Heima er bezt - 01.12.1968, Page 10

Heima er bezt - 01.12.1968, Page 10
SVEINBJÖRN JÓNSSON, BYGGINGAMEISTARI: María frá Krossastöhum Flóuentsdóttir Húx var kona Jóns [Skjöldungs] Guðmundsson- ar, síðast bónda á Krossastöðum í Hörgárdal í Eyjafjarðarsýslu. Eiður bóndi Guðmundsson á Þúfnavöllum ritar um Jón föðurbróður sinn þátt mikinn í niarz og apríl hefti Heima er bezt, 1962. Er þar Maríu getið að nokkru, misjafnlega þó, og að því er kunnugum og frændum finnst — ómaklega. María var ekki aðeins „dugleg, atorkusöm og ágæt- lega verkhög“, heldur einnig ljúfmenni, vel greind og af góðu fólki komin. Hún unni landi og þjóð, og var hverri manneskju raungóð, sem hún kynntist. Og laus var hún við allan hroka og fordild. Frú Steinunn Frímannsdóttir, kona Stefáns Stefáns- sonar, skólameistara sagði mér margt um Maríu, og var mjög vel til hennar eftir að þau hjónin voru í sambýli Maria Flóventsdóttir. á Möðruvöllum með þeim Krossastaðahjónum áður en þau fluttu þangað. Frú Hulda, dóttir Steinunnar og Stefáns skólameist- ara hefur þetta um Maríu að segja: „Þegar móðir mín, Steinunn Frímannsdóttir, flutti að Möðruvöllum haustið 1888, bjuggu þar María og Jón, er síðar gerðu garðinn frægan á Krossastöðum, og voru lengi kennd við þann stað. Tókst brátt vinátta með móð- ur minni og þeim hjónum, sem hélzt meðan ævin ent- ist. Móðir mín kom fljótt auga á, að María var mikil búkona, árrisul og sívinnandi. Hún þótti með afbrigð- um verkhyggin. Skipulagði verkin þannig, að engu var líkara en að hún ynni fleiri en eitt verk samtímis, og voru afköstin eftir því. Móðir mín mat Maríu mikils alla tíð. Sagðist hún margt hafa lært af henni, og hefði það verið sér ómetanlegt að kynnast svo reyndri og góðri húsmóður, þegar hún sjálf var að hefja búskap fjarri ættingjum og vinum. En María leiðbeindi henni og reyndist sem bezti vinur. María var frábærlega þrif- in og bjó til góðan mat. Hvergi fékk ég gómsætara brauð í barnæsku minni en hjá Maríu á Krossastöðum. Sagt var að María hefði ætíð farið fyrst ofan á morgn- ana meðan heilsa leyfði, og skemmtilega sögu heyrði ég sem barn, er vitnar í þá átt. Hinn 23. maí 1888 áttu skólastjórahjónin á Möðruvöllum silfurbrúðkaup. Efnt var til mikilla veizluhalda í tilefni af brúðkaupinu. Heyrði ég að veizlan hefði staðið í þrjá daga samfleytt. Fyrsta daginn sátu veizluna heldri menn frá Akureyri, embættismenn og kaupmenn, og stóð veizlan til mið- nættis. Annan daginn var boðið heldri bændum sveitarinnar og þeirra skylduliði, var þá dansað fram undir morg- un. Þriðja daginn komu svo kotbændur og leiguliðar með sitt heimafólk og skemmti það sér fram eftir kvöldi. Fylgdi það sögunni að þá hefðu fátækustu konurnar fengið „ofnbrauð“ í nestið heim til að gefa börnunum, sem sátu heima. Morguninn eftir að öllum veizlufagn- aði lauk, var Hjaltalín eldsnemma á ferli úti á Möðru- vallahlaði, kyrrð var úti og inni, virtust allir sofa nema María húsfreyja, hún var komin til sinna verka. Mætti Hjaltalín henni á hlaðinu og tók hana tali. Meðal ann- ars spurði hann Maríu hvernig þau hjónin hefðu sofið um nóttina. „Jesús minn almáttugur,“ sagði María, „það er ég viss um að komið hefur tunna upp úr hon- um Jóni mínum í nótt, svo ég sletti mér stundarkorn 414 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.