Heima er bezt - 01.01.1984, Side 18

Heima er bezt - 01.01.1984, Side 18
Bœrinn á Látrum á Látraströnd. Heimilisfólkið stendurá hlaðinu. Nú er þar allt í eyði. inn inni á Knarrarnesi á Svalbarðs- strönd, kindin var lifandi, en Stein- grímur, eldri maðurinn, látinn og lagður til, svo sem venja er um lík, en Hallur, yngri maðurinn, fannst ekki. Var þó sýnilegt að hann hefði komist lifandi í land. Var nú leitað, dag eftir dag, stórt skip kom frá Akureyri með fjölda manns og mokuðu þeir, ásamt heimamönnum, sundur snjóinn í brekkunum ofan við Knarrarnesið, en fundu ekki manninn. Var þá leitinni hætt, því menn þóttust þess fullvissir, að hann væri ekki lengur á Iífi. Dauf- leg hafa jólin einnig orðið hjá fólkinu á Látrum í þetta sinn. Er leið að páskum og snjórinn fór að minnka, fannst Hallur heitinn, hátt uppi í brekkunum. Þótti sýnt, að hann hefði ekki vitað, hvar hann var stadd- ur, því ef hann hefði vitað það, var stutt að fara til Garðsvíkur, sem er næsti bær. Var hann jarðsunginn í Grenivík laugardaginn fyrir páska. Urðu þeir feðgar harmdauði öllum íbúum hreppsins, vegna mannkosta þeirra og vinsælda. Áður hafði fjölskylda þessi búið á Skeri, bæ innar á Látraströndinni. Nokkrum árum áður kom þar fyrir það slys, að snjóflóð féll úr fjallinu og tók af fjárhúsin með öllum bústofn- nsr inum. Fáeinar ær sluppu, sem voru í kró, þar sem flóðið náði ekki til, sum- ar þó slasaðar. Einnig sluppu nokkrir gemlingar lifandi, því þeir voru í kofa spölkorn frá slysstaðnum. Eftir þessi miklu áföll fluttist fólkið burtu, Hall- ur heitinn með sína fjölskyldu í Látur vorið eftir, en foreldrar hans nokkrum árum seinna. í millitíðinni áttu þau heima á Jaðri. Þessar upplýsingar hef ég fengið frá dóttur Halls heitins, sem býr í Hrísey, Ósk heitir hún og gift Garðari Sigurpálssyni. Aðra dóttur áttu þau sem Hildur hét, var hún bú- sett í Reykjavík, en er nú látin. Kona Steingríms hét Helga Pétursdóttir, en kona Halls, Anna Sveinsdóttir, látin fyrir fáum árum. Víða urðu slysfarir á landinu í þessum voðaveðri. Tuttugu og fimm manns fórust alls, svo margur hefur átt um sárt að binda, af völdum þessa illveðurs og í hvert sinn sem ég fer um Svalbarðsströndina og sé Knarrar- nesið, þá kemur þessi óttalegi atburð- ur í hug minn, þótt langur sé nú tími liðinn síðan þetta gerðist. Löngum hafa íbúar í þessu harð- býla landi þurft að glíma við kulda og illviðri, margir lotið í lægra haldi fyrir því ofurefli. Fór svo einnig þann 14. des. 1935. 14 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.