Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1989, Side 26

Heima er bezt - 01.02.1989, Side 26
ýtum og öðrum stórvirkum vinnuvélum. En þennan dag var það draumur Vilhjálms að koma á fót miðstöð í Hrisey, bæði með kolabirgðir, salt og ýmsar aðrar vörur, t.d. til bygginga. Úr eyjunni var til þess að gera stutt yfir á Grenivík, eins upp á Dalvík eða yfir á Litla-Árskógssand og Hauganes. Þannig átti Hrísey að verða miðstöð verslunar á miðjum firði og þjóna bæði vestur- og austurströnd hans. Sú hugmynd var snjöll og henni sennilega hrundið í fram- kvæmd, ef ekki hefðu orðið skjót umskipti á samgöngu- háttum á næstu árum. Þá hefði hafnaraðstaðan verið bætt í Hrísey og stór skip látin losa þar kol og salt, byggingarefni og ýmsan annan þungavarning. Og líklega hefði íbúum fjölgað til muna og mannvirki risið þar. Þetta lýsir vel framsýni og stórhug Vilhjálms. En þegar hann hafði greint mér frá fyrirætlan sinni, þá sagði hann: — Mér datt nú í hug þar sem ekkert varð úr vesturför þinni, að fá þig til að koma með mér nú og að við röbbuðum um þetta. Ég veit, að þú hefur orðið bæði reiður og sár vegna þess hvernig fór um Dýrafjörð og nú er mér efst í huga, hvort þú verðir reiðubúinn þegar þar að kemur, að vinna að skipulagningu þessarar framtíðaruppbyggingar hér úti í eyjunni. — Við töluðum um margt á sjóferðinni út eftir, nutum góðrar gestrisni í Hrísey og enn var ýmislegt skrafað á heimleið. Það var raunar ekki laust við, að samstarfsmönnum mínum þætti nóg um þessi samskipti okkar Vilhjálms og sumir vildu halda því fram, að ég væri eitthvað að viðra mig upp við hann, til þess að koma ár minni fyrir borð og vinna mig upp í starfi innan KEA. En fátt var mér fjarlægara, enda sá ég enga ástæðu til þess. Ég hafði ekki sóttst eftir þessum samskiptum, en okkur féll alltaf vel að ræða saman og skorti seint umræðuefni. — En var hann ekki aðgengilegur maður? — Mér fannst hann vera það. Hann var dálítið hrjúfur, stundum stuttur í spuna. En mér líkaði vel við hann sem húsbónda, ekki síst vegna þess, að ef við deildarstjórarnir tókum einhverjar ákvarðanir, sem starfsfólkið var svo ósátt við og kvartaði undan þeim við hann, þá sagði hann aldrei: — Ég skal nú kippa þessu í lag —, heldur: — Ég skal tala um þetta við Jóhann og vita hvað hann segir. — Svo hringdi hann í mig og sagði: — Þessi náungi var að kvarta undan þessu eða hinu —. Síðan gerði hann mér ljósa grein fyrir þessum kvörtunum og spurði, hvort eitthvað væri hægt við því að gera. En að hann segði við mig: — Þetta, sem þú hefur ákveðið og sagt, verður þú nú að éta oní þig! —Það gerði hann aldrei og fyrir það var hann virtur, að allt var á hreinu, sem hann sagði og gerði, enda þótt ekki væri hann alltaf sérlega mjúkmáll og hikaði ekki við að finna opinskátt að við okkur, jafnvel að skamma okkur dálítið. Að mínu mati var hann heill maður og mér þótti vænt um Vilhjálm. XLVI Fyrir Múlann Ég var enn í sama farinu fyrst eftir Hríseyjarförina, þótt hún vekti áhuga minn og nokkra eftirvæntingu. Þetta hafði svo sem verið nógu viðburðaríkur vetur, fyrst Dýrafjarð- arævintýrið, sem endaði áður en af stað vari haldið, og síðan Hríseyjarförin, þegar Vilhjálmur reifaði áhugaverð framtíðaráform, sem vöktu eftirvæntingu mína. Aðalfundur KEA var svo haldinn í apríl. Veturinn hafði verið ágætur, en þegar fundurinn hófst snjóaði dálítið og þá töluðu menn náttúrlega um kaupfélagsfundarhretið eins og svo oft fyrr og síðar. Ég man eftir því, að þessi fundur var þá haldinn úti í Nýja bíó, en áður höfðu fundir alltaf verið inni í Samkomuhúsi. Ég var þó ekki á fundinum, enda vorum við starfsmennirnir yfirleitt ekki fulltrúar á þeim árum. Rétt eftir matarhlé kom Vilhjálmur við i búðinni og var þá á leið á fundinn. Hann kallaði á mig og þar sem honum lá svo á að komast á fundinn bað hann mig að ganga með sér út stéttina. Þegar við komum út segir hann við mig: —Viltu fara sem útibússtjóri í Ólafsfjörð? — Auðvitað varð ég undrandi. enda með hugann við Hrísey og svo var skammt í það að flutt yrði í nýja matvörudeild í stórbyggingu KEA við Kaupvangsstræti og var þá ákveðið að ég yrði þar deildarstjóri. Þór Björnsson átti að taka við bíladeildinni, en Jón Björnsson álnavörudeild. Ég vissi sannast sagna ekki, hvernig ég ætti að svara þessari óvæntu spurningu. Þá hafði útibú KEA starfað í eitt ár í Ólafsfirði og Kristinn Þorsteinsson veitti því forstöðu. Það hafði verið honum á ýmsan hátt erfitt, því hann var ungur maður og þar að auki í sinni heimabyggð. Karlarnir ytra voru því frekir við hann. Einhverjir þeirra höfðu klagað yfir því, að allar vörur skyldu ekki fluttar að staðaldri út í Ólafsfjörð og væru þar til reiðu; svo sem timbur, kol og hvað sem var, og einn maður átti þá að sjá um að það væri allt til reiðu, þegar á þurfti að halda. Vilhjálmur gerði nú ekkert með það, en hann sá hins vegar að aðstaða Kristins var í meira lagi erfið og menn leyfðu sér að vaða yfir höfuðið á honum, vegna þess að þeir höfðu þekkt hann frá barnæsku. Mér vafðist tunga um tönn við þessa óvæntu spurn, sem Vilhjálmur bar upp á leið okkar út Bótina, en sagði þó ekki nei, heldur kvaðst verða að hugleiða málið og ræða það við Evu. Síðan verður mér fyrir að spyrja: — En hvað verður um Kristin? — Vilhjálmur svarar þá snöggt: — Það kemur málinu ekkert við.-----Jú, það kemur málinu það mikið við, að ef Kristinn á að hætta hjá KEA, þá fer ég ekki.- Ég virði þetta við þig, að þú skulir taka þessu á þennan veg, en hins vegar skiptir það svo sem engu máli, því ef Kristinn hættir, þá tekur einhver annar við stöðu hans. Ég get hins vegar sagt þér það, að hann kemur þá hingað inneftir og tekur við því starfi, sem þér var ætlað við nýju matvöru- deildina. — Ég fór nú heim og sagði Evu frá þessu. Hún tók því að sjálfsögðu vel, því eins og fyrr er að vikið, var hún Ólafs- firðingur, átti kærar minningar þaðan og nú var eins og henni biðist að flytjast heim. Varð það því úr, að ég tók þessu boði. Þannig endaði þessi vetrarpartur frá því í janúar 1929 og fram í apríl, er fjórar stöður voru í boði, en ýmislegt fór á annan veg, en í upphafi var ætlað. 62 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.