Heima er bezt


Heima er bezt - 01.01.1995, Side 14

Heima er bezt - 01.01.1995, Side 14
Ur ættfræðinni Foreldrar Oddgeirs og systur Aðspurður um áhugamál á árum áður og þróun mála gegnum tíðina segir Oddgeir m.a.: Fyrstu kynni mín af félagsmálum voru þegar ég gerðist félagi í ungmennafélaginu Þórsmörk. Félagið var stofnað 10. nóvember 1917 og gekk ég í félagið þegar ég hafði aldur til. Fannst mér áhugavert að fá tækifæri að taka þátt í hinu fjölþætta félagsstarfi. Málfundir, kvöldvökur, leiksýningar, íþróttir, skógrækt, söngur og m.fl. á vegum félagsins var unglingsárum mín- um til mikils þroska og góður skóli, segir Oddgeir. Skólaganga hans var fremur fábrotin eins og flestra annarra unglinga á þessum árum. Aðeins farskólanám í fimm vetur. Því var háttað þannig: tvær vikur nám í gömlu og þægindalitlu þinghúsi hreppsins. Þarna var fjölmennasti unglingahópurinn við nám, enda skólahúsið í miðri sveitinni. Tvær vikur frí í skóla og lesið hcima á meðan kennarinn kenndi eina viku börnum í „Innhlíð- inni“ og aðra viku kenndi hann börnum í „Úthlíðinni.“ Þannig gekk barnaskólanámið fremur rólega frá haustnóttum til vorprófa. Seinna er árin liðu var Oddgeir formaður ungmennafé- lagsins Þórsmörk um skeið og mun hafa hlotið þar lífs- reynslu góða og traustan grundvöll að öðrum og ólíkari Oddgeir Guðjónsson. 10 Heima er besl

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.