Heima er bezt - 01.01.1984, Page 17

Heima er bezt - 01.01.1984, Page 17
Þessi síðasti vetur minn í föðurgarði er mér minnisstæðari en aðrir. Þá byrjaði ég að kenna og stjórna söng, á eigin spýtur og þá gerðust hörmu- legir atburðir, sem seint mun yílr fyrnast. Seinni hluta vetrar báðu menn úr íþróttafélaginu „Magna“, mig að æfa karlakór innan félagsins, sem tókst mjög vel. Þar voru einnig ágætir söngmenn og þegar þeir héldu söng- skemmtun gekk allt vel. Eitt sinn, er við höfðum æfingu á Hlöðum, kom húsfreyjan inn, Aðalheiður Kristjáns- dóttir. Var ég þá að æfa lagið „Bí, bí og blaka“ í útsetningu Sigfúsar Ein- arssonar og söng Sigurður, sem áður var nefndur, sólóna. Átti kórinn að „púa“ undir einsönginn og segi ég í þann mund að Aðalheiður kemur inn: „anda“. Þá hló hún við og sagði: „Þarf nú Sigga líka að segja ykkur hvenær þið þurfið að anda?“_Fannst henni ekki mikið til kunnáttu þeirra koma. Þetta var frábærlega söngelsk kona, á hennar heimili var sungið seint og snemma og hafa flestir af- komenda hennar erft þann eiginleika, því meðal þeirra eru fremstu ein- söngvarar landsins og dóttursonur hennar Kristján Jóhannsson nýlega kosinn tenór ársins sem er ákaflega mikill heiður. Ég var fengin til aðstoðar við jóla- trésskemmtun kvenfélagsins og spil- aði jólasálmana og eitthvað fleira. Þarna var mikil varasemi viðhöfð, því brunaslysið hræðilega í Keflavík var nýlega afstaðið. Stóðu tveir fílefldir karlmenn sitt hvoru megin við tréð, með vatnsfötur hjá sér, ef svo illa vildi til að kviknaði í trénu, því kertaljós voru höfð á því, ekkert rafmagn var þá komið í sveitirnar, en allt bjargað- ist. Mikil snjóalög voru þennan vetur. Minnir mig að það væri í byrjun desember að ungur piltur, Tryggvi Hallgrímsson að nafni, fór snemma morguns á rjúpnaveiðar, en kom ekki heim að kveldi. Var þá hafin leit að honum, en árangurslaust. Næstu daga var hans leitað, af fjölmennu liði, en allt kom fyrir ekki. Var talið að hann hefði farist í snjóflóði, er féll úr fjall- inu ofan við bæinn, þennan sama dag. Stuttu síðar gerði hlákublota og fannst þá Tryggvi heitinn, neðarlega í flóðinu. Var hann jarðsunginn frá Grenivíkurkirkju nokkrum dögum síðar. Hann var aðeins 21 árs að aldri, dugnaðar og röskleikapiltur. En mestu ósköpin dundu yfir þann 14. des. þegar norðan voðaveður gerði að morgni. Féð heima hafði verið lát- ið út um morguninn og var það komið upp í fjallið fyrir ofan Lómatjörn, en þegar veðrið skall á, fóru bræður mínir tveir, Ingólfur, sem þá var orð- inn fullorðinn maður, og Valtýr, 14 ára að aldri, að sækja féð. En svo var veðrið voðalegt, að tveir fjárhundar, sem með þeim voru, þoldu ekki slík ósköp og skriðu heim, uppgefnir. Sögðu bræður mínir, að aldrei hefðu Eiður Árnason frá Pálsgerði, sem varð úti milli Mógils og Breiðabóls í veðrinu 14. des. 1935. þeir komist í aðra eins raun og þá, að koma kindunum heim, líka að þeir hefðu aldrei haft þetta af, ef á móti veðri hefði verið að sækja. Sögðu þeir, að einnig hefði hjálpað, að þeir þekktu hvern stein og barð, sem fyrir þeim varð á leiðinni. Biðum við milli vonar og ótta og ósköp voru allir fegnir, er þeir komu heim og féð var víst og komið í hús. Veðurhæðin var afskapleg og voru allir daufir í dálkinn, er hugsað var til þeirra, sem ef til vill væru á ferðinni í þessu voðaveðri. Þegar lægði og stillti til, svo sást um sveitina var hvergi dökkan díl að sjá, allt slétt yfir að líta, frost og harð- indalegt. Þá var ekki sími á hverjum bæ, eins og nú er, en er fréttirnar bár- ust smátt og smátt milli bæjanna, voru þær svo átakanlegar, að engin orð fá lýst. Góður sveitungi okkar, sem fluttur var til Svalbarðseyrar fyrir nokkru, Eiður Árnason frá Pálsgerði, hafði orðið úti milli bæja þar á ströndinni, nánar tiltekið á milli Breiðabóls og Mógils. Eiginkona hans, Birna Guðnadóttir, fæddi son tveimur sól- arhringum eftir að þetta varð, er lát- inn var heita eftir föður sínum og er búsettur hér á Akureyri, Eiður Eiðs- son. Fleiri börn áttu þau hjón, og get- ur maður ímyndað sér að jólin hafi ekki beinlínis verið sú gleðinnar hátíð sem venjulegt er. Feðgar frá Látrum, Steingrímur Hallgrímsson og Hallur Steingríms- son, fóru á bát inn í Grímsnes þennan morgun, að sækja kind, sem vetrar- maðurinn þeirra átti, en hafði verið þar frá því um haustið. Veðrið þótti ískyggilegt, en þeir létu til leiðast að þiggja kaffi, því ekki var margförult milli bæja á þessum árstíma, en gam- an að hitta góða granna og blanda geði við þá um stund. Lögðu þeir síð- an af stað heimleiðis, en er þeir voru komnir út undir Látralendingu, skall voðaveðrið á og sýndist heimafólkinu báturinn hverfa i hafrótið, ekkert sást meira til þeirra fyrir særoki og dimm- viðri. En er veðrinu slotaði fannst bátur- Heimaerbezt 13

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.