Heima er bezt - 01.12.1977, Page 25

Heima er bezt - 01.12.1977, Page 25
Bíldur var gamall, en afbragðs góður forustusauður. Hann var hár vexti og langur, hnýfilhyrndur, stuttullaður jafnan. Hafði Stefán hirt hann marga vetur á Djúpadals- seli, þá er hann var vinnumaður í Djúpadal. Þótti honum vænt um sauðinn, þótt ekki væri hann eigandi hans. Snemma næsta morgun lögðum við þrír af stað, við bræðumir og Pétur. Jón var lasinn og fór hvergi. Mun Stefán oftast eða alltaf hafa verið fremstur. Var ég þrek- lítill og orðinn slæptur, en Pétur mjög silalegur til gangs. Á jafnsléttu var snjórinn í hné og mitt læri fram fyrir Sel. En er við komum fram fyrir Selhreygg, hafði snjóinn drifið nokkuð saman, líklega um nóttina. Voru stórskaflar í sumumn giljum og hengjur víða. Tróðum við eina slóð fram dalinn, allt að Fylhólahvammi. Þar var margt fé í hóp, sem í rétt væri. Gengum við nú allir að hópnum. Þá stökk Stefán í hópinn. Leit þá Bíldur til hans og þóttist ég fullviss, að hann þekkti Stefán. Óð Stefán að Bíld, reiddi upp stafinn og sagði: „Ætlarðu ekki að hafa þig í slóðina, karlinn minn?“ Bíldur stökk þá á féð og ruddi sér braut með miklum krafti, þar til hann náði slóð okkar, en Stefán dreif fjóra eða fimm sauði strax á eftir honum. Kallaði þá Stefán til okkar að reka hópinn allan strax á eftir og var ekki mjúkur í máli, einkum þó við Pétur. Gerðum við þetta, en gekk þó seint að koma fénu upp úr hvamminum, því fáeinar kindur gátu gengið jafnfram. jafnfram. Svo var slóðin djúp, að er við stóðum utan við hana, sást engin kindin. Hægt gekk ferðin heim dalinn, en vannst þó á löngum tíma. En er við komum heim að Miðgili, var hengjan svo brött, að Bíldur stóð upp á endann í skafl- brúninni. Leit hann þá til Stefáns, sem var þar skammt frá. Var Stefán þá snar að fara til hans og lyfta undir rassinn á honum. Hamaðist Stefán þá að troða slóðina í skaflinum, svo að allt féð gat runnið í hana á eftir. Þegar við komum á Selhrygg, þar skammt heimar, stóð Jón bóndi þar á skíðum. Kom hann til okkar, og spurði frétta. Sögðum við honum, hvemig gengið hefði, þá sagði Jón: „Fyrir löngu vissi ég það, Stefán, að þú áttir fáa þiiia líka að röskleika, en það gat mér varla til hugar komið, að þú og þið Bíldur mundu getað afrekað því, sem nú er orðið.“ Rákum við nú féð heim að Selhúsunum. L^t Stefán Bíld þar inn og gaf honum vel. Fórum við svo heim að Djúpadal. Það taldi ég efunarlaust og allir þeir, sem til þekktu, að röskleika Stefáns og harðsækni væri það að þakka, að féð náðist allt heim úr sveltu. Má hann nú sjá sitt fyrra horfið og er nú til einskis fær af elli og blindu líkt og forðum þeir Egill Skallagrímsson og Víga-Glúmur í elli þeirra. Þetta og fleira mun skrifað 1920. Stefán þá á níræðisaldri. XVI A fyrstu búskaparárum mínum í Litladal fór ég vor eitt út á Höfðaströnd að fá Drangeyjarfugl og eitthvað af fisk- meti. Slógust þá í förina þrír aðrir. Voru það þeir Guð- mundur Sveinsso'n, þá til heimilis á Brekkukoti, Vagn bróðir minn, þá á Höskuldsstöðum, og Jón Jónsson bóndi á Þorleifsstöðum, síðar kenndur við Kárastaði í Hegranesi og þá kallaður Jón Kári. Það var um hádegi, sem við lögðum á stað. Veður var hálfkalt, enda var þetta snemma vors, en jörð var þó snjólaus. Vorum við komnir um seinan háttatíma út hjá fjárhúsum frá Miðhúsum í Óslandshlíð. Voru þau niðri undir sjávarbökkum. Hjá þeim eða i námunda við þau voru sveitamenn oft vanir að æja hestum sínum. Sváfu þeir þá oft um stund í húsunum. Ætluðum við nú að gera þetta, en Jón aftók með öllu að leggjast þar til svefns. Kvað hann sér vera kölduhætt. Sagði hann, að við skyld- um fara heim að bænum, mundi hann geta útvegað okkur rúm. Væri þar á bænum stúlka, náskyld honum. Féllust þeir á þetta, Vagn og Guðmundur, en ég var tregur. Hélt ég, að við mundum verða of seinir út á ströndina eða ekki verða til taks, er sjómenn kæmu að úr róðri, þó lét ég tilleiðast. Geneum við nú heim að Miðhúsum. Geta skal bess, að þá bjó þar Konráð Jónsson, síðar bóndi í Bæ á Höfða- strönd. Jón fór strax á baðstofuglugga og guðaði, en eng- inn gegndi. Fór hann þá glugga af glugga, en allt bar það að sama brunni. Uppgafst hann þá alveg, kom til okkar bölvandi og skók sig allan, en við hlógum að honum. Tekið hafði ég eftir því, að hús nokkurt, var yzt af bæjar- húsum, sem sneri dyrum fram á bæjarhlaðið. Kom okkur saman um að láta þar fyrirberast og fórum þar allir inn. Þetta var fjósið. Hrósuðum við happi að fá þau blessuð hlýindi, sem þar voru. Sex básar voru í fjósinu. Voru nautgripir á þeim öllum nema þeim fremsta að norðan- verðu, og var hann lítill. Spilað var á milli básanna með Drangeyjarfleka-görmum. Vagn og Guðmundur fleygðu sér strax í auða básinn og kváðu þar fullþröngt. En við Jon settumst sitt hvorumegin á innstu milligerðirnar og höll- uðum okkur upp að veggjunum. Við Jón fórum að spjalla saman í glensi, því að Jón var kátur. Svo fór Jón að syngja. Var hann raddmaður góður, söng hann meðal annars þetta: „Sæli bróðir, sár er missir þinn,“ o.s.frv. Tóku þá kýmar að standa upp og baula. Bað ég hann hætta þessu, því að kýmar mundu ærast. Töluðum þá enn saman um stund, þar til að smádró af okkur og við sofnuðum. Veit ég ógjörla, hve lengi sá svefn var. En upp hrökk ég við öskur i kúnum og að Jón kallaði: „Blessaður Simsi, hlauptu aftan undir kúna.“ Ég leit upp og sá, að Jón lá flatur í básnum, en kýrin hékk í niðurbandinu, og korraði í henni. Ég hljóp aftan undir kúna, það ég hafði orku til og sagði: „Hafðu þig upp, bannsettur klaufinn." „Ég get það ekki,“ sagði hann, „því að kýrin stendur á úlpunni minni.“ Þó gat hann losað sig eftir litla stund. Var þá milligerð sú, er hann sat á, rústmölvuð. „Þetta fór illa,“ sagði ég, „að þú skyldir brjóta milli- gerðina,“ og leizt mér illa á, ef húsbóndinn sæi þetta. Framhald í næsta blaði. Heima er bezt 409

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.