Heima er bezt - 01.04.1996, Page 7
Ur ættfræðinni
Foreldrar Hönnu Maríu
Karolína Björnsdóttir - Guðjón Jónsson (fósturfaðir)
Vestmannaeyjum
Asta M. Einarsdóttir - Þórður Símonarson
Ölfushreppi
í ý
Alda Andrésdóttir Hveragerði Pétur Þórðarson
▼
Hanna María
úrubarnið frá Hveragerði allt í einu orðið bókmenntasinn-
aður unglingur.
„Á sama hátt og áhugi minn á þjóðfræðinni vaknaði að
Skógum þá hrifu bókmenntirnar mig með sér á Laugar-
vatni. Þótt ég stundaði nám í náttúrufræðideild þá kynnt-
ist ég Kristjáni Arnasyni, bókmenntafræðingi og kennara,
og við þau kynni opnaðist mér alveg nýr heimur, sem er
heimur bókmenntanna. Náttúrubarnið var allt í einu orðið
bókmenntasinnað og eyddi löngum stundum við lestur
góðra ritverka. Þótt löngun mín til bókmennta bættist
þannig við áhuga á þjóðfræði þá varð það ekki til þess að
ég hæfi nám í guðfræði. Eg hafði ætlað mér í læknisfræði
og innritaðist því í læknadeild Háskóla Islands að loknu
stúdentsprófi. En dvölin í læknadeildinni varð styttri en
ætlað hafði verið. Eftir viku nám í læknisfræði fór ég upp
á skrifstofu háskólans og innritaði mig í guðfræði."
En af hverju breytti Hanna María svo snögglega um
svið? Við því kveðst hún ekki eiga neitt ákveðið svar en
telur að það hafi átt að gerast.
„Eg álít að því hafi verið stjómað af einhverju sem ég
hef ekki skýringu á. Þó má vera að þessi sinnaskipti mín í
námi tengist að einhverju leyti þeim áhuga á þjóðfræði og
bókmenntum, sem ég hafði öðlast í framhalds- og mennta-
skóla. Þegar ég innritaði mig í guðfræðina þá ætlaði ég alls
ekki að verða prestur. Prestsþjónusta hafði ekki hvarflað
að mér en ég vissi að guðfræðin tengist þjóðfræði og bók-
menntum með ýmsu móti. Guðfræðin er hluti af hug-
myndasögu mannkyns og þar er einnig að finna margvís-
lega þjóðfræði og ekki síst þá sem tengist hebreskri hug-
myndafræði.“
Þótt Hanna María ætlaði sér ekki að verða prestur og
henni leiddist lífið í Reykjavík þá stundaði hún engu að
síður námið í guðfræðideildinni af fullum krafti. En efað-
ist hún aldrei um að hún væri á réttri braut? Hún segir
aldrei hafa hvarflað að sér að hætta. I náminu hafi margt
höfðað mjög sterkt til sín og einkum þeir þættir, sem
tengist sögu og þjóðfræði.
„Á síðasta ári mínu í guðfræðideildinni varð ákveðin
breyting á afstöðu minni til kristindómsins. Þá var mér
gefin bók sem fjallar um kvennaguðfræði. Við lestur
hennar opnaðist mér nýr heimur. Það dýpkaði trúar-
reynslu mína og yndislegur tími tók við.“
Kvennaguðfrœðin
- hluti af þróun kirkjunnar
Undir lok guðfræðinámsins hélt Hanna María vestur til
Bandaríkjanna þar sem hún dvaldi í Tennessee hjá tilvon-
andi eiginmanni sínum, Sigurði Árna Sigurðssyni, sem
þar var við framhaldsnám í guðfræði. Hún kynnti sér
meðal annars kvennaguðfræðina frekar og skrifaði loka-
ritgerð sína um þau fræði.
„Þetta var yndislegur tími,“ endurtekur Hanna María á
meðan við göngum niður með Öxará og höfum hætt að
láta útsýni stofugluggans duga. Sigurður Árni hefur rölt á
undan með börn þeirra þrjú og heimilishundarnir, þau
Kofri og Varða, eru á þönum fram og til baka í snjónum,
fegnir örlitlu frelsi á stað þar sem þeir þurfa annars að
lúta lögum manna. En hvað er kvennaguðfræði? Er það
aðeins að breyta kynímynd almættisins og ávarpa guð
sinn með orðunum „móðir vor?“ Hanna María segir það
af og frá. Kvennaguðfræðin snúist ekki um kynímynd
Guðs almáttugs.
„Kvennaguðfræðin byggir á ákveðnum forsendum sem
fyrst og fremst eru grundvallaðar á reynslu kvenna. Og
það eru ekki aðeins vestrænar konur sem eru að fjalla um
guðfræði út frá reynslu sinni heldur má nefna dæmi um
konur frá öðrum heimshlutum. Það á alveg eins við um
þeldökkar konur og jafnvel þeldökka menn, sem skil-
greina guðfræði út frá sinni eigin reynslu, sem getur ver-
ið mjög frábrugðin þeim reynsluheimi sem við þekkjum.
Kvennaguðfræðin er fyrst og fremst ákveðinn lykill að
skilningi á guðfræðinni, sem er byggður á ákveðinni
reynslu. Mér varð þetta ljóst þegar ég fór að lesa mér til
og íhuga málið út frá forsendum kvenna.“
Hanna María segir að ýmis sjónarmið séu á meðal
þeirra er aðhyllist kvennaguðfræði. Þegar hún hafi verið
að kynna sér þessi mál vestra og vinna að lokaritgerð sinni
t
'eima er bezt 123