Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1989, Blaðsíða 14

Heima er bezt - 01.02.1989, Blaðsíða 14
KARI TRYGGVASON: Kvæðið um krumma Dökkum vængjum krummi klýfur kafaldsbyl um vetrarnótt. Allt í kring er auðn og myrkur, allt í kring er dauðahljótt. Dökkum vængjum krummi klýfur kafaldsbyl um myrka nótt. Orkuvana einstæðingur ásér hvergi griðastað, þegar lífsins loka-myrkur læsist hjartarótum að. Kalt er úti í kafaldsbyljum, - krummi gamli reynir það. Fennir yfir fell og ása, flugið daprast gömlum væng. Krummi gamli kuldaloppinn kastar sérámjallarsæng. - Fennir yfir fell og ása, felur dökkan, stirðan væng. Veiðibjöllumar Yfir vorbláum vötnum veiðibjöllurnar hlakka. Fögur er fannhvít bringa, fönguieg kápan blakka. Yfirþeim oftþó hvílir annarra þungi stuggur. Fylgist því, með í förum flóttahugur og uggur. Geðríkir grimmdar seggir gína við hverri veiði. Lömbin litlu þær hremma, lepjaupp brönduseiði, ungum og eggjum ræna. Yfir þeim flestir kvarta. Fallega sniðnum fötum fylgir oft vesalt hjarta. Myndirgerði Barbara W. Árnason. 50 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.