Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1996, Side 5

Heima er bezt - 01.04.1996, Side 5
ÞORÐURINGIMARSSON Hanna María Pétursdóttir, Þingvallaprestur og þjóðgarðsvörður: „Ég hef alltaf valið mer bar ctu“ Hún segist vera sveitamaður í húð og hár en gæti þó eins verið stjórnmálamaður eða framkvæmdastjóri í dagsins önn, þar sem hún leggur kaffibolla á sófaborðið á milli okkar. Um leið lítur hún sem snöggvast í átt til stofugluggans, þar sem hamraveggurinn blasir við hand- an Öxarár og flatirnar fyrir neðan eru þaktar snjó og baða sig í síðdegissólinni. Útsýni sem líkja má við myndverk meistara. Það er febrúar á Þingvöllum og viðmælandinn er Hanna María Pétursdóttur, Þingvallaprestur og þjóð- garðsvörður. Á Þingvöllum hefur hún barist fyrir ýmsum endurbótum - einkum þeim að auðvelda fólki að fara um svæðið og njóta þeirrar náttúru og sögu sem það hefur að geyma. Endurbætur á Þingvöllum eru þó ekki fyrsta baráttan sem hún leggur hönd að því hún kveðst ætíð hafa valið sér baráttu að viðfangsefni. Hanna María er ein þeirra, sem ruddu braut kvenna að prestsstarfinu og hún hefur einnig fengist við kennslu og uppeldismál auk þjóðgarðsvörslunnar, sem nú á mikið rúm í huga hennar. „I því umhverfi nýtur sveitamaðurinn og náttúruunn- andinn sín,“ segir hún og kveðst vera einfari í eðli sínu - einfari sem sé háður náttúrunni. „Faðir minn átti alltaf hross og ég ólst því upp við mikla útiveru með hrossum og hestamennsku. Á há- skólaárunum í Reykjavfk, fannst mér nauðsynlegt að fara austur til foreldra minna, næstum um hverja helgi, til þess að vera úti, fara á hestbak og upplifa tengslin við landið og náttúruna. Af þeim sökum gat ég ekki tekið eins mikinn þátt í félagslífi og ég hefði annars kosið því þegar ég þurfti um helgar að velja á milli sveitarinnar og einhverra viðburða í bænum þá togaði útilífið jafnan í mig og ég var lögð af stað austur fyrr en varði. Ert þetta hélt í mér lífinu og þótt ég yrði af ýmsu öðru fyrir bragð- ið þá sé ég ekki eftir því.“ 'ÍHeima er bezt 121

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.