Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1989, Side 23

Heima er bezt - 01.02.1989, Side 23
heimilinu á Lóni, þó eg ekki skildi þá hvað menn eins og hann eru mikils virði fyrir þjóðina, eru fyrirmynd og leggja grundvöllinn að almennings menningunni. Þegar eg var unglingur, var það elzta fólkið, sem mundi sögur af Daní- elsen og hans dugnaðar tilþrifum á hans beztu árum, hjálpsemi hans með smíðaverk, sem þurftu að komast af á vissum tíma. Jafnvel nákvæma góðsemi við fátæka. Eitt sinn er sagt frá því að Þorsteinn var á ferð fram í Hörgár- dal; kemur hann þá að smábýli einu; enginn var úti, svo hann gengur inn, það var hans vani. Hann litast um. Bað- stofan var svo lítil, að hann hafði aldrei séð jafn litla vist- arveru. Kona lá þar í rúmi; hann heilsar henni og segir: „Hvað er að, kona góð, ertu veik?“ „Eg er ekki vel frísk,“ svaraði konan, „drengurinn minn er viku gamall.“ Lítið barn í reifum lá þar við hlið móðurinnar. „Einmitt það,“ sagði Þorsteinn, „en þú ættir að hafa rúm sem hægt er að draga sundur og saman, það gæfi þér meira pláss á daginn; baðstofan er svo lítil. En hvar er maðurinn?“ „Hann er á engjum,“ svaraði konan, „hann er einvirki og verður að gera alt úti við.“ Þorsteinn tekur nú upp spesíu og gefur barninu. Konan þakkar og segir: „Hann skal heita Þor- steinn.“ ,,Það líkar mér vel,“ sagði Daníelsen, ,,hann nennir þá að taka ærlegt handarvik." Þorsteinn þessi varð á sínum tíma dugnaðar bóndi þar í dalnum. Þorsteinn fer nú heim. Líður svo næsti dagur að kvöldi. Þá er þar kominn maður og kona með klyfjaðan hest af varningi — sending frá hjónunum á Lóni — svo sem kornvöru, kramvöru og vaðmáli, ásamt rúmstæðinu, sem áður er nefnt. Stúlkan varð eftir hjá konunni, henni til hjálpar nokkra daga, en maðurinn fór til baka um nóttina. Þá var það líka eitt sinn, að fátækur dugnaðar bóndi þar inni i hlíðinni var að reisa sér baðstofu og búinn að koma upp grindinni, en þá kom það óhapp fyrir, að ofsa vind- bylur skall yfir, feykti grindinni um koll og braut í spón, og fleira af bæjarhúsum skemmdist. Bóndi stóð uppi ráðalaus. Þorsteinn á Lóni frétti um óhappið og segir: „Ekki dugar þetta, eg verð að hjálpa manninum.“ Næsta dag sendir hann mann með hesta inn á Akureyri, gefur þeim skrifaða fyrirskipan um það timbur, sem kaupa þarf í baðstofu- grindina og borðvið til að klæða hana að innan. Hann segir við mennina: „Þið komið við hjá Helga, segið honum að vera hughraustum. Eg finn hann bráðum.“ Næsta dag var Þorsteinn kominn og lét nú hendur standa fram úr ermum, sem kallað var, við að koma baðstofunni upp sem fyrst, og neyddi nokkra af nágranna bændum til að gefa dagsverk til að gera við bæjarhúsin, sem skemmst höfðu af vindbyln- um. Hann sagði: „Ef þið gerið þetta, þá skal eg hjálpa ykkur þegar þið byggið.“ Þannig voru hans góðu mannspartar, að veita stuðning þeim, sem vildu bjarga sér, en vantaði efni og skilyrði til framkvæmda, og borgun fyrir slíka hjálp kom honum aldrei til hugar. Vísa þessi var um hann kveðin: Enginn smíðar á við hann ísalands á fróni, dygðum prýddur dánumann, Daníelsen á Lóni. Þorsteinn Daníelsson. Þá er sagt frá því eftir að Þorsteini fór að förlast minni og aðgætni, að piltar hans höfðu gaman af að leika á gamla manninn einhver meinlaus brögð. En þeir höfðu ekki ábatann af því; bæði var Þorsteinn fljótur til svars og orð- heppinn. Einn dag um haust voru piltar að dytta að fjárhúsum. Þegar leið á daginn, leiddist þeim þófið sem kallað var, en fóru að glíma sér til skemtunar. Þetta gekk góða stund, þar til þeir voru orðnir sveittir af áreynslunni. Nú kemur þeim saman um að fara heim til húsbóndans og sýna honum hvað hart þeir vinni. „Svitinn bogar af okkur,“ sögðu þeir. „Það er ágætt, drengir,“ sagði Þorsteinn. „Þarna fer letin út úr ykkur í svitanum, en farið nú inn til ráðskonunnar og segið henni að gefa ykkur aukabita fyrir að losast við let- ina.“ Minning slíkra manna sem Þorsteins ætti að vera skráð með gullnum þakklætisstöfum í minnisbók aldanna. Þeir voru ímynd frelsis og sjálfstæðis. Þeir brutu af sér ófrelsis-hlekkina, sem reyrðu þjóðina og fundu sig frjálsa og blómguðust landinu til viðreisnar og farsældar. Annar maður var þar í næstu sveit, er eg dáðist að; það var séra Arnljótur Ólafsson á Bægisá í Hörgárdal, mikil- menni að hæfileikum. Hann ritaði merkar greinar í blaðið „Norðanfara", sem gefið var út á Akureyri, sem gengu út á að sýna með ljósum rökum að skattarnir í landinu væru alt of háir fyrir efnahag fólksins, einkum að þeir fátæku borguðu meira að tiltölu en hinir ríku. Eg las greinar hans með athygli. Já, hann er að vinna fyrir réttlætið, hugsaði eg; Drottinn launar honum það, að halda uppi vörn fyrir lítil- Heimaerbezt 59

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.