Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1989, Side 5

Heima er bezt - 01.02.1989, Side 5
Asgrímur Hólm Kristjánsson við grenjaleit. Angantýr og Auður Asgrímsdóttur ásamt dótturbörnunum Ein- ari og Þórhöllu. tók að mér að hjálpa tengdaföður mínum en hann hafði þá verið einn við veiðarnar í 17 sumur. — Var það ekki heldur óvenjulegt? — Jú, örugglega, — mér skilst að veiðistjóri mæli svo fyrir að menn eigi að vera tveir saman á grenjum af ör- yggisástæðum. — Hvers vegna fékk hann þá að vera svona lengi einn við veiðarnar? — Ja, — þetta gekk mjög vel hjá honum. Ásgrímur Hólm Kristjánsson — hann var í daglegu tali nefndur Hólmi — var afburða hreystimenni og duglegur, svo þetta hefur verið látið afskiptalaust, ef til vill líka af fjárhags- ástæðum, því auðvitað er einn maður ódýrari en tveir. Einnig tel ég það nokkuð vist að hann hafi jafnvel frekar viljað vera einn því hann kunni einverunni vel. En svo kom að því að hann laskaðist á heilsu, fékk kransæðastíflu, og þá var hann ekki lengur maður til að bera allan þann útbúnað sem til þarf í svona útivist. Nú, ég fann það á honum að hann langaði til þess að halda áfram þessu starfi, svo ég bauð honum að ég skyldi fara með honum sem eins konar burðarmaður, því ég hafði nú alls ekki neina trú á mér í þessa veiðimennsku svona fyrst í stað. — Varstu þá vanur fjallgöngum og útilegum? — Já, ég var það, — ég hafði löngum stundað það, — svona til að sækja andlegan þrótt. — Fór svo Ásgrímur að kenna þér? — Já, — það þróaðist mjög fljótt út í það, enda var leiðinlegt að sitja aðgerðalaus og heldur ekki leggjandi á heilsuskaddaðan mann að liggja tímunum saman hreyf- ingarlaus við greni. Það er víst nógu erfitt fyrir fullhraustan og betra að menn séu ekki kulsælir. Og svona eftir fyrstu grenin, þá var ég alveg farinn að fást við þetta til jafns við hann. Hann lá þá oftast á daginn en ég tók við um kvöld- matarleytið eða þegar rask hafði orðið á greninu, t.d. þegar læðan var unnin. Fyrst í stað fannst mér veiðin svo spennandi að við lá að mér sortnaði fyrir augum og hjartað ætlaði að hoppa út um eyrun af æsingi þegar tófan birtist eftir margra klukku- stunda þögla og hreyfingarlausa bið en núorðið tek ég þessu með jafnaðargeði, með aukinni reynslu og skotfimi. Auk skotmennskunnar er nauðsynlegt að kunna að rata í þokunni sem er þrálát á Útnesinu þar sem kennileiti eru af skornum skammti. Fyrsta sumarið þurftum við að merkja öll grenin, en þau eru milli 80 og 90 á öllu svæðinu, og þá var mér það með öllu óskiljanlegt hvernig Hólmi gat fundið sum grenin í endalausri urð og þar á ofan í sótsvartri þoku. Þetta fannst mér allt að því ofurmannlegt, en þetta get ég sjálfur núna og er sönnun þess að ratvísi er ekki aðeins meðfædd náðargáfa, hún lærist ef menn hafa augu opin. — Komuð þið ykkur kannski upp þöglu táknmáli þegar þið láguð saman á grenjum? — Nei, — það gerðum við ekki en við vorum farnir að vinna saman sem einn maður og samkomulag okkar var eftir því. Mér er minnisstætt eitt atvik þegar við lágum á greni þar sem við höfðum ekkert skotbyrgi, urðum bara að klessa okkur einhvers staðar ofan í jörðina, en vorum samt þannig að við sáum vel til hvors annars. Eftir allnokkra bið fann ég það mjög glöggt að við fundum það báðir á okkur samtímis upp á sekúndu að refurinn var að nálgast. Venjulegast má marka töluverða breytingu á fuglakvakinu og svo getur hugboðið hjálpað til. En þarna í þessi tilfelli var það óvenjulegt að báðir refirnir komu að samtímis og þá kannski voru áhrifin enn öflugri fyrir vikið. En samstarfi okkar Ásgríms lauk með heldur sviplegum hætti. Við vorum að taka okkur upp til að fara á greni, — en ákváðum að fara út í Skoruvík sem var úr leið frá því greni sem við ætluðum að vinna. Veðrið var ekki alveg upp á það besta, þokuslór og regnslitringur en bjartviðri og þurrviðri er næstum skilyrði fyrir góðum árangri. Við hituðum okkur drykk og spjölluðum saman m.a. um liðna tíð á Langanesi. Heima er bezt 41

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.