Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1989, Qupperneq 7

Heima er bezt - 01.02.1989, Qupperneq 7
Auður Ásgrímsdóttir og Hlynur Angantýsson ásamt Auði Tinnu Hlynsdóttur. — Já, — þá er það nú fuglinn sem kemur fyrst upp í hugann, því þarna eru geysileg fuglabjörg og ætli þau séu ekki eitthvað um 20 til 30 km samtals og um 40 til 50 metra há að meðaltali. Það eru engar ýkjur að halda því fram að þau séu bókstaflega þéttsetin af fugli frá brún og niður úr. — Hvaða fugl er mest áberandi? — Það er skeglan — hún er langmest áberandi, ekki síst vegna þess að hún hefur ákaflega undarlega hætti, þar sem hún flýgur látlaust dag og nótt yfir nesið þar sem það er styttst yfir milli Skoruvíkur og Skála, bókstaflega látlausar hringferðir. — Heldurðu að fugli fari fjölgandi þarna á nesinu? — Nú skal ég ekki segja, það hefur verið talsvert mikil eggjataka á þeim stöðum í bjarginu þar sem svona allra best er að komast að. Ég er ekki viss um að svartfugli fjölgi þarna, en skeglunni fjölgar samt ábyggilega og fýllinn er nú meira að segja farinn að verpa lengst inni í landi, en sam- kvæmt kenningunni átti hann ekki að geta þrifist nema sjá til hafs. — Hvað með selinn? — Það er slæðingur af sel þarna, en örugglega minna af bæði sel og hval en áður var. — Eru fiskimiðin þarna í kringum nesið jafn fengsæl og áður? — Það held ég að megi segja, — bátar sækja þarna mjög út af Fontinum. — Þegar þú liggur við svona lengi í senn, 2 til 3 vikur í einu, — er þá ekki svolítið yfirþyrmandi allt þetta fuglagarg og náttúrugnauð þar sem þetta svæði verður að teljast frekar vindasamt? — Nei, nei, — aldeilis ekki, þetta virkar ákaflega þægi- lega á mann, — mér finnst ég raunar vera bara einn skarf- urinn í hópnum. — Svo ertu líka alltaf að ganga fram hjá eyðibýlum og fornum mannvistarleifum af ýmsu tagi. Hvað viltu segja um það? — Já, — þá koma nú Skálar sérstaklega í huga, sem var á sínum tíma mjög svo blómlegt pláss með mikilli útgerð- ardrift. Þar hafa átt heima töluvert á annað hundrað manns allt árið þegar mest var en yfir sumartímann hækkaði sú tala talsvert, enda voru Færeyingar fastir kaupendur á ís og beitu. Það er talið að þeir á Skálum hafi staðið framarlega í atvinnuþróun þegar staðurinn var í sem mestum uppgangi. En þegar ég geng um þennan eyðistað þá orkar það einna mest á mig að ganga um grafreitinn sem liggur spottakorn frá staðnum alveg fram á bjargbrún, en þar rétt hjá einmitt er eitt grenið sem ég verð að vitja um á hverju vori. Þarna er þó það fólk sem eftir er, en ég hef ekki orðið var við nein óþægindi af þess völdum, enda sjálfsagt mesta prýðisfólk. — Þú hefur þá ekki rekist á Skáladrauginn? — Nei, sem betur fer. — Kanntu af honum að segja? — Já, aðeins, — ég get að minnsta kosti sagt þér hvernig hann var í vextinum, því þetta var nú eiginlega ekki nema neðri hluti af manni og sjálfsagt heldur óyndislegur sel- skapur fyrir þá sem þóttust nú sjá hann. Og ég hef heyrt að menn hafi verið svo myrkfælnir þarna að það tók engu tali, mig skal sosum ekki undra það, okkur myndi sjálfsagt falla allur ketill í brók(!) ef við mættum kauða. — Hefur vera þin þarna á nesinu eftir þessi níu ár breytt þér eitthvað? — Jú, jú, — þetta hefur breytt mér, — ekki er því að neita. — Áður en þú svarar því betur, telur þú þig skilja hina fornu útilegumenn eitthvað betur eftir þessa reynslu? — Ég er auðvitað líka útilegumaður svona í nútímaleg- um skilningi þess orðs, en með íslensku útilegumenn fyrri tíma, sem þurftu að bjarga sér allt árið um kring og þola vosbúð, kulda og hungur, það er mér nánast allt að því óskiljanlegt hvernig það gat gengið, og þarf nú ekki úti- legumenn til. Því mér finnst það kraftaverk hvernig fólk gat yfirleitt þrifist í þessu landi hér á öldum áður. Angantýr ásamt tengdamóður sinni, Helgu Margréti Haraldsdóttur. Heima er bezt 43

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.