Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1996, Síða 39

Heima er bezt - 01.04.1996, Síða 39
njóta innblásinna hugmynda frábærra skálda og bókmenntasnillinga, frá svið- um ofar þessu og hér hef ég setið og skrifað ljóð til hennar, sem hugur minn er jafnan hjá. Úr þessum sal var gengið út í garðinn, sem skartaði blómum. Ég hafði alltaf elskað blóm, sem tjáðu mér margt. Nú virtust þau hvísla að mér björtum draumamyndum og hugrenning- um. Allt kringum húsið var gangstétt og trén hneigðu sig út yfir vatnið, einkum í einangruðu horni hans, sem var umgirt burknum og blómarunnum, en tré skýldu því að aftan. Þetta skot lá nokkuð frá húsinu og varð brátt eftirlætisafskot mitt. Jarðvegurinn var vaxinn mjúkum græn- um mosa, mosategund, sem þið hafið aldrei augum litið á jörðinni. Þar var sæti, sem ég sat oft í og horfði til jarðar og reyndi að gera mér grein fyrir hvar heimili ástvinu minnar væri. Gegnum ótal milljóna mflna veg gátu hugsanir mfnar náð henni og hennar mér, því seg- ulstraumur ástar okkar lágu nú á milli okkar og ekkert megnaði framar að að- skilja okkur. Þegar ég hafði séð allt þetta og dáðst að því, fylgdu vinir mínir mér aftur til hússins og við settumst allir að fagnaðar- veislu, sem þeir, vegna kærleika, höfðu búið mér. Veisla sú var sannarlega vel heppnuð. Þar voru rædd áform, er stuðl- að gætu að þróun og hamingju hvers og eins og við skáluðum í víni, sem ekki sveif á neinn, en hressti og endurnærði alla. Þar voru einnig framreiddir lostædr ávextir og annað góðgæti, allt ávextir, sem vinátta og ást gestanna í minn garð, hafði skapað. Bikar gæfu minnar virtist barmafullur. Mér leið eins og í indælu draumaástandi, sem ég hlyti brátt að vakna úr. Loks kvöddu vinimir og fóru allir, nema foreldrar mínir, sem fylgdu mér upp í herbergin á efri hæð, sem voru þrjú talsins. Tvö þeirra voru gestaherbergi, fögur og búin vistlegum húsmunum. Þriðja herbergið var fyrir sjálfan mig, ætlað til hvíldar. Þegar inn kom vakti hvílan mesta at- hygli og vakti með mér meiri furðu en nokkuð annað. Hún var búin snjóhvítu klæði af fínustu gerð, bryddað gullnum litum. Við gaflinn voru meitlaðir tveir englar, eins og skógardísimar, en úr feg- ursta alabastri. Þeir voru í yfimáttúru- legri stærð og höfuð þeirra og vængir námu við loftið. Þessar tvær englamynd- ir voru fullkomnar að gerð og yndis- þokka. Fætur þeirra námu vart við gólfið svo þær virtust helst svífa yfir rekkjunni. Þær voru karl- og kvenkyns, karlengill- inn bar hjálm á höfði og brugðinn brand í annarri hendi en kórónu í hinni. Vöxtur hans og limir var fullkomið og meitlaðir andlitsdrættir hans sýndu styrk og mildi, í mínum augum var mynd þessi konung- leg. Kvenengillinn við hlið hans var lægri vexti, en dásamlega fögur. Úr and- liti hennar skein kvenlegur hreinleiki og fegurð. Augun voru stór og mild, þó þau væru meitluð í alabastur, hárskrúð huldi nær andlit og axlir. I annarri hendi hélt hún á sjö strengja hörpu en hin höndin hvíldi á öxl karlengilsins. Höfuð hennar hvíldi við annan arminn og á því bar hún sveig af hvítum liljum. Andlitsdrættirnir voru í senn svo fagrir, með móðurlegri ntildi, að þeir minntu helst á sjálfa guðs- móðurina. Báðar voru þessar styttur fegurstu listaverk, sem ég hafði augum litið, svo mér varð um stund starsýnt á þær. Að lokum sneri ég mér til föður míns og spurði hvernig slík listaverk væru komin í herbergi mitt og hví þær hefðu vængi þar, sem mér hefði verið sagt að englar hefðu ekki vængi. Hann svaraði: „Sonur minn, þessar fögru styttur eru gjöf frá móður þinni og mér og við vild- um gjarna að þú hvfldir í skugga vængj- anna sem tákn þeirrar verndar, sem við viljum veita þér. Þær hafa vængi, því þeir eru táknrænir fyrir englasviðið. Ef þú athugar þær nánar muntu sjá að vængirnir eru hluti klæðnaðarins, sem hylur líkami þeirra og því ekki samvaxn- ir líkömunum eins og listamenn jarðar- innar gera þá. Vængirnir tákna auk þess hæfni englanna til þess að berast á vængjum inn í sjálfan himininn. Skín- andi hjálmar og sverð tákna stríð, hjálm- urinn stríð skynseminnar gegn villum, myrkri og kúgun. Sverði hermannsins á stöðugt að beita gegn lægri hvötum hans. Kórónan er tákn dyggðar og sjálfsafneit- unar. Harpan í hendi konunnar táknar að hún er engill frá sviði hljómlistarinnar og sveigur hvítra lilja táknar hreinleika og ást. Hönd hennar, sem hvflir á öxl mannsins, táknar að hún sækir styrk og þrótt frá sterkum líkama hans, en í and- litsfalli hennar er hin viðkvæma ást og hlíf, sem móðirin veitir. Hún er lægri en karlmaðurinn, því hjá þér eru kær- leikseinkennin sterkari þeim kvenlegu. Karlengillinn táknar kraft og vernd, kvenengillinn hreinleika og ást. Jafn- framt sýna bæði að hvorugt er fullkomið án hins.“ Ég verð þó að viðurkenna að jafnvel í þessu fagra heimili, fann ég oft til ein- manaleika. I þessu heimili, sem ég hafði áunnið mér sjálfur, fannst enginn til að njóta þess með, en mér hafði ætíð fundist gleðin tvöföld þegar einhver naut hennar með mér. Sá förunautur, sem ég þráði mest, var enn á jörðinni og ég vissi, því miður, að enn rnundi líða langur tími þar til við gætum sameinast. Tryggur vinur minn, var kominn á æðra svið og Hussein langt ofar okkur báðum. Þó ég sæi þá af og til ásamt ást- kærum foreldrum mínum, þá var þó eng- inn góður félagi að deila lífinu með, eng- inn sem beið mín þegar ég kom heim og enginn, sem ég gat beðið eftir. Ég var oft á jörðinni hjá ástvinu minni en ég fann að vegna þroska míns í andaheimi gat ég ekki, sem áður, dvalið þar lengi í senn. Nú verkaði það á sál mína eins og ég dveldi í þokukenndu andrúmslofti eða í kolanámu og því varð ég oftar að leita hressingar og hvíldar í andaheimum. Þar var ég vanur að sitja í yndislegum her- bergjunum andvarpandi: „Gæti ég aðeins fengið einhvern að tala við, einhverja sál með sömu hugðar- efni, sem ég gæti rætt við um allt, sem fyllir huga minn.“ Því var það að ég fagnaði komu Tryggs og tillögu hans. Hann sagði: „Ég er kominn til þín á vegum manns, sem er nýkominn á þetta svið, en er enn- þá heimilislaus og óskar að fá inni hjá einhverjum vini, sem er betur settur en hann. Hann á enga ættingja hér og því hélt ég að þú mundir fagna félagsskap hans.“ „Ég mun sannlega gleðjast yfir að opna heimili mitt vini þínum.“ Tryggur hló: „Ætli hann sé ekki einnig vinur þinn, þú þekkir hann, það er Bene- detto.“ „Benedetto!" hrópaði ég forviða og glaður. „Þá skal hann vera enn velkomn- ari, komdu með hann sem fyrst.“ „Hann er þegar hér og bíður við hurð þína. Hann vildi ekki fylgja mér inn fyrr en hann væri viss um að þú byðir hann velkominn.“ „Enginn er velkomnari, sagði ég. Við skulum því sækja hann strax.“ Því næst gengum við að útihurðinni og þar stóð hann, mjög breyttur í útliti frá því ég sá hann síðast í hinni hræðilegu borg á neðra sviði. Þá svo sorgmæddur, þjáður og niðurbrotinn, en nú bjartur, í snjóhvítum kufli eins og ég og þó angur- værð hvíldi enn yfir andliti hans, þá var bæði friður og von í augum hans. Nióurlag í næsta blaði k Heima er bezt 155

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.