Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1989, Qupperneq 31

Heima er bezt - 01.02.1989, Qupperneq 31
bæði hafa gert sér það ljóst að lítil von yrði til þess, að þau fengju að njótast. Því reyndu þau í lengstu lög að leyna sambandi sínu. en það fór sem oft vill verða, að oft er í holti heyrandi nær. Foreldrar piltsins fengu grun um samband þeirra, og þá var ekki að sökum að spyrja, þar sem í hlut áttu sveit- arómagi og ríkur bóndasonur, einkaerfingi. Stéttaskipt- ingin tröllreið hugsun fólks á þessum árum. Og nú tóku foreldrar piltsins það til bragðs, að láta vakta elskendurna til að koma í veg fyrir að þau fengju stund ein saman. En aldrei er það þó svo á mannmörgum heimilum að ekki finnist einhverjir, sem hafi samúð með þeim minni- máttar. Til var fólk, sem hjálpaði þeim að hittast, jafnvel þó þeir sömu ættu vísa reiði og kannski brottvikningu af heimilinu, sem oft var nú mjög alvarlegt mál. Því mik- ilsmegandi húsbændur gátu haft mikil áhrif í fámennri sveit sem þessari. Að lokum sáu foreldrar piltsins ekki annað til ráða, en senda son sinn í burtu. En ástin lætur ekki fjötra sig. Eftir mánuð kom pilturinn aftur heim. Tolldi ekki annars staðar. En á meðan höfðu foreldrar hans bruggað launráð, er átti eftir að verða örlagaríkt fyrir ungu elsk- endurna og raunar foreldrana líka. Þau höfðu fengið fólk á bænum til að ljúga því upp, að stúlkan hefði verið piltinum ótrú á meðan hann var í burtu. Hún hefði legið með fjósamanninum. Pilturinn varð afar reiður, og í stað þess að leita eftir sannleikanum í málinu, já, spyrja stúlkuna sjálfa eða það af heimilisfólk- inu, sem hann vissi að voru vinir þeirra, þá fór hann til stúlkunnar og jós yfir hana skömmum, sagði að hún hefði verið sér ótrú, já, kallaði hana hórkonu og hrakyrti hana. Stúlkan, sem átt hafði sér einskis ills von, tók þessi rakalausu ósannindi svo nærri sér, að hún spratt á fætur og hljóp út í stórhríðina og hvarf mönnum sjónum út í svartnættið. Þetta var á aðventu. Þrem mánuðum síðar fannst hún helfrosin hér undir stóra steininum í hvamminum. En pilturinn hengdi sig sama daginn. Hún hafði verið í blárri kápu og síðan hefur hvammurinn verið nefndur Blákonuhvammur. Og hér er sagt að hún sjáist enn. Við höfðum tyllt okkur á stóra steininn uppi á melkoll- inum. Það hafði lygnt. Fjallablærinn var hættur að leika um gullna lokka Mjallar. Hún hallaði sér að brjósti mér á meðan á frásögn minni stóð, en nú reis hún snöggt á fætur og mér sýndist, sem eldur brynni úr augum hennar. Eg varð hálf smeykur. Eg sá að dökk ský höfðu myndast á norðurloftinu. Lík- lega kólnaði með kvöldinu. Hún hálf hrópaði orðin: Helvítis raggeit og mannleysa hefurhann verið! Að... hann... - Við skulum ekki gerast dómarar, síst þeirra sem horfnir eru héðan af jörðu. Þeir hafa trúlega fengið sinn dóm og hafa ekki fals og lygi oftast haft betur í fang- brögðum við sannleikann. Jafnvel enn í dag. - Hefðir þú trúað svona á mig? Rödd hennar titrar og hún er mjög æst. Eg þegi. Eg get ekkert sagt, aðeins þrýst henni fast að mér, of fast, svo hún nær varla andanum. Mér finnst lygin vera að læðast bak við steininn, og ef ég sleppi Mjöll, þá, æ, fyrirgefðu. Snörp vindhviða af norðri fer að okkur. Ég skelf og þó er mér funheitt. Mjöll skelfur líka, jafnvel meira en ég. Og ég fer höndum um hana, grófum höndum. Hún kippist dálítið við. En hún skilur ætlan mína og hverfur til mín. Er jafnvel ákveðnari en ég. I því heyri ég vélardrunur. Ég hef alltaf verið mjög heillaður, er ég heyri þennan hjartslátt nýja tímans. Mér finnst sem hann boði alltaf stórkostlegt ævintýri. En nú bölvaði ég í huganum. Stundin var glötuð. Myndi hún nokkurn tímann koma aftur? En mig grunaði þó ekki, að þetta glataða tækifæri ætti eftir að reynast okkur jafn örlagaríkt og það átti eftir að verða. Ef við hefðum aðeins fengið svolítið lengri tíma, þá hefði allt ef til vill orðið öðruvísi en raunin varð á. Stór lóuhópur flýgur yfir. Þær hefja nú ferð til fjarlægra landa. Mjöll smeygir sér úr faðmi mínum. - Þetta er frændi. Hann hefur verið að horfa eftir rjúpu. Og... hann ætlar að taka mig með sér suður. Vertu sæll, vinur minn. Og hún hverfur snöggvast til mín aftur, kyssir mig beint á munninn, rétt eins og við séum að kveðjast í síðasta sinn. Grætur, svo er hún farin og ég sé hvar hún gengur fjaðurmögnuðum skrefum upp hvamminn, lítur aldrei til baka. Ég rís upp af steininum, mjög stirður. Ég lít í áttina til Snæfells. Það er alhvítt og nú hefir fölnað alveg niður í mitt Hafurfell. Það hefur hvesst af norðri, og ég tek eftir grýlukertum í lækjarbakkanum. Sumarið er á förum og vetur á næstu grösum. II. kafli Vetur Ég ræddi svo mikið um þá árstíð í þættinum um vetrar- kvíðann og get fullvissað þig um það, að veturinn er lengsti og leiðinlegasti árstíminn svo ekki sé fastara að orði kveðið. Og ef þú ert í vafa um, að ég fari með rétt mál, þar sem þú varst svo ungur, er þú fórst héðan, þá skalt þú koma hingað niður á jörðina aftur og búa í einn vetur og setja of marga gripi á of lítil hey. Koma svo í húsin á útmánuðum, heyra sultarjarmið í blessuðum sauðkindunum, sem ekki hafa fengið fylli sína í langan tíma. Sjá hvað þær eru orðnar kviðdregnar, ullin þurr og úfin og horglýja komin í augun. Þá trúi ég ekki öðru en þú sannfærist um að ég er að segja sannleikann. Það reynir á sálarþrek manns á slíkum stundum. Og sjálfs- ásökunin er sárust allra rauna. Heima er bezt 67

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.