Heima er bezt - 01.02.1989, Qupperneq 19
SÖGULEGAR LJÓSMYNDIR XV
Ari Leó Björnsson tók myndina.
I skemmtiferð að Hraunsvatni
Hér má sjá nokkra Eyfirðinga á ferðalagi. Þeir munu
allir vera úr Hrafnagilshreppi. Eetta var á sumardegi,
nokkru fyrir 1930. Og farkosturinn er með tvöföldu
húsi, eins og kallað var. Það er úr timbri og sæti
fyrir tvo eða þrjá aftan við ökumanninn. Uppi á palli
hafa verið festir þrír bekkir, sem minna óneitanlega
á gömlu, hörðu kirkjubekkina. Bíllinn stendur þarna
á bakka Öxnadalsár eftir langa ferð framan úr Firði,
norður Kræklingahlíð, vestur yfir Moldhaugnaháls,
fram Þelamörk, yfir Bægisá og inn Öxnadal. Þar hafa
ferðamenn áreiðanlega sungið ljóð Hannesar Haf-
stein, ,,Þar sem háir hólar / hálfan dalinn fylla,“ og
minnst listaskáldsins góða, Jónasar Hallgrímssonar,
undir hraundröngum. í túnjaðri Hrauns var stigið af
bílnum og gengið upp grýtta hlíð upp að Hraunsvatni,
þar sem séra Hallgrímur, faðir Jónasar hafði forðum
stundað silungsveiðar. En hann fórst þar í vatninu
og hermir sagan að það hafi haft djúp áhrif á sveininn
unga, sem vænta mátti.
Ymsir kunnir menn hafa tekið þátt í þessari ferð
Eyfirðinga, svo sem sjá má af myndinni. Uppi á hús-
inu situr Jónas Pétursson, fyrrum alþingismaður, og
er með góðan hatt á höfði, þótt æði langt hafi verið
í þingmennskuna þá. En sá sem situr þar uppi og
lætur kaskeitið halla út í annan vangann, er Baldur
Eiríksson kunnur hagyrðingur og skáld, sem orti
löngum undir dulnefninu Dvergur.
B.G.
1. Þorbjörn Indridason, Botni. 2. Hreiðar Eiríksson, Dvergsstöð-
um. 3. Hallgrímur Indriðason, Botni. 4. Ottó Pálsson, Reykhúsum.
5. Asa Eiríksdóttir, Dvergsstöðum. 6. María Indriðadóttir, Botni.
7. Tómas Jónsson, Kroppi. 8. Helgi Pétursson, Hranastöðum. 9.
Kristbjörg Pétursdóttir, Hranastöðum. 10. Jón Hallgrímsson,
Reykhúsum. 11. Kristján Samúelsson, Víðigerði. 12. Ingvar Brynj-
ólfsson, Stokkahlöðum. 13. Sigríður Hallgrímsdóttir, Reykhúsum.
14. Jónas Pétursson, Hranastöðum. 15. Guðmundur Guðmunds-
son, vinnumaður Grund. 16. Baldur Eiríksson, Dvergsstöðum. 17.
Krístinn Jakobsson, Stórhóli (Espihóli). 18. Freyja Eiríksdóttir.
Heimaerbezt 55