Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1989, Side 25

Heima er bezt - 01.02.1989, Side 25
BOLLI GÚSTAVSSON: „Hjallamir voru alltaf fullir af fiski“ Viðtal við Jóhann Þ. Kröyer um œvi hans og störf VII. hluti lofgerð Davíðs Stefánssonar, er hann leit fjörðinn loks eftir langan dag og seyddur um sólarlag sigldi þar inn. Þetta myndræna og hjartnæma ljóð vekur alltaf ótal minningar í huga mér allt frá æskudögum. Fyrir mér voru Múlinn og Gjögurtá eins og óhagganleg varðtröll og oft leit ég geisla- dansinn berast inn sólgyllt sund. En í þetta sinn var kannski ekki rætt svo mikið um skáldskap, þótt fegurð fjarðarins léti okkur ekki ósnortna fremur en endranær. Á leiðinni fyrir Oddeyrartangann segir Vilhjálmur við mig: — Þú ert kannski dálítið hissa á þessu ferðalagi okkar? — Ég jánka því, en þá heldur hann áfram: — Ég er að spekúlera í þvi að kaupa eða leigja einhverja aðstöðu af Páli Bergssyni. Þótt kaupfélagið hafi komið sér fyrir í eyj- unni, þá er það alls ekki með þeim hætti, sem ég hafði hugsað mér. Hlutverk Hríseyjar á að verða meira, en það er nú. Ég hefi raunar látið mér til hugar koma, að i framtíð- inni verði hún miðpunktur verslunar og viðskipta hér í firðinum. — Sennilega hefði þessi hugsjón Vilhjálms orðið að veru- leika, ef ný flutningatækni hefði ekki verið jafn skammt undan og brátt kom á daginn. Á þessum tíma var varla hægt að segja að bílaöld væri upprunnin hér. Það var að vísu þegar nokkuð um bíla, en engar fastar ferðir höfðu verið teknar upp með þeim, enda voru þeir alls ekki til þungaflutninga og vegir voru vægast sagt harla ófull- í land að menn fréttu af XLV Hríseyjarferð Líður nú fram á vetur 1929. Dag nokkurn hringdi Vil- hjálmur Þór í mig og bað mig að finna sig. Þetta var rétt um hádegisbil og ég fór þegar upp til fundar við hann. Sem fyrr sneri hann sér þegar að erindinu og sagði: — Heyrðu, viltu ekki koma með mér út í Hrísey á eftir? — Ég gapti auðvit- að, því nú var miður vinnudagur og þetta þótti nokkurt ferðalag í þá daga. Hann brosti að undrun minni og hélt áfram: — Já, ég ætla að fara úteftir með Unni. — Unnur var þá flóabátur, en bræður Vilhjálms, Jónas og Jón, áttu skipið og höfðu einnig gert það út á síld. Þá var Unnur í áætlunarferðum um tíma. — Unnur fer með salt út á Grenivík, — hélt Vilhjálmur áfram, — vegna mótorbátanna þar, og ég er að hugsa um að fá Jón Björnsson skipstjóra til þess að skjóta okkur í land í Hrísey, áður en hann losar saltið, en sækja okkur aftur, þegar hann hefur lokið erindi sínu á Grenivík. Ertu nú ekki til með að koma með mér? Ég á einmitt erindi við Pál tengdaföður þinn. — Ég tók þessu að sjálfsögðu vel og eftir hádegið lögðum við af stað út Eyjafjörð. Þegar fagurt er veður er vart hægt að hugsa sér ánægjulegri siglingaleið, enda hefur hún veitt skáldunum innblástur og ber þar hæst Heima er bezt 61

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.