Heima er bezt - 01.04.1996, Page 6
'anna María hefur verið trú tilfinningum
sínum og aldrei flutt á mölina utan fimm
daga í viku hverri á árunum í guðfræði-
deildinni. í baráttu, sem tengst hefur störfum hennar í
gegnum tíðina, hefur hún þó þurft að beita kænsku
stjórnmálamannsins og krafti atvinnurekandans. Ef til vill
blandast þessar persónur allar í konunni, sem situr and-
spænis mér í stofu í Þingvallabænum og virðir umhverfið
fyrir sér milli þess sem hún lítur yfir farinn veg.
„Ég ólst upp í Hveragerði. Faðir minn er Pétur Þórðar-
son, ættaður úr Ölfusinu, en móðir mín heitir Alda And-
résdóttir frá Vestmannaeyjum en ættuð norðan af Skaga.
Að baki Vestmannaeyingnum í mér er nokkuð óvenjuleg
saga því langamma mín tók sig upp með böm frá manni
og búi fyrir norðan og flutti til Vestmannaeyja, þar sem
hún hóf að starfa við saumaskap og vinna á þann hátt fyr-
ir sér og börnunum. Eflaust hefur fátæktin og baslið verið
aðdragandi þessarar ákvörðunar og til hennar hefur þurft
mikinn kjark. A þeim tíma voru slíkir hlutir nánast taldir
óhugsandi og trúlega einsdæmi að kona færi frá heimili
sínum með þessum hætti. En amma bjargaði sér ágætlega
í Vestmannaeyjum og kom börnunum upp að öllum lík-
indum við betri lífsskilyrði en henni buðust í harðbýlli
sveit fyrir norðan.“
Hanna María segir að þótt amma sín hafi lifað betra lífi
í Eyjum en norður á Skaga þá hafi þessi flutningur henn-
ar á mölina ekki orðið til þess að draga úr tilfinningu af-
komendanna fyrir sveitinni, að minnsta kosti ekki sinni
því hún hafi ætíð verið mikill sveitamaður í sér og haft
sterkar tilfinningar til landsbyggðarinnar.
Hanna María fór þrettán ára til náms í Skógaskóla und-
ir Eyjafjöllum og hélt framhaldsnámi áfram á Laugar-
vatni. I Skógum kynntist hún meðal annars Þórði Tómas-
syni, safnverði, og þau kynni höfðu að hennar sögn mikil
áhrif á hana.
„Þórður er mikill áhugamaður um þjóðfræði og hann
vakti með mér áhuga á hinu þjóðlega og raunar þjóðfræð-
inni sem fræðigrein. Hann býr yfir mikilli þekkingu á ís-
lenskri þjóðfræði og spilaði fyrir okkur á langspil. Hjá
honum lærði ég margar þjóðvísur sem ég kann enn þann
dag í dag. Margt af því sem ég lærði að Skógum hefur
nýst mér vel og það veganesti, sem ég fór með frá Þórði,
reyndist mér einhver besti undirbúningur sem mér hefði
getað hlotnast til þess að taka við mínu fyrsta prests-
starfþsem var að Ásum í Skaftártungu.“
Náttúrubarnið varð bókmenntasinnað
Að loknu landsprófi frá Skógum settist Hanna María í
menntaskóla að Laugarvatni. Hún valdi að dvelja áfram í
sveitinni í stað þess að fara til Reykjavíkur og mætti til
leiks full áhuga á þeim þjóðlegu fræðum sem dvölin að
Skógum hafði skilið eftir. En við ný viðfangsefni kvikna
nýjar glæður og ný áhugamál verða til. Þannig var nátt-
Fjölskyldan á Þingvöllum að lokinni gönguferð á
sunnudegi. Þórður, Hanna María, Saga, Katla, Sigurður
Arni og hundarnir, Vaka og Kofri. Kofri dregur að sér
athygli húsbónda síns. Vaka er í fangi yngri dótturinnar
og sú eldri heldur á heimiliskettinum.
Ipredikunarstólnum í Þingvallakirkju. „Líklega undir
stólversi því annars vœri ég tæplega þögul í stólnum, “
segir Hanna María og brosir.
122 Heima er bezt