Heima er bezt - 01.12.1977, Blaðsíða 11

Heima er bezt - 01.12.1977, Blaðsíða 11
KETILL S. GUÐJÓNSSON Tengdamamma leikin í fyrsta sinni Seinni hluta vetrar árið 1923 fór fram sýning í Saurbæjarhreppi í Eyjafirði á leikritinu „Tengdamamma" eftir eyfirsku skáldkonuna Kristínu Sigfúsdóttur, sem þá var húsfreyja á smábýlinu Kálfagerði. Má það undrun valda kvað þessi kona komst langt á rithöfundaferli sinum við þröngan kost, við lítil og léleg húsakynni og uppeldi margra bama. Hafði hún aldrei í skóla farið utan lítilsháttar uppfræðslu fyrir fermingaraldur. Aldrei hafði hún í leikhús komið eða séð uppfærslu á leiksviði á því bezta, sem íslensk leiklist hafði þá upp á að bjóða. Samt tekst henni að skrifa leikrit, sem hefir farið sigurför um ís- lenskar byggðir og talið með því bezta, sem íslenskir leikritahöfundar hafa afrekað á því sviði. Leikflokkur „Tengdamömmu“ 1923. Fremri röð frá vinstri (hlutverk innan sviga): Jón Sigfússon, Helgastöðum (Jón, gamall ráðs- maður). Hólmgeir Pálmason, Kálfagerði (Sveinn, vinnumaður). Höfundur leikritsins, Kristín Sigfúsdóttir, Kálfagerði. Ketill S. Guðjónsson, Eyvindarstöðum (Ari, sonur Bjargará Heiði). MagnúsÁrnason, Litladal (Sr. Guðmundur, prestur í Dal). —Aftari röðfrá vinstri: Sr. Gunnar Benediktsson, Saurbœ, leiðbeinandi. Ólöf Einarsdóttir, Guðrúnarstöðum (Signý, aðkomukona). Sigurbjörg Águstsdóttir, Öxnafellskoti (Þura, öldruð vinnukona). Laufey Guðmundsdóttir, Þormóðsstöðum (Björg, rík ekkja á Heiði). Laufey Kristjánsdóttir, Árgerði (Rósa, fósturdóttir Bjargar). Sigríður Þorsteinsdóttir, Saurbœ (Ásta, kona Ara á Heiði). Valdemar Pálsson, Möðruvöllum, hvíslari. — Ljósm. Guðm. R. Trjámannsson, Akureyri.

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.