá gaf hann skipun, á rússnesku, og ég var færður úr öllum fötum. Síðan skoðuðu þeir hvert líkamsop mitt með vasaljósi og málmkanna. Þeir voru ekki mjúkhend- ir, og sum líkamsopin voru viðkvæmari en önnur. Þetta var upphafið á hinni löngu tilraun þeirra til að lítillækka mig. Þetta var líka það andartak, þegar ég byrjaði að fyrirlíta þá. Ég fyrirleit þá fyrir að dirfast að halda, að þeir gætu lítillækkað mig, og einnig af því, að þeir voru svo sóðalegir og óhreinir. Það var grimmileg fyrirlitning mín, sem bjargaði mér um síðir, miklu frekar en þjálfun mín, frekar en ástin á landi mínu, jafnvel frekar en hugleiðingar um heimili mitt. Á næstu átján mánuðum, nótt og dag, fékk ég þvílíka fyrirlitningu á þessum skrípamyndum mann- kindarinnar, slíka ótrú á, að þeir gætu komið fram vilja sínum við þjóð Rússlands, hvað þá heiminn eða mig, að um síðir var vald þeirra yfir mér algerlega að engu orðið, þótt ég væri enn fangi þeirra. Maðurinn hætti að bora í nefið á sér og sagði mér að klæðast. Verðirnir fjórir í herberginu voru allir vopn- aðir. Ég var fluttur í klefa með tvöföldum dyrum, rimlaglugga, málmrúmi með harðri dýnu og án matar. Ég hlýt að hafa sofnað, því að nóttin leið fljótt, en mér fannst, að ég lægi hræðilega vakandi. Blóðið hafði storknað á höfði mínu og andliti, en ég hafði ekkert til að strjúka það af með nema munnvatn og vasaklút. Ég fann til í höfðinu. Augljóst var, að ég mundi ekki kom- ast úr klefanum, og ég vissi vel, að aldrei mundi gefast tækifæri til flótta, meðan Rússar vildu halda mér. En ég gat ekki enn trúað því, að ég væri fangi, og mundi verða fangi áfram. Ég hugði sífellt, að á hverri stundu mundi dyrunum verða lokið upp, og mér yrði bjargað af sendiherra Breta. Charles hlaut að hafa sagt einhverj- um frá þessu. Því yrði mótmælt opinberlega. Þetta væri allt misskilningur. Ég þekkti mann, sem vann við bandsög. Dag nokk- urn gætti hann sín ekki, og á næsta andartaki horfði hann á hönd sína liggjandi í saginu, meðan blóðið gaus úr stúfnum. Hann sagði, að í minnsta kosti mínútu hefði hann starað á hönd sína og ekkert hafzt að. Hann sá höndina, sína eigin hönd, sem tilheyrði honum og engum öðrum, þar sem hún lá hreyfingarlaus, og hon- um fannst alveg ómögulega að þetta væri raunveruleiki. Þetta hlaut að vera fráleitur og tímabundinn hugar- burðarblossi. Það hefði ekki getað gerzt raunverulega. Þannig leið mér þessa nótt sem fanga Rússa .... SCXJUR t'RÁ UMUONt'M ÖiDUM Séra Benjamin Kmtjámson EYFIRÐINGABÓK Úr bókinni EYFIRÐINGA- BÓK Ettir séra BENJAMÍN KRISTJÁNSSON Á þessum árum bjó Birgir Thorlacíus í lágu húsi á horninu á Nörregade og Frueplads, þar sem seinna var nr. 6 Nörregade. Hafði húsi þessu verið flaustrað upp til bráðabirgða á svæði þar sem brunnið hafði, þegar skotið var á Kaupmannahöfn í enska stríðinu 1807. Ráðgert var að byggja þarna voldugt hús, meðan pró- fessorinn færi í langa námsferð til Suðurlanda. En þessi för dróst ár frá ári af ýmsum ástæðum og þó einkum vegna þess, að hann vildi ekki fara frá móður sinni, sem komin var á grafarbakkann. Ekki var unnt að senda símskeyti eða bregða hart við og koma heim, ef dauðs- fall bar að höndum eins og ferðalögum var þá háttað. Hinn ástúðlegi sonur þakkaði guði fyrir hvert ár, sem hann fékk að hafa móður sína hjá sér og þannig dróst Rómarferðin og lága húsið fékk að standa í friði. Þarna voru nú samt allrýmileg húsakynni búin fal- (Framhald á bls. a425). 424a Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.