Heima er bezt - 01.12.1968, Síða 26
En þá er eins og skáldið vakni af draumi, og þá segir
hann:
Ég er fremst við dyr
í forkirkju setztur.
------ Ég er gestur, gestur!
og hugann ósjálfrátt iæt ég líða
til löngu horfinna tíða.
Þá rifjar hann upp minningar sínar frá bernsku-jólun-
um heima.
Með iangþráðu kertin var komið inn, —
hann kveikti á þeim, hann pabbi minn, —
um súðina birti og þilin.
Hann klappaði blítt á kollinn minn
og kyssti brosandi drenginn sinn, —
þá byrjuðu blessuð jólin.
Þá tók hún úr kistli, hún mamma mín,
og mjúklega strauk það, drifhvítt lín
og breiddi á borðið við gluggann.
A rúminu sátum við systkinin,
þar saman við jólakvöldverðinn, —
en kisa skauzt fram í skuggann.
Svo steig ég með kertið mitt stokkinn við
og starði í ljósið við mömmu hlið,
hún var að segja okkur sögur
af fæðingu góða frelsarans,
um fögru stjörnuna og æsku hans,
og frásögnin var svo fögur.
Svo las hann faðir minn lesturinn,
og langþreytti raunasvipurinn
á honum varð hýrri og fegri.
Mér fannst sem birti yfir brúnum hans
við boðskapinn mikla kærleikans,
af hugblíðu hjartanlegri.
Og streyma ég fann um mig friðaryl,
sem fundið hafði ég aldrei til
og sjaldan hef fundið síðan.
Og bjartari og fegri varð baðstofan,
og betur ég aldrei til þess fann,
hve börn eiga gleðidag blíðan.
Já, jólin heima, — látlaus, hjá æskunnar arni
er endurminning ljúfust frá horfinni tíð.
Að verða um jólin aftur í anda að litlu barni
er eina jólagleðin, er léttir dagsins stríð.
Þá er hvílir jólafriður
vorn hug sem lækjarniður.
er hægt um blíðkvöld vaggar í drauma blómi í hlíð.
Hringt! Hringt!
um hvelfingu hljómöldur streyma.
Hringt! Hringt!
Ég hrekk við, — mig er að dreyma.
Ég var á jólunum heima.
Þangað er ljúft minni þrá að sveima.
Þar á ég heima.
3. LITLU-JÓLIN.
Ég sagði í byrjun þessa þáttar, að minningarnar frá
bernskuárunum yrðu því bjartari og fegurri, sem lengra
liði á ævina. — En vitanlega á hver heilbrigður maður
líka góðar minningar frá sínum þroskaárum, þótt sjald-
an leiki um þær minningar jafn mikill ævintýraljómi. —
Annars má fullyrða það að lífshamingjan byggist fyrst
og fremst á vonum og minningum. Vonirnar styrkja
framkvæmdaþrekið, en minningarnar ylja bezt í hinni
hörðu lífsbaráttu.
Beztu minningar mínar frá mínum starfs- og þroska-
árum, eru minningarnar um litlu jólin í skólanum í
Stykkishólmi. Um aldar fjórðungs skeið héldum við
litlu jólin í skólanum, og reyndum við þá, kennararnir
og börnin sameiginlega, að gera litlu jólin hátíðleg. —
Það er ógleymanleg stund, er allur nemenda hópur skól-
ans kom sparibúinn að kvöldlagi, að halda litlu jólin
um leið og þau fengu jólaleyfið. Nálægð jólanna var
sýnileg í svip barnanna. Augun glönsuðu af tilhlökkun.
— Margt var reynt að hafa til skemmtunar, sem minnti
á jólin og gleðiboðskap jólanna, en fyrst og fremst
voru sungnir jólasálmarnir og sagðar jólasögur til lestr-
ar, en ræður eða prédikanir voru ekki eins vel þegnar.
Einu sinni sagði ég á litlu jólunum sögu, sem ég hafði
lært, þegar ég var barn. — En sagan var um lítinn, loð-
inn hvolp og litla stúlku, sem hét Beta. Beta var átta
ára, mesti fjörkálfur, sem öllum þótti vænt um. Hún
átti lítinn, loðinn hvolp, sem hún hafði mikið dálæti á.
Það leið að jólum, og allir fóru að hugsa um að kaupa
jólagjafir. Á Þorláksmessu kom Beta að máli við föður
sinn og spurði, hvort hún mætti ekki kaupa jólagjöf
fyrir Lubba. — Pabbi hennar leyfði henni það, og sagði
henni að velja gjöfina sjálf. Beta þaut strax niður í bæ,
að velja jólagjöfina. Hún kom aftur að vörmu spori og
hafði valið stóran bolta í jólagjöf fyrir Lubba, því að
hún sagði, að Lubbi hefði svo gaman af að leika sér
með bolta. Ekki gat Beta litla setið á sér, er hún kom
heim með jólagjöfina, þótt nú væri aðeins komin Þor-
láksmessa, og kallaði strax í Lubba, til að sýna honum
jólagjöfina. Hún fór með Lubba inn í dagstofuna, og
þar fóru þau að leika sér að boltanum. I stofunni voru
fín húsgögn og alls konar glingur og skrautmunir á
smáborðum og í gluggum. Uti í einu horni stofunnar
stóð, á litlu þrífættu borði, fögur myndastytta úr gipsi
eða brenndum leir, sem húsbóndanum, pabba Betu, var
426 Heima er bezt