Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.1977, Qupperneq 19

Heima er bezt - 01.12.1977, Qupperneq 19
verður það augljóst af máli hans að verðmætustu eignir hennar, dönsku skuldabréfin og Eyrarlandseignin, höfðu ekki verið veðsettar fyrir neins konar skuldum. Enda munu lesendur fá að kynnast því í framhaldi af þess- um þætti að auður maddömunnar var með ólíkindum mikill og reyndar furðulegur þegar miðað er við hina almennu fátækt í landi. Af maddömunni sjálfri er það að segja, þegar hér er komið sögu, að mikil hreyting verður á högum hennar þrátt fyrir það að sýslumaður heyktist á því að gera hana að horn- kerlingu hjá tengdasyninum á Hrafnagili. í næsta þætti, Á Brekkunni bjó einnig fólk, verður meira sagt frá maddömunni og hennar nánustu. Jóhann Jakob Mohr mun einnig koma þar við sögu og ýmislegt annað sem snertir mannlíf á Akureyrar- brekku. 10 Afrit úr úttektabók Gudmannsverslun- ar á Akureyri. Úttekt Madame G. Thórarensen, Öreland 1860, bls. 222— 228, og úttektabók v. sömu 1861, bls. 144—145. — Héraðsskjalasafn Akureyrar og Eyjafjarðarsýslu. 11 Johan Gottfred Havsteen (1804—1884) keypti þessa verslun 1855 af Jóhanni Gudmann kaupmanni. Nánar verður vikið að verslunarkaupum í kaflanum um Brekkuna og íbúa hennar sem birt- ast mun síðar. í þeim efnum verður stuðst við veðmálabækur Eyjafjarðar- sýslu og Akureyrar frá árum 1829— 1881 (ósamstxðar þó) og varðveittar eru hjá bæjarfógetaembættinu á Akur- eyri. 12 Afrit af sendibréfi Björns Jónssonar til Eggerts Briem sýslumanns. Bréfið er hér birt með stafsetningu skrásetjara, en orðalag Björns látið halda sér. Það sem er innan hornklofa er sett á ábyrgð E. E. — Héraðsskjalasafn Skagfirðinga - HSk. 13 Fjárhagsástæður, eiginlega franska, pécuniaire. 14 Stjórnsemi, hér myndugleiki. 15 Skuldabréf. 16 Koma einhverju á hreint, t. d. skuld. 17 Þessi orð Björns benda til þess að ein- hverja greiðslu hafi Christinn fengið frá Hrafnagilshreppi fyrir fæðissölu til niðursetunnar Jóhanns Jacobs Mohr. Þetta er sama upphæð og opinber gögn greina frá að Hrafnagilshreppur greiddi fyrir uppihald Mohrs árið 1860. Annars var Mohr komið fyrir frammi á Grund í Eyjafirði og þar hefur hreppurinn áreiðanlega þurft að greiða eitthvað með honum. Inná þessi framfxrslumál verður nánar vikið að í kaflanum um Jóhann Jacob Mohr hér síðar. 18 Svo ritar Björn þetta lögmannamál. Samkvæmt orðabók Dahls, Kjöben- havn 1885, er það ritað requirere, og merkir að krefjast einhvers í réttarfars- legum tilgangi. 19 Jörð í Kaupangssveit í nágrenni Akur- eyrar. Christinn fékk eignarhald á jörð þessari með kvonfangi sínu. Nánar í öðrum þætti. 20 Skuldareigandi, hér mun átt við kaup- menn Akureyrar. 21 Hér er átt við sýslumann (Stefán Thor- arensen) og amtmann (Jörgen Pétur Hafstein), en þeir voru yfirfjáralend- ur maddömu Geirþrúðar samkv. laga- bókstafnum. 22 Þetta mun hafa verið barnaveiki (dif- teritis). — Finsen héraðslæknir hélt í fyrstu þegar veiki þessi kom upp að um taugaveiki væri að ræða, en síðar komst hann að hinu rétta. Einkabréf til skrásetjara, vegna fyrirspurnar frá honum til Jóns Steffensen prófessors, og vitnað til þess með hans leyfi. 23 Björn mun eiga hér við skilnaðarmál Bjarna Jóhannessonar og Wilhelmínu Lever. Þessi Wilhelmína var önnur kona en umræðir í 2. kafla hér að fram- an, en þær munu hafa verið frænkur. Þessi Wilhelmína var oft nefnd Stór- hóls-Mína til aðgreiningar frá frænku sinni og nöfnu. Hjón þessi skildu og var reitum skipt á milli þeirra með skiptagerð dags. 8. maí 1861. Stórhóls- Mína hafði áður verið gift Stefáni Thorarensen, sem var einn sona Stefáns amtmanns Þórarinssonar og bjó á Espi- hóli í Eyjafirði. Hún og Geirþrúður Thorarensen voru því svilkonur á tímabili. — Skiptagerð Eyjafjarðarsýslu 1861. — Bæjarfógetaembættið á Akur- eyri. 24 Páll Johnsen kaupmaður var systurson- ur Björns Jónssonar eldra, sonur Hildar systur hans og Jakobs Johnsen (Húsa- víkur-Johnsen) kaupmanns. Steindór frá Hlöðum telur sig hafa heyrt að hann hafi verið nefndur Grænlenski-Páll af því hann gekk í grænlenskum klæðum hversdagslega. Þetta gæti bent til þess að hann hafi einhverntíma á ævinni starfað við verslun dana á Græn- landi. Páll Johnsen var merkilegur mað- ur þótt vínhneigður væri. í Norðan- fara 18. sept. 1866 segir svo um fram- kvæmdir hans: „ ... Hann kom hér líka upp mölunarmyllu er hestar sneru, en sem eigi svaraði kostnaði svo að hún lagðist niður aftur. Hann lagði hér fyrstur manna sporveg eftir brvggju sinni og upp að húsum sínum, sem hin- ir kaupmennirnir hafa tekið upp eftir honum hjá sér, svo að nú má á svip- stundu aka á vögnum eftir sporvegum þessum, þá er flytja þarf húsa á millum eður af skipi og á skip....“ — Af þessu má sjá hversu stórhuga Páll var, því ég held að rétt sé með farið að víðasthvar á landinu (Reykjavík þar með) hafi vöruflutningar frá farmskipi og upp í vörugeymsluhús farið fram á herðum karla og kvenna eða með handaflinu einu saman. — Þegar Bjöm skrifar bréf sitt var Páll frændi hans farinn á haus- inn með verslun sína og var það Carl Höephner sem seinna keypti hana. — Lýðir og landshagir. Brot úr verslunar- sögu. II. Þorkell Jóhannesson, AB, Rvík 1965, bís. 278. 25 Jóhann Thorarensen, lyfsali á Akur- eyri 1857—65. Hann var sonur Odds Thorarensen lyfsala og fyrri konu hans, Solveigar Bogadóttur frá Staðarfelli, Fellsströnd, Dalasýslu. Jóhann lyfsali og Stefán sýslumaður Thorarensen voru albræður. Oddur lyfsali Thorar- ensen, fyrsti lyfsali á Akureyri, var enn einn sonur Stefáns amtmanns Þór- arinssonar. Um tíma voru fjórir synir hans starfandi á Akureyri og í næsta nágrenni: Þórarinn, Magnús, Stefán og Oddur. 26 Úr blöðum Jóns Borgfirðings. Finnur Sigmundsson bjó til prentunar. Leiftur hf., Rvík 1946, bls. 127. 27 Úr úttektabók Gudmannsverslunar 1860, bls. 228 (sbr. 10 hér að ofan). 28 Fundargerðabók Akureyrarbæjar. — Fundargerð dags. 31. mars 1866: Tilkall erfingja G. Thorarensen til arfahluta Jóhanns Jacobs Mohr og réttarsætt í þv; máli, bls. 53 og 64. — Héraðsskjala- safn Akureyrar og Eyjafjarðarsýslu. 29 Veðmálabækur Eyjafjarðarsýslu 1863- 1881 (sundurslitnar þó). — Bæjarfógeta embættið á Akureyri. Framliald Heima er bezt 403

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.