Heima er bezt - 01.01.1984, Síða 14
og var það sérstök ánægja að fá þau í heimsókn. Auk þess
tókum við á móti fjölda annarra gesta frá íslandi, t.d.
Lúðrasveit Reykjavíkur, leikurum og dönsurum, glímu-
köppum og um haustið Karlakór Reykjavíkur.
Haustið 1975 vorum við hjónin heiðruð ásamt 5 öðrum
Kanadabúum með því að „The Icelandic National
League“ og ríkisstjórn íslands bauð okkur í heimsókn til
íslands. Þetta var gert í viðurkenningarskyni fyrir okkar
þátt í hátíðahöldunum.
Árið 1976 stofnuðum við Marjorie ásamt Stefan og Olla
Stefansson fyrirtæki sem nefnist „Viking Travel", eða
„Víkingaferðir“, og fyrir tilverknað þessa fyrirtækis, sem
nú er fullgild ferðaskrifstofa, hefur mörgum tekist að
heimsækja ísland undanfarin ár. Stefansson-hjónin eru
ekki lengur meðeigendur okkar að fyrirtækinu.
Síðan á árinu 1975 hafa margir hópar sótt okkur heim í
Gimli. Svo fáeinir séu nefndir, þá má minnast á alþingis-
menn, starfsmenn viðskiptaráðuneytisins og landbúnaðar-
ráðuneytisins, lögreglustjóra, skákmeistarann Friðrik
Ólafsson, Hans G. Andersen og frú, ambassadorshjónin frá
Washington í Bandaríkjunum, og marga kóra, — ég ætla
ekki að nefna neinn, því eins er víst að ég gleymi einhverj-
um. Helgi Bergs, bæjarstjóri á Akureyri og frú hafa líka
komið. Skólaárið 1975-76 var líka ung námskona frá Is-
landi búandi hjá okkur. Hún sótti skóla og fullnumaði sig í
enskri tungu. Vera hennar hér gerði bæði okkur og henni
kleift að afla margra nýrra vina.
Árið 1981 var Marjorie valin til að vera Fjallkonan á 100
ára afmæli Gimli. Fjallkonan er venjulega valin úr hópi
þeirra sem hafa lagt eitthvað af mörkum og starfað að
félagsmálum íslendinga hér og er þar að auki af íslenskum
ættum. Síðast en ekki síst verður hún að kunna íslensku.
Marjorie var fyrsta Fjallkonan sem flutti ávarp sitt bæði á
íslensku og ensku. Henni fannst það óhjákvæmilegt til að
halda athygli unga fólksins og þeirra sem ekki skilja ís-
lensku.
Eftir allar ferðir okkar hjónanna til íslands, og með
tengslum við alla ættingjana sem við höfum eignast, er ekki
ofmælt að okkur hafi opnast nýr heimur og við eignast ný
heimkynni. Okkur finnst við vera lánsöm að geta sagt, að
við eigum heima í tveim stórfenglegum löndum, og satt að
segja er stundum vafamál að ákveða, hvar „heima er bezt“.
Tveir leggir
Marjorie Árnason telur til skyldleika við dr. Kristján heitinn Eldjárn, forseta
Islands, og fjölskyldu hans. Eins og sjá má af þessu yfirliti yfir tvo ættleggi frá
sr. Hallgrími Eldjárnssyni á Grenjaðarstað, hafa þau Marjorie og forsetinn fyrr-
verandi verið skyld í 6. og 7. lið sem kallað er:
Sr. Hallgrímur Eldjárnsson
Ættleggurinn til Marjorie Árnason:
Eldjárn Hallgrímsson
Kristín Eldjárnsdóttir
Sigurbjörg Jónsdóttir
Kristín Eldjárnsdóttir (yngri)
Sesselja Jóhannsdóttir
Egilsína Guðlaug Doll
Marjorie Árnason
Ættleggurinn tildr. Kristjáns Eldjárns:
Sr. Þorsteinn Hallgrímsson
Sr. Kristján Þorsteinsson, Tjörn
Sr. Þórarinn Kristjánsson, Vatnsf., Tjörn
Sr. Kristján Eldjárn, Tjörn
Þórarinn Eldjárn, Tjörn
Dr. Kristján Eldjárn
Fjölskyldan með mökum og bama-
bömum 1983:
1. Marjorie, 2. Kristján Theodór, 3.
Kristján Delbaere, 4. Natalie Delba-
ere, 5. Marjorie Delbaere, 6. Ray-
mond Delbaere, 7. Wendy Delbaere,
8. Joseph Hurlburt, 9. Robert
Hurlburt, 10. Kathleen Hurlburt, 11.
Danielle Becker, 12. Kristine Becker,
13. JackBecker.
10 Heima er bezt