Heima er bezt - 01.01.1984, Síða 29

Heima er bezt - 01.01.1984, Síða 29
,,Jón í Möðrudal- var enginn venjulegur maður-já margt sem ekki er svo auðvelt að skilgreina ífrásögn og síst á bók, einkenndihannfráöðrummönnum,ogeráhœttatekinaðfaraaðrœðaumþennanmann . . Mynd: Eðvarð Sigurgeirsson. -Rstudaginn 10. mars héldum við frá Grimsstöðum í átt til Möðrudals á Efrafjalli, og lögðum við upp frá Grímsstöð- um kl. orðin ellefu og náðum í Möðrudal kl. 9 um kvöldið. Leið okkar lá með fjöllum, fram Víðidal, þar sem sam- nefndur bærinn stendur. Og þar er okkur sagt að við höfum þegar gengið 18 km frá Grímsstöðum, og eigum eftir 15 að Möðrudal. Bærinn hér þar sem Þorsteinn Sigurðsson frá Hólsseli býr búi sínu er að falli kominn, en gott var kaffið og kleinurnar sem húsfreyjan, Guðrún Sigurbjörnsdóttir bar okkur. En sporadrjúgt fannst okkur fram Víðidalinn, enda krapsull hér um alla jörð, en lognhriðina sem varað hafði nú um nokkurt skeið, hafði birt upp, og við sáum glöggt fyrir Vegaskarði sem við héldum heita þar, og að Skarðsá sem okkur þótti líklegast að félli fram með fjöll- unum og vestur í Jökulsá, en ekki sáum við skil þessara áa þar sem þær falla báðar saman út undan Dettifossi í sinni súpu tveggja sýsla. Og það þyngist á fótinn hér langt austur um grónar hæðirnar, og þar var okkur af fróðum mönnum tjáð, að verið hefði hof einhvern tíma í fyrndinni, en ekki sáum við þess merki, og langt þætti byggðamönnum að sækja hingað blót í dag. En hér sjáum við aftur á móti votta fyrir tóttum gömlum, sem Möðrudalsmenn kenndu okkur SÍÐARI HLUTI að verið hefðu eitt sinn hundrað sauða hús sem grafið hefði verið hér inn í hól. Löng hefir beitarhúsagangan verið hingað frá Möðrudal, og kindalífið sjálfsagt oft hangið á veikum þræði. Skammt norðan við Víðidal eru sýslumörkin, hvar Norður-Þingeyjarsýslu þrýtur en Norður-Múlasýslan tekur við. Ekki urðum við þessa varir, og ekki er að sjá hér gleggri vindaskil heldur en á milli Þingeyjarsýslanna, sem hvað vera erfitt að góma. Hér heitir Biskupsháls, þar sem talið er að biskupar Hóla- og Skálholtsbiskupsdæmis hafi mætst á sínum yfirreiðum á þeirri tíð, er þessi merki voru að ráðast. Jafnvel hafi sunnan-biskupi verið það nokkurt kappsmál að þoka landamerkjum sínum eilítið til norðvesturs. Það hefir lengi varað þetta seiga þráatog að sunnan um auðinn eða valdið. Ekki sel ég dýrt ýmsan þann fróðleik sem mér hefir áskotnast og fram kemur í þessari frásögn, enda var hann mér í té látinn ódýr. Við þóttumst svo gott sem hafa unnið landið undan kónginum, þegar við losuðum skíðin af okkur á Möðru- dalshlaði þetta kvöld, og ekki höfðum við lengi knúið dyra, þegar Jón Stefánsson bóndi snarast út á hlaðið og bauð okkur velkomna og opnaði okkur leið inn í bæinn. Heima er bezt 25

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.