Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1996, Page 10

Heima er bezt - 01.04.1996, Page 10
allt öðrum toga og voru raunar fyrsta áfallið í lífi mínu.“ Oft er rætt um að bameignir setji konum ákveðnar skorður á vinnumarkaði. Vinnuveitendur veigri sér við að ráða konur á barneignaskeiði til starfa af ótta við að þær verði frá að hverfa til að fjölga mannkyninu. Einnig að erilsöm störf henti ekki mæðrum á meðan börnin eru lítil. Um það getur sitt sýnst hverjum en koma fyrsta bams þeirra Hönnu Maríu og Sigurðar Arna í heiminn varð til þess að hún tók ákvörðun um að láta af prestskap. „Bamsburðarleyfið var stutt, ekki nema þrír mánuðir, og gerði það mér erfitt fyrir við að sam- eina umönnun barnsins því að rækja skyldur mínar við sóknar- bömin eins og ég vildi. Tilkoma barns er ætíð stór stund og fylgja því ýmsar skyldur sem falla ekki alltaf nægilega vel að þeim kröfum, sem gerðar eru til fólks á vinnumarkaði. Eg hreinlega treysti mér ekki til þess að sinna prestsstarfinu af þeim krafti sem ég taldi nauðsynlegt, ásamt því að annast ungbarn. Því ákvað ég að láta af störfum og svo fór að maðurinn minn tók við störfum sóknarprestsins á meðan ég einbeitti mér að upp- eldinu.“ Hanna María segir að þótt þau hjónin hafi tekið sameiginlega ákvörðun um þetta þá hafi hún aldrei verið fyllilega sátt við hana í hjarta sínu. En skömmu síðar hafi einnig komið upp sú staða, sem benti til að þau myndu ekki ílengjast í Skaftártungunni. „Okkur hafði dreymt um tvö samsíða prestaköll þannig að við gætum bæði starfað sem prestar án þess að þurfa að halda tvö heimili, jafnvel hvort í sínum landshluta. Þetta virtist í fyrstu vera fjarlægur draumur en þó fór svo að þessi möguleiki komst í augsýn þegar norður í Þingeyjarsýslu losnuðu tvö samsíða prestaköll, Staðar- fellsprestakall í Kinn og Hálsprestakall í Fnjóskadal.” „Samlokubrauð“ og draumastaða „Við sóttum um; ég um Hálsprestakall og Sigurður Arni um Staðarfell og við fengum bæði prestaköllin. Við bjuggum fyrst að Staðarfelli en síðar á Hálsi. Þingeyingar kölluðu þetta „samlokubrauðið“ og víst var þetta einstök staða, að hjón, sem bæði voru prestar, þjónuðu hvort sínu prestakallinu og brauðin lægju landfræðilega saman.“ En þótt þetta hafi verið draumastaða þeirra hjóna þá kom í ljós að draumastöðurnar voru fleiri og aftur ákváðu þau að leggja lykkju á leið sína. „Eftir eitt ár í samlokubrauðinu var rektorsstaða Lýð- háskólans í Skálholti auglýst laus til umsóknar. Heimir Steinsson var þá fyrir nokkru tekinn við stöðu þjóðgarðsvarðar og prests á Þing- völlum, þeirri stöðu sem ég gegni nú, og eftirmaður hans í Skálholti var einnig horfinn til annarra starfa. Þetta hafði verið drauma- staða mannsins míns og þegar tækifærið bauðst gat hann ekki lát- ið það ganga sér úr greipum. Sam- lokubrauðið var því leyst upp og hann fór suður til Skálholts til þess að stjórna skóla, en ég hélt áfram prestskapnum á Hálsi. Þegar þarna var komið sögu höfðum við eign- ast annað barn og nú hófst einn erfiðasti kaflinn í lífi mínu.“ Hanna María segir að það að vera ein með tvö lítil börn og starfa sem prestur í sveit hafi ekki verið auðvelt. „Á þessum tíma fékk ég til mín konu sunnan úr Skaftártungu, konu, sem ég hafði kynnst þegar ég var prestur að Ásum. Hún hafði „aðeins“ alið 12 börn og komið þeim öllum til manns, þannig að ekki verður annað sagt en hún hafi átt gott ævistarf að baki. Vera hennar að Hálsi varð mér ómetanlegur stuðningur þann tíma, sem ég var þar ein með börnin. Þann tíma gerði einnig mikið vetrarríki á Norðurlandi, meira en við Sunnlendingar eigum að öllu jöfnu að venjast og allar samgöngur urðu ákaflega erfið- ar. Ég spurði sjálfa mig stundum hvað ég væri að fást við þegar ég var að ganga síðasta spölinn heim að prestssetr- inu á Hálsi, ein í ófærðinni með nokkra innkaupapoka og litlu bömin mín í fanginu. Þessir erfiðleikar urðu til þess að ég lagði ekki í að búa og starfa áfram fyrir norðan. Þótt sárt væri að sleppa prestakallinu og yfirgefa það ágæta fólk, sem bjó þar þá varð sú ákvörðun ekki umflú- in að hverfa á braut. Ef til vill má kalla það annað áfallið í lífi mínu.” Alltaf valið mér baráttu Hanna María hélt suður til Skálholts þar sem hún tók til við uppbyggingu Skálholtsskóla ásamt manni sínum sem þá hafði gegnt rektorsstöðunni um eins árs skeið. „Ég hef alltaf verið einstaklega lagin að velja mér erfið og krefjandi hlutverk og mér finnst að ég hafi ævinlega staðið í baráttu þar sem ég hef fundið mér starfsvettvang. Ef til vill má orða það svo að ég hafi sjálf kosið mér það hlutskipti að berjast. Þegar ég settist í guðfræðideildina þá var aðeins ein kona starfandi prestur hér á landi, Auð- ur Eir Vilhjálmsdóttir en síðan bættust þrjár við, ég, Dalla Þórðardóttir, dóttir Auðar, og Agnes Sigurðardóttir. Við Með sr. Tómasi Guðmundssyni, prófasti Arnesinga á kirkjutröppum Þingvalla að lokinni vísitasíu. „ Umgjörð kirkjudyranna er sérstök og myndast ákqflega vel. “ 126 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.