Heima er bezt - 01.01.1995, Síða 15
Ólafur Oddgeirsson og kona hans Fiona McTavis og
drengir þeirra.
félagsstörfum í þágu sveitar sinnar og héraðs síðar á lífs-
leiðinni.
Oddgeir hefur ávallt sinnt óskum sönggyðjunar gegn-
um árin og verið góður liðsmaður í kirkjusöng Fljótshlíð-
inga. Fjölda ára var hann í sóknarnefnd Breiðabólstaðar-
sóknar og í stjórn kirkjukórasambands Rangárvallapró-
fastsdæmis. Hann kom víðar við sögu í fjölþættum fé-
lagsmálum en að ofan greinir. Var í stjórn Búnaðarfélags
Fljótshlíðarhrepps í tugi ára, í stjórn Kaupfélags Rangæ-
inga í 22 ár. Formaður Sjúkrasamlags Fljótshlíðarhrepps
var hann í mörg ár og þar til sýslusamlögin tóku til starfa.
í skólanefnd FljótshIíðarskóla og formaður þar í nokkur
ár. Um langt skeið í sveitarstjórn Fljótshlíðarhrepps -
sýslunefnd Rangárvallasýslu - og fjórðung aldar var hann
hreppstjóri í sinni sveit.
Oddgeir bóndi í Tungu virtist ávallt hafa nægan tíma
frá sínum daglegu störfum að veita góðum málum lið.
Hann var valinn formaður þriggja manna gróðurverndar-
nefndar Rangárvallasýslu, þegar í upphafi að slíkar
nefndir tóku til starfa víða í sýslum landsins.
Þegar störf sýslunefndanna voru lögð niður samkvæmt
landslögum og héraðsnefndirnar tóku við, urðu manna-
skipti í gróðurverndarnefnd Rangárvallasýslu að meiri-
hluta. I Rangárþingi var víða verk að vinna í þessum efn-
um og árangur gróðurverndarnefndarinnar meiri en marg-
ir höfðu í upphafi spáð.
Guðlaug og maður hennar Sigurður Sigurðsson og hörn
þeirra.
Oddgeir á mikið og gott safn smíðatóla, enda er maður-
inn smiður hinn besti og margir sveitungar hans notið þar
huga og handa. Nú síðast er hann, ásamt tengdasyni sín-
um, Sigurði Sigurðssyni trésmíðameistara, að ljúka við-
gerð á Breiðabólstaðarkirkju.
Oddgeir hefur víða stungið niður penna um dagana og
geymir snyrtilegt „möppusafn" hans mikinn fróðleik, t.d.
um ættfræði og aðdraganda dauðaslysa í Fljótshlíðar-
hreppi nokkrar síðustu aldinar! Hann hefur ritað afréttar-
skrá Rangárvallasýslu. Skráð ömefni í Fljótshlíðarhreppi
og afrétti sveitarinnar, einnig á nokkrum bæjum í Rauð-
nefsstaðakrók. Þessir bæir eru: Rauðnefsstaðir, Þorleifs-
staðir og Reynifell. Bæir þessir eru allir í Rangárvalla-
hreppi og eru nú komnir í eyði.
Þá má einnig geta þess að stjórn Búnaðarsambands
Suðurlands tilnefndi þrjá menn til að sjá um útgáfu rit-
verksins Sunnlenskar byggðir og var Oddgeir einn þeirra.
Með honum voru í nefndinni, Jón Guðmundsson, bóndi
Fjalli í Skeiðahreppi og Júlíus Jónsson, bóndi í Norður-
hjáleigu í Álftaveri, og var Oddgeir kjörinn formaður
nefndarinnar.
Ritverk þetta er í sex bindum, rúmlega 3500 blaðsíður
og geymir merka sögu úr sýslunum þremur á Búnaðar-
sambandssvæðinu, frá Lómagnúpi í austri til vesturmarka
Selvogs og Þingvallasveitar í vestri.
Heima er hest 11