Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1989, Blaðsíða 27

Heima er bezt - 01.02.1989, Blaðsíða 27
 Ólafsfjörður. XLVII „Þú eyðir bara engu þarna ytra!“ Ég fór út í Ólafsfjörð með flóabátnum þann 12. maí og var þar í hálfan mánuð til þess að kynna mér aðstæður. Kaupfélagið átti þar hús, sem það hafði keypt af Gunn- laugi nokkrum Jónssyni, sem hafði rekið þar verslun. Búðin var á neðri hæð og kjallari góður, en á efri hæð var rúmgóð íbúð. Hún var þá leigð Sigurði Magnússyni lækni til fimm ára. Það var hreppurinn, sem hafði tekið íbúðina á leigu fyrir lækninn. Hafði hann komið austan af Seyðisfirði í sumarbyrjun 1928 og var þá ráðinn til Ólafsfjarðar með styrk úr sveitarsjóði og nokkru síðar jafnframt úr ríkissjóði. Héraðslæknir varð Sigurður ekki fyrr en 1932. En nú bjó hann sem sagt þarna uppi yfir búðinni og ekkert við þvi að gera, því leigusamninginn var ekki hægt að rjúfa. Á neðri hæð voru auk verslunarinnar tvö herbergi og eldhús. Það var íbúðin, sem við áttum að fá. f henni bjuggu séra Ing- ólfur Þorvaldsson og kona hans, frú Anna Nordal, og voru þau þar allt þar til við fluttumst út eftir. En um þær mundir var verið að byggja prestssetur í Ólaísfirði. Við séra Ing- ólfur þekktumst vel, enda höfðum við verið bekkjarbræður í Gagnfræðaskólanum á Akureyri. Hann var af Árskógs- ströndinni, en Þorvaldur faðir hans var bóndi á Krossum og föðurafi hans, sem einnig hét Þorvaldur, var móður- bróðir séra Stefáns Kristinssonar á Völlum í Svarfaðardai. Séra Ingólfur hafði byrjað prestskap austur í Þingeyjar- sýslu, að Þóroddsstað í Kinn, en fékk Kvíabekk i Ólafsfirði árið 1924. Hann hafði því þjónað þar í sex ár, þegar hér var komið sögu. Nú var byggingu prestsseturs í Ólafsfjarðar- kauptúni svo langt komið, að þau hjónin héldu til í barna- skólanum eitthvað fram eftir sumri, en gátu þá sest að í nýja húsinu. En við Eva fluttumst inn í þessa litlu íbúð til hliðar við verslunina. Inn af búðinni var dálítil stofa, svona um það bil þrír metrar á kant, og átti að heita kontór fyrir útibússtjórann. Úr honum var svo innangengt í íbúðina. Ég minnist þess, að ég spurði Vilhjálm Þór einhverju sinni að því í síma, hvort ég mætti ekki leigja mér hentugri íbúð. Þá stóð mér til boða húsnæði, sem átti að kosta 80 krónur á mánuði. Nei, nei, það kom ekki til nokkurra mála, enda voru þá kreppuár. Þá sagði hann meðal annars, og hafði ég óneitanlega nokkurt gaman að því: — Já, heyrðu, þú eyðir bara engu þarna ytra. Það er ekkert bíó og raunar ekki neitt, sem hægt er að eyða peningum í. — Svo ég spurði hann þá, hvort hann ætlaði að refsa mérfyrir það, að mér væri bókstaflega fyrirmunað að eyða einhverjum fjár- munum. Síðan bætti ég við, að eitt af því, sem hefði dregið okkur út eftir, hefði verið að þar fengjum við fría íbúð. Það væri raunar eina kauphækkunin, sem ég hefði fengið við þessi stöðuskipti. En þessi íbúð, sem við værum nú komin í, myndi aldrei vera leigð fyrir meira en 55 krónur á Akureyri. Það var nú sama, að ekki var hægt að fá þessu breytt. Svo tók ég þá sjálfur hina íbúðina á leigu og borgaði fyrir hana 80 krónur, en leigði þessa á 55, og meira var ekki um það rætt né að því fundið. Hins vegar lagði ég það niður fyrir honum, þegar hann var að tala um það, að okkur væri fyrirmunað að eyða nokkru, að það væri ekki rétt ályktað, þvi mjólkurlítrinn kostaði 45 aura í Ólafsfirði, en 25 aura á Akureyri. — Var þá mjólkurframleiðslan öll í Ólafsfirði? -— Já, og bændurnir sáu sjálfir um það, að koma henni til kaupenda. — Hvað heldurðu að hafi verið margt fólk í Ólafsfirði um þetta leyti? — í þorpinu hafa þá verið nær 300 manns eða líkt og nú er í Hrísey. En þá voru flestar jarðir byggðar frammi í sveitinni og mikill búskapur. Heimaerbezt 63

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.