Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1989, Blaðsíða 17

Heima er bezt - 01.02.1989, Blaðsíða 17
upp að klettinum og miða upp í loftið. Heppinn var ég að setja strax annað skot í byssuna. Það gerir vaninn. Vængsúgurinn nálgast. Þarna birtist hann, hátt uppi, og sveiflar sér yfir gilið, þar sem ég skaut hinn. Annað skot bergmálar. Hrafninn steypist og hringsnýst í loft- inu, - vængbrotinn. Samt þegir hann. Hann kemur niður í brekkuna á móti mér, bröltir og stendur upp. Annað skot. Hann hnígur út af. Þá var þessu lokið. Mér létti stórum. Eg hélt ég mundi ekki hitta hann. Mð var langt síðan ég hafði verið eins óstyrkur að miða byssunni. Það, sem eftir er, verður léttbærara, hugs- aði ég. Og - þó fellur mér það verst. Og svo á ég bara eitt skot eftir, bara eitt. Ég læðist fram á bjargbrúnina, skamt frá hreiðrinu og gægist. Parna eru þeir allir, fjórir. Þeir húka hreyf- ingarlausir og þögulir en horfa í vest- urátt, þangað, sem ósköpin dundu yfir áðan. Nú sýnist mér tveir þeirra horfa á mig., Þeir halla undir flatt, velta vöngum, líta upp fyrir sig og ég sé svört tindrandi augu, sem lok- ast við og við. Því miður stendur einn unginn til hliðar, hinir eru gefnir. Nú vandast málið. Sjálfsagt kemst ég í hreiðrið, en ekki er það hættulaust. Ungana léti ég hvort sem er ekki liggja þarna, þótt þeir féllu. Nei. Það skyldi aldrei verða. En best væri að skjóta þá alla, - best fyrir þá. Það væri ólíkt betra en að bíða mín. Ég krunka lágt. Hvílík breyting. Ungarnir þyrpast saman, teygja sig í áttina til mín og taka undir. Ég tek í gikkinn. Einn steypist niður af syll- unni, hinir liggja kyrrir. Sá, er niður féll, bröltir þar örlítið um og hverfur á milli steina. Ég kemst niður fyrir klettinn og hraða mér þangað. Þarna liggur hann á bakinu og gapir en aug- un eru lokuð. Ég tek þétt um væng- ina, báðum höndum, sný baki hans niður og þrýsti að síðunum. Unginn andar ekki en hjartað slær. Höfuðið hangir máttvana niður. Ég bregð honum á loft og slæ hnakkanum eld- snöggt við blágrýtisstein. Þá lokast nefið og titringur fer um kroppinn. Eftir nokkra snúninga er ég búin að ná ungunum og foreldrum þeirra. Ég raða þeim öllum í klettasprungu við gilbotninn. Þar hyl ég þá vel með lyngi og grasi og legg svo nokkra steina ofan á. Fyrri hrafninn er ég skaut, var móðirin. í nefinu hafði hún haft ný- legt mörstykki og lakapart úr kind. Maki hennar hafði, á einhvern hátt, skynjað hættuna og hraðað sér á vettvang. Sennilegt er að heyrnin hafi tilkynnt honum hin válegu tíð- indi. Þegar ég geng heim að greninu, með tófuna í hendinni, bía lóurnar hátt. Og það er ekki að ástæðulausu. Ég er sannarlega varhugaverður líka, þó ég hafi ekki svarta vængi. Þær vita ekki að fyrst og fremst var þessi för farin þeirra vegna. En - lífið er tor- ráðið. Það er ekki von að þið, - blessaðar lóurnar mínar, - skiljið það. Nei. Það er ekki von. Svo mikið ber þar á milli okkar, í mannheimi. Og - samt treysti ég því að dómur ykkar verði mér til hugarléttis við hinstu skuldaskilin. Júní 1960. m. Skyldi ég enn verða að gefast upp? Og þetta er fjórða ferðin. Svartbak- urinn hefur nú tekið flesta duggand- arungana, skömmu eftir að þeir fóru á ról, með mæðrum sínum. Kannske nokkrar endur eigi eftir að unga út, ef hrafninn hefur þá ekki séð fyrir því? Ég kúri vestan undir háu barði, sem er austan við vatnið heima, hjá svonefndum Kerlingarhól. Það fer illa um mig og mér er kalt. Ég var sá klaufi að taka ekki með mér neina skjólflík. Það er júnímorgun, klukkan ekki fimm, kyrrt veður og sólskin. Ég ætl- aði þó sannarlega að vera á undan honum núna. Ef til vill kemur hann ekki? Síðast kom ég of seint. Þeir eru snemma á ferð á morgnana, þessir karlar, jafnvel á undan hröfnunum. Þetta er þriðji víkingurinn, í mörg ár, áreiðanlega sá versti og lang vara- samasti. Það er engu líkara en hann hafi alltaf hugboð um það hvar ég leynist. Meira að segja í þokunni síðast, flaug hann ekki í færi. En röddin gaf til kynna hvar hann grunaði hættu. „Gva - gva - gva - gva,“ heyrðist utan úr þokunni, lágum hvíslandi rómi. „Gva - gva - gva - gva.“ Þá gramdist mér. Fjörutíu til fimmtíu unga, fyrir víst, er hann búinn að taka og lang- flesta duggandarunga. í rigningunni í gær, þegar við Helgi bróðir vorum að slá yzt á túninu heima, sá ég baksa taka þrjá, hvern á fætur öðrum, frá einni duggöndinni, og þá síðustu, sem hún hafði. Það er sárt að horfa á þetta dag eftir dag og án þess að geta nokkuð hjálpað. Og allra gremjulegast er það núna, þegar krummi hefur rænt með minnsta móti af eggjunum. Stundum hefur hann hreinsað hvert einasta dugg- andarhreiður. Að sjá hvernig svartbakurinn gríp- ur ungana, hvernig sem móðirin reynir að verja þá með hljóðum og vængjaslætti. Hann grípur þá venju- lega um hálsinn ofarlega, flýgur með þá spriklandi í burtu - oft stutta leið - og gleypir þá spriklandi. Svo byrjar hann aðra umferð. Þetta eru allt lífsreyndir karlar, sem komast upp á svona veiðiaðferð. Allir, sem ég hef skotið og tekið hafa unga og silunga úr netjunum, voru karlfuglar. Þessi þræll byrjar vafa- laust á silungunum, þegar ungarnir eru búnir. Hann finnur hvað þar er auðfenginn mataraflinn. Sennilega næ ég honum ekki fyrr. Það þykir mér þó hart, eins og ég hefi þó oft verið á verði. En ég hef ekki ætlað að þruma á hann, nema að vera nokkuð viss. Mistækist það versnar minn hlutur. Um þetta var ég að hugsa undir barðinu. Jæja, þarna er þá ein duggönd með ósköp litla unga, og - bara tvo. Hún kemur sunnan með landinu óg syndir fast við vatnsbakkann. A stöku stað eru smáskápar, sem vatnið, eða öllu heldur öldurnar, hafa grafið undir bakkana. Máske Heima er bezt 53

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.