Heima er bezt - 01.12.1968, Page 29
Og rjómatertu og rósavönd
ég rauðan gæfi þér.
Svo fengir þú í kaupbæti
einn koss af vörum mér.
Þú átt afmæli í dag o. s. frv.
Og blæinn þíða bið ég um
að bera kveðju þér.
Og beztu heillaóskirnar frá mér.
Og fuglarnir þér flytja allir
fögru ljóðin sín.
Ég kyssi þig svo kæri,
er þú kemur heim til mín.
Þú átt afmæli í dag o. s. frv.
Ég bið þess, að þú heilu og höldnu
hafnar siglir til.
Þá halda upp á daginn þinn ég vil.
Þá rjómatertu og rósavönd
ég rauðan gæfi þér.
Svo færð þú líka í kaupbæti
einn koss af vörum mér.
Þú átt afmæli í dag o. s. frv.
Að lokum kemur hér lítið ljóð, vinsælt, sem heitir:
í nótt. Ljóð og lag er eftir hinn þekkta söngvara Þor-
vald Halldórsson.
í NÓTT.
í nótt, viltu vera hjá mér?
í nótt, — ég skal vaka með þér.
í nótt, út við laufskálalund
má líta vom elskenda fund.
Er blær strýkur vanga þinn blítt,
þú brosir svo fagurt og hlýtt,
og sæluna, er þangað er sótt,
þá sælu við eignumst í nótt.
Harðsótt framboðsferð
Framhald af bls. 419.
og talaði við bændur, einkum þá sem ráku myndarleg
bú, en hirti minna um kotbændur. En hvergi minntist
hann á að hann væri fylgjandi því, að vistarbandið væri
leyst.
Svo bar það við einhverju sinni, er þeir voru staddir
hjá einum stórbóndanum, og hlé varð á samræðum
þeirra sýslumanns og bóndans, að Steingrímur skaut
þeirri spurningu fram, hvernig bændum hér mundi líka
það, ef vistarbandið yrði leyst. Bóndi varð fár við í
fyrstu, en sagði síðan, að það mætti teljast hreint rot-
högg á bændastéttina ef vistarbandið yrði leyst. Þeir
körpuðu svo um þetta um stund, Steingrímur og bónd-
inn og lét hvorugur undan síga, en sýslumaður lagði
ekki orð í belg. En þetta endaði með því, að Steingrím-
ur flutti ofurlítinn ræðustúf, en það var næstum orði
til orðs sama ræðan og sýslumaður flutti yfir honum á
Möðrudalsfjallgarði. Það varð fátt um svör hjá bónd-
anum, og féll talið þar með niður.
Þegar þeir félagar voru á leið til næsta bæjar, var
sýslumaður ærið þungbúinn, þar til hann segir: „Hel-
vítis dóni getið þér verið, Steingrímur. Hér látið þér
flakka allt það sem ég sagði yður í trúnaði á leiðinni
austur.“ Steingrímur svaraði um hæl: „Þér munið, að
ég var ekki á sömu skoðun og þér á leiðinni yfir fjall-
garðinn. En yðar ágæta ræða sannfærði mig um það,
að þér hafið á réttu að standa, svo að ég skipti gjörsam-
lega um skoðun.“ Þessu gat sýslumaður vitanlega ekki
svarað.
Eftir að sýslumaður hafði farið allvíða um kjördæm-
ið, sneri hann aftur heimleiðis, og segir ekkert af þeirri
ferð, nema hvað þeir komust heim til sín með góðu
móti.
A þessum árum var ekki nema einn kjörstaður í
hverju kjördæmi. í Norður-Múlasýslu var jafnan kosið
á Fossvöllum. Sá háttur var á hafður þegar á kjörstað
var komið, að frambjóðendur héldu sínar framboðsræð-
ur, og síðan hófst kosningin.
Að sjálfsögðu hefur Benedikt sýslumaður þurft að
fara austur um vorið, þegar vegir voru orðnir færir.
Hann hefur vitanlega mætt á kjörfundinum og haldið
þar sína framboðsræðu og síðan fylgzt með kosning-
unni. Úrslitin urðu þau, að Þorvarður Kjerúlf, fékk
langflest atkvæði, en hann var lengi fjórðungslæknir í
Austfirðingafjórðungi og maður mjög vinsæll. Næstur
honum varð Benedikt sýslumaður og varð hann annar
þingmaður kjördæmisins. En ekki sat hann á Alþingi
nema eitt kjörtímabil sem þingmaður Norðmýlinga.
Næsta kjörtímabil sat hann á Alþingi sem þingmaður
Eyfirðinga, og að síðustu var hann þingmaður Norður-
Þingeyinga frá 1892 og til dauðadags. Þá hafði hann átt
sæti á Alþingi rétt 40 ár. Hann andaðist um þingtímann
árið 1899.
BRÉFASKIPTI
Sólborg Þorgerður Þorláksdóttir, Svalvogum, Dýrafirði, óskar
eftir bréfaskiptum við pilta á aldrinum 11—12 ára. Æskilegt að
mynd fylgi fyrsta bréfi.
GuÖrún Jóhannesdóttir, Klambraseli, Reykjahverfi, Suður-Þing-
eyjarsýslu, óskar eftir bréfaskiptum við pilta og stúlkur á aldrin-
um 14—16 ára. Mynd fylgi fyrsta bréfi.
Heima er bezt 429