Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1996, Side 15

Heima er bezt - 01.04.1996, Side 15
••••••• ••••••••••••••••••• voru taldir og eru meðal þeirra þess- ir: 1. Að skilkúpan í skilvindunni sé sem auðveldust til að komast að, til að hreinsa hana vel. 2. Að sem fæst stykki séu, sem daglega þarf að hreinsa, og að sem auðveldast sé að gera það vel. 3. Að gangverkið sé alveg inni- lukt í vélinni. 4. Að mjólkurfatið taki sem mest, og standi sem neðst, næst gólfi. 5. Að ekki séu bognar, mjóar pípur í skilkúpunni, eða aðrir krókar eða smugur, sem örðugt er að hreinsa vel. 6. Að sem auðveldast sé að bera á vélina daglega. 7. Að skilvindan kosti í útsölu hér, aðeins eðlilega mikið til samanburðar við verð hennar frá fyrstu hendi. Þjóðótfur 23. október 1892. Ofsaveður undir Eyjafjöll- um Ofsaveður mikið gerði undir Eyja- fjöllum, 28. f.m. Fuku þá tvö skip og brotnuðu í spón; var annað stórt skip, er notað hafði verið til sjóróðra í Vestmannaeyjum en hitt sexróinn bátur. Á Hrútafelli fuku um 100 hestar af heyi, er komið var í garð. I Hlíð rauf 20 hús og á Raufarfelli lamdi 13 kindur til dauðs. I grjótgarða rofnuðu stór skörð og sumir menn meiddust af grjótflug- inu. 10-20 grágæsir fundust eptir veðrið, sumar vængbrotnar og sumar lamdar til dauðs. Þykjast menn ekki muna jafnmikið ofsarok þar eystra. Þjóðólfur 13. október 1893. Minning Hinn 13. júní síðastl. andaðist Þur- íður Einarsdóttir, kona Jóns bónda Loptssonar sýslunefndarmanns á Vestri-Geldingalæk, tæplega fimm- tug, fædd 1845. Hún var dóttir Einars sál. í Gunn- arsholti Guðmundssonar, Magnús- sonar, en móðir Einars var Guðrún Pálsdóttir frá Keldum, er seinna gipt- ist óðalsbónda Guðmundi Brynjólfs- syni s.st., en móðir Þuríðar sál. er Vigdís Jónsdóttir, ættuð úr Skapta- fellssýslu, alsystir Jóns óðalsbónda í Fljótsdal, Helga sál. á Lambastöðum og þeirra systkina. Þuríður sál. var góð kona, stillt og hógvær, góðsöm og gestrisin, gaf sig ekki mikið útávið, en stundaði því rækilegar heimili sitt; hún var ástrík manni sínum og góð móðir barna sinna og fósturbarna; hennar er því almennt saknað og mest af þeim, er henni vóru nákomnastir. Hún var jörðuð á Keldum 24. júní og mátti fullkomlega heimfæra við það tækifæri orð þjóðskáldsins: „En hverju vensla-vinir tapa, vottinn má sjá á þeirra grát. “ Þjóðólfur 13. október 1893. Læknis- yfirlýsing Sonur minn, Sigurður Oskar, fædd- ist 21. apríl 1892, hraustur og heil- brigður að öllu leyti, en hálfsmánað- ar gamall veiktist hann af „influ- enza“ (la grippe), er einkum lagðist þungt á meltingarfærin og varð, upp úr því magaveiki (catarrhus gastricus gastroatasie). I 3 mánuði reyndi jeg öll þau „homöopatisku“ lyf, er ég hugði að hjálpað gætu, en það kom fyrir ekki. Ég sneri mér þá til „allopatha“ og fékk hjá þeim bæði meðalaávísanir og meðul í 9 mánuði; en þessar til- raunir þeirra til að lækna son minn heppnuðust þeim ekki, fremur en mér. Þrátt fyrir alla þessa meðalabrúk- un, ákveðið matarhæfi o.fl., hnignaði drengnum jafnan meir og meir. Magaveiki hans var orðin að búks- hlaupi (catarrhus intestinalis, inherit- is catarrhalis). En þá tók ég að láta son minn brúka Kína-lífs elixir V. Petersens, sem ég þegar áður hef mælt með. Hefur nú verið eytt úr 2 flöskum af bitter þessum (1/4 úr matskeið þrisvar sinnum á dag í kaffidropa), og mér er sönn ánægja að votta, að hið veika barn mitt er orðið alheilbrigt. Vil ég því ráða öllum, sem eiga börn er þjást af magaveiki eða tær- ingu, að reyna bitter þennan, áður en farið er að nota önnur lyf. í sambandi við þetta skal ég leyfa mér að geta þess, að hinn fyrrgreindi Kína-lífs-elixir hr. Petersens, hefur læknað 5 menn, er þjáðust svo mikið af sjósótt, að þeir þoldu ekki að vera á sjó. Ég réð þeim þá, að taka inn 5-9 matskeiðar af bitter þessum daglega, áður en þeir létu frá landi og er þeir væru komnir á sjó út. Nú eru þessir menn öldungis lausir við sjósótt (nausea marina). Þér, sem þjáist af sjósótt, skuluð því reyna bitter þenn- an! Að lokum skal þess getið, að ég hef keypt þennan Kína-lífs-elixir hjá hr. kaupm. M.S. Blöndal í Hafnar- firði. En varið yður á eptirlíkingum, landar mínir! L. Pálsson, lœknir. Kína-lífs-elíxirinn fœst hjá flestum kaupmönnum á Islandi. Til þess að vera vissir um að fá hinn ekta Kína-lífs-elixir, eru kaup- endur beðnir að líta vel eptir því, að V.P./F. standi á flöskunum í grænu lakki og eins eptir hinu skrásetta vörumerki á flöskumiðanum, Kín- verji með glas í hendi, og firmanafn- ið Valdemar Petersen, Fredrikshavn, Danmark. >•••••••••£»••••••••••• ÆtX. Heima er bezt 131 ##########################«###«###«#

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.