Heima er bezt - 01.01.1984, Page 36

Heima er bezt - 01.01.1984, Page 36
Gott að fá þetta íslenskað EÐLISFRÆÐI fyrir framhaldsskóla. 2A Aflfræði. Bókaverslun Sigf. Eymundssonar. Síðastliðið ár kom út 1. hefti af eðlisfræði þessari, og nú sér 2. heftið dagsins ljós. Höfundar eru 4sænskir eðlisfræðingar, og 3 íslenskir eðlisfræðikennarar hafa þýtt hana á íslensku. Þar sem bók þessi er einkum ætluð eðlisfræðideildum fram- haldsskólanna, þar sem mikið er kennt í stærðfræði, er þess ekki að vænta að leik- menn í þeim fræðum geri henni skil. En bókin virðist skýrorð og gagnorð og efnið víða tengt daglegu lífi og á nokkrum stöðum sniðið við íslenska staðhætti. Gerir það bókina í senn aðgengilegri og áhugaverðari. Eiga þýðendur þakkir skilið fyrir það framtak sitt að snara bókinni á íslensku, því að alltaf verður það að teljast ókostur að verða að nota kennslubækur á erlendu máli. Eitt þykir mér þó vanta, og það er að í orðaskránni hefðu alþjóðleg (ensk) nöfn verið látin fylgja hinum ís- lensku. Smámyndir úr þjóðlífinu Jón Bjarnason frá Garðsvík: FÓLK, SEM EKKI MA GLEYMAST. Akureyri 1983. Skjaldborg. Hér hefir Jón frá Garðsvík safnað í eitt nokkrum þáttum og viðtölum í bókar- form, sumt áður prentað en annað nýtt. Frásögn hans er hressileg að vanda og nafn bókarinnar vel valið. Þótt ekki sé hér sagt frá nokkrum þeim, sem hæst gnæfa í þjóðfélaginu, eru þau öll, sem frá er sagt fólk, sem ekki má gleyma né lífsbaráttu þess, sigrum þess og ósigrum. Kalla má að allir séu þættirnir smámyndir úr þjóðlífi voru á þessari öld, þræðir í hinni marglitu voð þess. Fjölbreytnin er furðumikil, enda leitað til fólks í mismunandi störfum. Margt er smátt til tínt, og á öðrum stöðum hefði lesandann fýst að frétta meira en þarna er sagt, t.d. af Theodóru á Kambsmýrum, lífsbaráttu hennar og dulskynjunum. Mest er frásagnargleðin í þætti Stefáns Nikó- demussonar, en bestir þykja mér þættirnir um Konuna í hjólastólnum (Kristínu Guðmundsdóttur) og Saga Guðna Þor- steinssonar. Sérstaks eðlis er frásögn Bjama föður Jóns af Fyrirbrigðunum á Grýtubakka 1923. Sú frásögn birtist á sínum tíma í Morgni og vakti mikið umtal, bæði í heimasveit og úti um land. Og enn eru atburðirnir jafntorskildir og þá. En í einu orði sagt eru þessar frásagnir Jóns betur geymdar en gleymdar, og það er meginatriðið. Verðlauna- kverið fsak Harðarson: ÞRIGGJA ORÐA NAFN Rvík 1982. Almenna bókafélagið. Þetta ljóðakver hlaut verðlaun í bók- menntakeppni Almenna bókafélagsins s.l. ár, og hefir hlotið mikið hrós, en ekki höfða ljóð þessi til mín, allt um það þótt þau séu gagnorð, og stíllinn víða þrótt- mikíll. Kvæðin skiptast í þrjá flokka: Villigötur, Afvegir og Vegurinn til Sunnuhlíða. Má vera, að þar sé höfundur að finna sjálfan sig eftir myrkrið og ömurleikann í fyrri þáttunum. Að minnsta kosti benda síðustu ljóðlínurnar í þá átt: Og myrkrið ífólkinu breytist í gegnum tímann: Það þynnist og þynnist uns það verður að LJÓSI OG LJÓSIÐ ÍMANNINUM mun skáka sólinni. Þýðingin er þrekvirki A. D. Salinger: BJARGVÆTTURINN f GRASINU. Rvík 1983. Almenna bókafélagið. Saga þessi, sem Flosi Ólafsson þýðir, kom út fyrir nokkrum árum, og að nú skuli vera efnt til nýrrar útgáfu sýnir, að henni hefir verið vel tekið, og er það raunar sama sagan og í heimalandi hennar Bandaríkj- unum, svo og öðrum þeim löndum, þar sem hún hefir komið út. Hún fjallar um bandarískan ungling, sem hrökklast úr skóla og lendir á hrakhólum. Er lýsing höfundar á tilfinningum og öfgum ungl- ings á gelgjuskeiði í senn raunsæ og óvægin. Og sennilega á sagan mest vin- sældir sínar að þakka því, hversu raunsæ hún er, ekki einungis eins og til hagar í Bandaríkjunum, heldur mun að finna margt hið sama hvar sem er. Hún er hisp- urslaus, kannske svo sumum finnist nóg um. Þýðing Flosa á slangurmáli amerískra unglinga er áreiðanlega þrekvirki. Mikil spenna James M. Cain: PÓSTURINN HRINGIR ALLTAF TVISVAR. Rvík 1983. Bókaklúbbur Almenna bókafélagsins. Það er stórt stökk frá virðulegum kennslubókum yfir ískáldsögu sem þessa. Birtist hún nú í annari útgáfu, en var prentuð hér á Akureyri fyrir löngu síðan. Þetta er ein hinna miklu spennusagna, þar sem allt gerist með leifturhraða að kalla, ástir, æðisgengnar bílferðir, morð, skelf- ingar og hver veit hvað. Hvergi slaknar á spennunni síðu eftir síðu frá upphafi til enda. Sagan er þannig valin bók handa þeim, sem hvíla sig við lestur þess kyns sagna, enda hefir hún notið vinsælda víða um heim og verið kvikmynduð. Þýðandi er Maja Baldvins. Hið nýja stafrofskver Brian Reffin Smith: TÖLVUR. Rvík 1983. örn og örlygur. Svo má heita, að tölvan grípi sífellt meira og meira inn í líf nútímamannsins með hverjum degi, sem líður. Á fáum árum hefir hún breyst úr því að vera vélarbákn stórra stofnana í lítið heimilistæki, sem nota má við flest hin daglegu störf. Þegar svo er komið er tölvan ekki lengur tæki hinna fáu útvöldu, heldur hvers og eins, næstum því í hvaða starfi eða stétt hann er. Af þessu leiðir að kunnátta í meðferð 32 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.