Heima er bezt - 01.12.1968, Blaðsíða 40
■ JL F* COOPBRt
HJARTARBANI
45. „En nú skulum við koma niður að vatninu og at-
huga okkar gang. — Nei, — þakka þér fyrir, — þú á
undan, því að ég er bæði kurteis og þar að auki vara-
samur." — „Unga andlit talar eins og vitringur,“
muldraði Rauðskinninn. „Þú heldur þinni flatbytnu,
— og hver veit nema ég fái einnig mína!“ — 46. „Það
er vandalaust að sjá, að þessa flatbytnu hafa Mingóar
ekki smíðað," sagði Hjartarbani, þar sem þeir stóðu
niðri við vatnið, — „og þessa þarna á ég sjálfur. Svona
til vonar og vara ætla ég að skjóta henni dálítið frá
landi, — mér finnst fara betur um hana þar!“ — 47.
„Minn hvíti vinur kann að haga seglum eftir vindi,"
sagði Rauðskinninn. „Vertu sæll, — ég fer.“ Og með
byssuna undir handleggnum sneri hann aftur til skóg-
ar, en Hjartarbani gekk í átt að flatbytnu sinni. — 48.
Á leiðinni leit hann til baka og mátti ekki seinna
vera, því að Rauðskinninn kraup á kné og miðaði á
hann byssu sinni. Það var svo sem auðséð hvað hann
ætlaði sér.