Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1996, Side 20

Heima er bezt - 01.04.1996, Side 20
Ingvar Björnsson: Þó að tnikið hafi verið ritað um jarðelda þá, er geysuðu hér árin 1783-84, og hörmungar þœr er þeir leiddu yfir þjóðina, finnst mér að ekki hafi verið farið nógu mörgutn orðum um manninn, setn bar höfuð og herðar yfir samtíð sína, með hjálparstarfi sínu við alla þá, er þar áttu um sárt að binda. Manninn, sem lagði dag við nótt og heilsu sína að veði í þeitti hildarleik. Manninn, sem talið var, að hefði ttteð kyngi- krafti bætiar sinnar, stöðvað œgimátt hraunflóðs þess, sem stefndi á yfirfulla og lokaða kirkju safnaðar hans. lerkurinn sím Jón Steíngrímsson SZ^Ó að ég viti, að ekki sé unnt að gera máli hans mikil skil í stuttri grein, langar mig til að vekja hér athygli á ýmsu, sem ég hef týnt saman um þennan einstaka afkastamann á svo mörgum sviðum. Jón Steingrímsson var fæddur 10. september árið 1728 að Þverá í Blönduhlíð í Skagafirði. Foreldrar hans voru hjónin Steingrímur Jónsson og Sigríður Hjálmsdóttir, sem bæði ráku ættir sínar til mætra klerka og kennimanna. Vorið 1737, sem var gott framan af, gerði skyndilega mikið fárviðri, svo að margir misstu fé sitt að mestu eða öllu leyti. Margir menn, sem voru á norðurleið, fórust í þessum veðurham, er var svo harður, að fuglar úr Drang- ey fuku langt á land upp. Steingrímur og Sigríður misstu fé sitt, utan fjörutíu kindur, sem tveir for- ustusauðir björguðu í hús. Stuttu síðar, eða hinn 6. júní 1737, andaðist Stein- grímur, faðir Jóns, og þegar hann lést, áttu þau hjónin fjögur böm, og hið fimmta bar Sigríður undir belti sínu. Með hjálp góðra manna tókst Sig- ríði að halda áfram búskap og losna þar með við að tvístra búi sínu og börnum, en það varð oftar en ekki neyðarúrræði þeirra kvenna, sem misstu maka sína. A þessum tímum var það ekkert sjálfgefið, að ekkjur fengju að halda ábúðarrétti jarða sinna, nema því aðeins að þær giftust strax aftur. Sér til aðstoðar við bústörfín réð Sigríður ráðsmann, sem Ólafur hét, og var hann hjá henni nokkurn tíma, eða uns hann gifti sig og hóf búskap sjálfur. Meðan Ólafur var ráðsmaður, hafði Jón sig lítt í frammi við bústörfm, enda lynti þeim ekki saman. En þegar Ólafur var farinn, tók Jón sig á og fór nú að ganga að slætti, dengdi ljái og smíðaði ýmis verkfæri, sem hann vanhagaði um, en hélt þó áfram sjálfsnámi, svo sem kostur var á. Með góðra manna aðstoð komst hann í Hólaskóla árið 1744, þá aðeins 16 ára að aldri. Fyrsta vor sitt í skólanum varð Jón lægstur í einkunnum, næsta vor í miðjum öðrum bekk og hið þriðja með hæstu einkunn yfir allan skólann. Þessi framganga varð Jóni erfíð, því að höfðingjar og synir þeirra litu það ekki hýru auga, að hann, ekkjusonur- inn, skyldi verða þeim efri. Það má lesa á milli lína í ævisögu Jóns, að einmitt það, að hann skyldi skara fram úr öðrum, sem töldu sig honum æðri, hafi orðið honum mikill fjötur um fót og upphaf margra þeirra deilna, sem hann lenti í við ýmsa stór- bokka allt til æviloka sinna. A skólaárum sínum samdi Jón mörg lærdómskver fyrir aðra nemendur og sjálfan sig, en þessi kver seldi hann að mestu síðar. 136 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.