Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1996, Page 8

Heima er bezt - 01.04.1996, Page 8
til kandídatsprófs heima á íslandi, þá haft einkum borið á tveimur stefnum eða hópum. Annars vegar þeim, sem vildu vinna að framgangi kvennaguð- fræðinnar innan kirkjunnar, meðal ann- ars með breytingum á ýmsum áhersl- um. Hins vegar hafi verið konur, sem töldu hina kristnu kirkju svo fulla af karltáknum að henni yrði aldrei breytt og því viljað skilja sig frá henni og stofna sérstaka kirkju eða söfnuði. Þannig haft róttæknin verið mismikil á meðal þeirra sem aðhylltust þessar hug- myndir. Kvennaguðfræðin hafí sprottið upp úr þeirri baráttu kvenna sem átt hafí sér stað á undanfömum árum og tengist því á hvern hátt konur upplifi umhverfí sitt og samfé- lag. Hún hafí ekkert með það að gera á hvem hátt manneskjan ávarpi Guð þar sem Guð sé ekki kyngreind vera. Innan kirkjunnar megi hins vegar breyta ýmsum táknum þar sem karlímyndin sé í fyrir- rúmi. Hanna María nefnir ávarpið bræður í Kristi og segir að þar megi eins standa bræður og systur í Kristi. Hún nefnir einnig sálma þar sem karlímyndinni sé stillt upp. „Afram kristmenn krossmenn, kóngsmenn emm vér“ sé dæmi um slíka sálmagjörð. Þetta sé her- göngusálmur og þótt átt sé við krossmenn Krists, þá sem berjist fyrir Krist, séu táknin alfarið karl- kyns og líkingamar sóttar til her- mennsku þar sem menn berjist fyrir föðurland sitt. Hanna María segir kvennaguðfræðina ekki það eina sem kirkjan hafi tileinkað sér að undanfömu. Margvíslegar breytingar hafi átt sér stað í mannlegu samfélagi á síðustu árum og áratugum. „Þróunin hefur verið ör og samfélagið tekur sífellt breyt- ingum. Þannig hafa hlutverk fólks breyst og þá ekki síst hlutverk kvenna. Mér finnst mikilvægt að kirkjan þróist í takt við breytt samfélag. Með því móti tekst henni að halda hlutverki sínu, sem er að boða Guðs orð og hún verður að kunna að nota aðferðir samtímans á hverjum tíma. Þannig verður kirkjan að vera opin fyrir nýjungum án þess að glata innihaldi sínu eða hlutverki.“ Hanna María minnist dvalarinnar að Asum í Skaftár- Yngsta kynslóðin í náttúru- frœðslu hjá Hönnu Maríu. „Hinn þáttur starfsins snýr að náttúrunni og er ekki síður í uppáhaldi en prestsstörfm. “ Helgistund fyrir börn á Þingvöllum. „Aðstæðurnar bjóða upp á ýmiss konar form. “ tungu, þar sem hún þjónaði fyrst sem prestur og hvemig gróðurinn þrengdi sér upp í gegnum hraun Skaftárelda. Og hún lfkir kirkjunni við þennan gróður, sem geti þrengt sér upp um glufur þeirrar hraunbreiðu sem stundum þekji mannlífið. Nýr og gamall heimur Hanna María hefur tekið þátt í þeirri þróun, sem ein- kennt hefur kirkjuna, því sama vorið og hún lauk guð- Sunnudagaskólinn í Þingvallasókn við borðstofuborð sóknarprestsins. „Aðstæður sveitapresta eru víða þannig að heimilið verður vettvangur starfsins. “ 124 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.