Heima er bezt - 01.01.1995, Side 24
munur fyrir veðurathugunarfólkið nú
en var á meðan enginn mannvera
sást allan veturinn. En Hveravellir
eru örugglega jafn heillandi vetur
sem sumar. Náttúran er svo hrein og
sem betur fer óspillt. A sumrin er
starfsmaður frá Ferðafélaginu, land-
vörður, sem sér um vörslu á svæð-
inu. Vissulega er þess þörf, þar sem
staður sem þessi er ákaflega við-
kvæmur fyrir allri umferð.
Enginn veit hvað framtíðin ber í
skauti sínu með okkar ísiensku nátt-
úruperlur, en ég vona af öllu hjarta
að okkur takist að varðveita þær
óspilltar og leyfa þeim að halda
sinni upprunalegu mynd og fegurð.
Þannig hugsa ég til Hveravalla og
vona að við getum heimsótt þessa
mögnuðu orkulind um ókomna
framtíð hreina og óspillta. Við eig-
um margar perlur. Saman skulum
Við gamla sæluhúsið.
Að kvöldlagi.
á hraunhól og mun Eyvindur karlinn
hafa notað þetta afdrep fyrir fé, svo
segir sagan að minnsta kosti, en þó
er ekki gott fyrir okkur sem erum á
ferð í dag. að vita hvemig atburðir
fortíðarinnar gerðust raunverulega.
En óneitanlega er auðvelt að tengjast
fortíðinni þegar maður röltir um
hraunið hjá Hveravöllum og hugsar
um þessa gömlu sögu. Það er eins og
hún liggi í loftinu. En eitt er víst að
margir hafa skilið eftir sig tilfinning-
ar af mörgu tagi á þessum stað.
Veðurstofa Islands lét reisa veður-
athugunarstöð á Hveravöllum 1965.
Síðan hafa verið stundaðar veðurat-
huganir á Hveravöllum og eru enn.
Margt gott fólk hefur dvalið þarna
og hafa gestir oft fengið að njóta
ómældrar gestrisni veðurathugunar-
fólks á Hveravöllum. Eiga gangna-
menn margar góðar minningar um
það og oft mun hafa verið glatt á
hjalla.
Hin síðustu ár hafa ferðamenn í æ
ríkari mæli lagt leið sína á Hvera-
velli yfir vetrartímann. Nú er ekki
lengur veður og færð sem hamlar.
Útbúnaður fjallagarpa í dag er slíkur
að flest er fært. Er það því mikill
við virða þær og varðveita. í staðinn
fáum við sanna gleði og vellíðan.
20 Heima er best