Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1996, Side 29

Heima er bezt - 01.04.1996, Side 29
blóði storkið sverð meðferðis. Sagði hann að vínberserkir hefðu lagt undir sig hús hans og ástkonu í Selsvör. Hann hefði náð sverði sínu og lagt til orrustu. Lauk þeim fundi svo, að hann felldi þrjá, særði fjóra en fimm komust undan á flótta. Sýndi hann sverðið blóðstorkna til sannindamerkis. Eftir nákvæma skoðun, kvað einn nærstaddra upp þann úrskurð, að hænsnablóð væri á sverðinu. Móðg- aðist þá Pétur og sagði leitt að svo væri komið fyrir afkomendum Egils á Borg, að þeir þekktu ekki lengur mannsblóð frá hænsnablóði. Páll Torp og Pétur Annan maí, 1977, var Pétur, sem oftar, í Pósthússtræti að selja frí- merki og fálkaorður. Bar þá Pál Torp þar að og heilsaði hann Pétri kump- ánlega. Pétur leit seinlega við Páli og spurði hver hann væri. „Þekkirðu mig ekki, ég er Páll Torp, skipstjóri á stærsta skipi ís- lendinga, ég var áðan að skrifa undir kaupsamning skipsins?" „Eg met manngildi skipstjóra ekki eftir stærð skipa þeirra,“ ansaði Pét- ur, „ég er Pétur Hoffmann Salómons- son, skipstjóri á minnsta skipinu.“ Sætsúpan Haraldur Sveinsson var um tíma kokkur vegagerðarmanna á Fjarðar- heiði. Dag nokkurn var vel heppnuð sætsúpa með rúsínum og sveskjum á borðum og tóku menn hraustlega til matar síns. Einkum bragðaðist súpan vel. Haraldur sá að súpan mundi ekki nægja. Hann tók þá út úr sér fölsku tennurnar og setti þær í buxnavas- ann. Síðan skákaði hann tarínunni inn á borð með því, sem eftir var af súpunni og bað piltana að skila sér gómnum ef þeir finndu hann. Varla þarfa að taka það fram að af- gangur varð af súpunni. Lárberjalaufið Héraðsmaður flutti á Seyðisfjörð og hóf þar verslun í litlu húsnæði. Hann hafði enga reynslu sem kaup- maður en reyndi að mæta kröfum viðskiptamanna eftir getu. Eitt sinn kom kona í verslunina og bað um lárberjalauf. Það var ekki til. Þótti honum það miður og pantaði þegar 100 kíló. Þegar varan kom, reyndist umfangið meira en geymsla hans leyfði og entust birgðirnar Seyðfirð- ingum í áratugi. Þýskur kafbátur heimsækir Seyðisfjörð Nótt eina veturinn 1941, var fólk að koma af dansleik á Þórarinsstaðaeyri. Sást þá til þýsks kafbáts, sem sigldi inn með Eyrunum, nálægt landi. A móts við Ölfuseyri var kafbátagirðing með hliði miðfjarðar. Gætti vopnað varðskip hliðsins. Þegar kafbáturinn nálgaðist girðing- una, sneri hann út með henni og lagð- ist fáum föðmum frá varðskipinu, með bakborðshlið að og horf út á fjörð. Varðskipsmenn urðu einskis varir. Hjálmar sýslumaður var látinn vita símleiðis um þýsku gestina og kom hann boðum til hemámsliðsins. Á Vestdalseyri var fallbyssuvirki og upp af Eyrinni voru sterkir ljóskastar- ar, sem lýstu út eftir öllum firði. Var þeim beint að varðskipinu og kafbátn- um og mun það ásamt loftskeytaboð- um hafa vakið varðmanninn á stjóm- palli varðskipsins. Sást þá frá landi að menn hlupu að kanónu, sem var á palli á framþilfari varðskipsins og beindu þeir henni að kafbátnum. Vegna nálægðar óvinarins gátu varð- skipsmenn ekki lækkað byssuna nægilega til þess að koma skoti á hann. Kafbáturinn tafði þama um hríð, en hélt síðan út fjörð óáreittur og kafaði. Varðskipið var ekki búið djúpsprengj- um. Vora því send á vettvang skip með þann búnað, sem legið höfðu inni við bæjarbryggju, og vörpuðu þau djúpsprengjum víða um fjörðinn, allt að Brimnesi. Undan Brimnesi kom upp spýtnabrak og olíubrák. Töldu enskir sig þá hafa grandað kaf- bátnum og hættu eftirförinni. Daginn eftir var Þórarinn Daníels- son á mb. Gulltoppi undir Skálanes- bjargi að draga línu. Kom þá þýskur kafbátur úr djúpinu og sigldi út með Bjargi. Var áhöfnin á þilfari og veif- uðu kafbátsmenn til Gulltoppsmanna. Þannig komu kafbátsmenn boðum til þeirra ensku, að siglingu þeirra um þessar slóðir væri enn ógnað. Spýtna- brakinu og olíunni munu kafbátsmenn hafa skotið út í blekkingarskyni og mun það alþekkt herbragð. Rjúpnahópurinn Eitt sinn, sem oftar, fór fjöldi Seyðfirðinga til rjúpna og voru komnir hátt til fjalla snemma morg- uns. Nokkru síðar fór Stefnir Run til veiðanna og hafði nestað sig með brennivíni. Stefnir mæddist fljótt á göngunni og sótti á hann þorsti. Sett- ist hann þá niður í neðstu brekkunni og gerði sér gott af nestinu. Þegar flaskan var tóm, stillti Stefn- ir henni upp sem skotmarki. Skaut hann síðan í ákafa og reyndi að hæfa flöskuna, en árangurslaust. Gekk á þessu þar til skotin þraut. Lítið hafði verið um rjúpu þennan dag og þegar hinir kappsamari veiði- menn uppi í fjallinu, heyrðu skot- hríðina neðan úr dalnum runnu þeir á hljóðið. En vonbrigðin voru mikil þegar þeir sáu hvernig ástatt var. Merar-Jón Jón Þorsteinsson var mikill hesta- maður og fékk af því viðurnefnið Merar-Jón. Hann annaðist árum sam- an vöruflutninga fyrir Johan Ellerup, sem átti Apótekið og Efnagerð Seyð- isfjarðar. Hafði Jón bæði hestvagn og hestasleða til starfans. Þegar hús- in í Seyðisfjarðarkaupstað voru núm- eruð, fékk Jón þann starfa að festa númeraplötumar á húsin. Karl Jónas- son átti leið um þar sem Jón var að festa upp húsnúmer. „Sæll vert þú, nú-mera Jón,“ sagði Karl, um leið og hann gekk hjá. Heima er bezt 145

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.