Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1996, Síða 19

Heima er bezt - 01.04.1996, Síða 19
Efað hrundið af mér fæ ykkur förusveinum. Ekki mun ég opna bæ oftarfyrir neinum. (Heiðrekur Guðmundsson, bls. 42.) Botnar Ásgríms og Heiðreks geta staðið sjálfstæðir og alveg eins verið fyrripartar vísnanna og sést þá betur að punktarnir eru óþarfir. I vísu Isleifs er sama líkingin í fyrstu og þriðju línu og svo ætti að koma komma á eftir rógburður.“ Þökkum við Hirti fyrir þennan fróðleik, en almennur fróðleikur um vísnagerð er alltaf vel þeginn, því mörg- um, sem eru að feta sig áfram í vísnagerð, verður allt slíkt til stuðnings. Áskorunin Halldór Einarsson í Gautaborg sendir Kára Kortssyni vísu í tilefni af yrkingum hans í 38. þætti og segir: „I 38. ljóðaþætti blaðsins, er hlutur Kára Kortssonar allumfangsmikill og honum til sóma, eins og vanalega. Mig langar að heiðra hann með vísu, ófullkomin sléttu- bönd:“ Ljóðin Kári yrkir enn, allvel bindur málið. Fljóðin heillar, meira menn, meitlar vísnastálið. Og afturábak verður vísan svona: Vísnastálið meitlar menn, meira heillarfljóðin. Málið bindur allvel enn, yrkir Kári Ijóðin. í fyrrgreindum þætti var „hirðskáldið“ okkar, Kári, að svara vísum sem til hans var beint. Og að sjálfsögðu báð- um við hann að kvitta fyrir vísu okkar ágæta Halldórs í Gautaborg, sem hann ákvað að gera á sama hátt, með sléttuböndum: Um Kára: Reynir heilla fögur fljóð frakkur stundum Kári, leynir ekki sælusjóð sínum þessi jjári. Sem verður, afturábak lesið: Fjári þessi sínum sjóð, sælu ekki leynir, Kári stundum frakkur fljóð fögur heilla reynir. Og um Halldór: Böndin sléttu vefur vel vísmáll halur Ijóða, löndin bœði þokka þel, þegnsins Flalldórs bjóða. Afturábak: Bjóða Halldórs, þegnsins þel, þokka bæði löndin, Ijóðahalur vísmáll vel, vefur sléttuböndin. Látum við þá vísnamálum lokið að sinni en minnum á heimilisfangið: Heima erbezt, Pósthólf 8427, 128 Reykjavík. Hlaðvarpinn • •• framhald af bls 120 þveita, virði hvorki landamæri né heimshöf, svo sem t.d. mengunin, sem af slíku hlýst. Ja, það er ýmislegt, sem hinn hraðvirki, vestræni heimur, þarf að horfast í augu við á næstu áratugum, og nú fer vaxandi þörfin á að mannkyn hugsi og framkvæmi sem heild en ekki einstaklingar, hópar eða einstakir stjórnmálamenn. Svona er þessi stöðuga þróun í öllu sem til er, hvort sem um er að ræða náttúru, dýr eða mannfólk. Heimurinn í dag er eins og hann er vegna þess að hann hefur stöðugt verið að þróast og breytast, allt frá því hann varð til í ár- daga. og það er straumur sem við fáum ekki breytt. Okkur er óhjákvæmilegt að fylgja honum, við erum hluti af honum og hans stefna er aðeins ein: Fram á við. Það er talsverður sannleikur í því, sem einn ágætur maður sagði eitt sinn: „Þetta fer allt einhvem veginn, það er óþarfi að vera að gera sér einhveija rellu út af því.“ Jú, satt er það, en samt er það nú í eðli manna að velta vöngum yfir framtíðinni og reyna að sjá hvert straumurinn liggur. Okkur er gefið að stýra innan ákveðins ramma, jafnt í stóm sem smáu. Og það tekst okkur vonandi að gera nokkuð farsællega, hér eftir sem hingað til. Guðjón Baldvinsson. .Heimaerbezt 135

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.