Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1989, Síða 4

Heima er bezt - 01.02.1989, Síða 4
ÖRN INGI: „M félli okkur allur ketill í brók“ Viðtal við Angantý Einarsson, kennara og refaskyttu á Raufarhöfn Þegar ég fór fram á það við Angantý að fá að spjalla við hann um refaveiðar og útilegumannalif hans á Langanes- inu, tók hann því ljúfmannlega en stakk upp á því að við fengjum okkur vænan göngutúr inn á heiði og að viðtalið færi fram á meðan. Ég hrökk hálfvegis við og benti honum á að ég hefði engan skófatnað í það og væri þar að auki fremur tímabundinn. Ég gat ekki betur séð en að Angantýr glotti út í annað við þessi undanbrögð, en lét gott heita og bauð til stofu. — Angantýr, má ég biðja þig svona í upphafi að til- greina ætt þína og uppruna? — Já, já, — það er sjálfsagt mál. Ég er sonur Einars Knstjánssonar rithöfundar frá Hermundarfelli í Þistilfirði og Guðrúnar Kristjánsdóttur konu hans, nú afar mínir og Einar Kristjánsson og Guðrún Kristjánsdóttir sem situr með Ein- ar Guðmundsson. ömmur bjuggu líka í Þistilfirði, einnig langafar mínir og langömmur og ættir mínar æði langt aftur eru nær allar markaðar hér í Þingeyjarsýslum. — Varstu þá í heiminn borinn að Hermundarfelli? — Já, — ég er fæddur að Hermundarfelli 28. apríl 1938, en flutti fjögurra ára í Hagaland, þaðan átta ára til Akur- eyrar. Þar lauk ég síðan stúdentsprófi 1958. Á æskuárum var ég í sveit hér fyrir austan á sumrin og í síld á Raufar- höfn þegar það ævintýri stóð sem hæst. Eftir tveggja ára háskólanám fór ég í kennslu, fyrst á Þórshöfn og síðan á Raufarhöfn, upp frá því hef ég lengstum verið hér fyrir austan. — Nú skulum við snúa okkur að því sem við ætlum helst að ræða um, þ.e.a.s. útivistarlífið, refaveiðina og síðan hugleiðingar út frá því. — Hvar skal byrja? — Nú, ég er grenjaskytta í Sauðaneshreppi á Langanesi, einnig í Raufarhafnarhreppi. Ég byrjaði 1980 þannig að ég Hagaland eins og það var þegar Angantýr fluttist þangað með foreldrum sínum. 40 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.