Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.1997, Síða 6

Heima er bezt - 01.09.1997, Síða 6
/ heiti Ólafur Þór Hallgrímsson og er Austfirð- ingur að ætt, fæddur á Arnheiðarstöðum í Fljótsdalshreppi, 18. september 1938. Foreldrar mínir voru Hallgrímur Helgason (f.29.08.'09 - d.30.12. '93) og Laufey Ólafsdóttir (f. 31.05/12), bæði ættuð úr Fellahreppi. Faðir minn var fæddur á Refsmýri í Fellum, en ólst upp á kirkjustaðnum Ási. Móðir mín var frá Skeggjastöðum og þau voru sem sagt bæði Fellamenn, þó að það ætti fyrir okkur að liggja að setjast að í Fljótsdals- hreppi. Eg er næstelstur af sex systkinum. Elstur er Helgi (f. 11.06/35) náttúrufræðingur á Egilsstöðum, þá kem ég, síðan kemur Agnar (f. 20.06/40) cand. mag., búsettur á Egilsstöðum, þá kemur Guðsteinn (f. 07.03/45) sem er bóndi á Teigabóli í Fellum, síðan Guðrún (f. 27.05/48) húsmóðir og starfsmaður Byggðastofnunar á Akureyri og svo Bergljót (f. 01.03/52) húsfreyja og ferðaþjónustu- bóndi, Haga í Aðaldal. Móðir mín er nú 85 ára og er bú- sett á Egilsstöðum. Foreldrar mínir voru í húsmennsku á Arnheiðarstöðum og byrjuðu sinn búskap þar. Síðan byggðu þau nýbýli 1942 út úr Arnheiðarstöðum, sem heitir Droplaugarstaðir. Það er mitt bernskuheimili. Droplaugarstaðir er ysti bær í Fljótsdalshreppi næst Fellahreppnum. Ég er alveg alinn upp í sveit þar sem ég átti mjög góða æsku og gott bernskuheimili. Sveitin hefur alltaf átt mikil ítök í mér og ég er þakklátur fyrir að hafa fengið að alast þar upp. Ég er afar mikill sveitamaður í mér og held að ég verði það alltaf þó að ég hafi einnig dvalið mikið í höfuðborginni. Ég ólst upp við venjuleg sveitastörf á venjulegu sveita- heimili. Foreldrar mínir voru með blandað bú. Fjárbúið var stórt og ég fór að vinna öll þessi venjulegu störf strax og kraftar leyfðu, eins og allir gerðu á þessum tíma. Bernskan var afar ljúfur tími og frá Droplaugarstöðum á ég margar góðar minningar. Eins og ég sagði þá fórum við börnin mjög snemma að vinna og höfðum gott af. En þó að okkur væri haldið vel að verki þá var reynt að hafa einhver frí um helgar og brugðum við okkur þá gjarnan bæjarleið. Eitt sinn fórum við þrír bræðurnir og gengum á Snæfell, sem er eitt hæsta fjall landsins. Það var árið 1957, mjög eftirminnileg og skemmtileg ferð. Á heimilinu hjá okkur var föðuramma mín, Agnes Pálsdóttir. Hún dvaldi hjá okkur allt til dauðadags 1970. Móðuramma mín, Guðlaug Sigurðardóttir, frá Holti í Fellum, var einnig hjá okkur tíma og tíma. Þessar gömlu konur höfðu áhrif á okkur sem ég tel hafa verið mjög til góðs. Einnig var á heimilinu hjá okkur gamall maður, Helgi Jakobsson. Hann hafði komið með foreldrum okk- ar frá Arnheiðarstöðum og var hjá okkur um ára bil. Helgi var mjög gamall og lasburða. Hann var mest við rúmið, gat þó setið í stól en gat lítið hreyft sig. Við gátum þó spjallað við hann og ég held að við börnin höfum haft gott af því að hafa þetta fullorðna fólk á heimilinu. Þau fræddu okkur um ýmislegt sem fróðlegt var. Prófpredikun í kapellu Háskólans 29. maí 1981. Ég fermdist í Valþjófsstað 14. júní 1953. Þann dag var yngsta systir mín, Bergljót skírð. Séra Marinó Kristins- son sá um ferminguna. Sr. Marinó var giftur Þórhöllu Gísladóttur , frænku minni, og var góður vinur okkar. Sr. Marinó var mikill söngmaður og glæsimenni. Hann var þekktur söng- og gleðimaður. Við gengum fjögur til spurninga hjá honum, viku fyrir ferminguna og fórum þá ríðandi, því ekki var kominn bíll á heimilið. Á fermingardaginn fengum við far með nágranna, sem átti stóran hertrukk. Við stóðum á pallinum. Svo safnaði hann saman fólki á leiðinni og fyrir rest var pallurinn orðinn þéttsetinn. Þetta þótti allsérstakur ferðamáti á fermingardaginn, en við vorum auðvitað mjög fegin að fá far. Fermingarveislan var svo haldin nokkrum dögum seinna, vegna þess að við komum svo seint heim á ferm- ingardaginn. Veislan var mjög ánægjuleg, nágrönnum og skyldfólki boðið í betra kaffi. Föðuramma mín gaf mér úr í fermingargjöf, sem ég átti lengi. Þetta var eftirminnilegt og skemmtilegt. Við systkinin vorum alin upp í guðsótta og góðum sið- um. Við sóttum kirkju í Valþjófsstað, en einnig að Ási í Fellum. Þangað var styttra að fara. Móðursystir mín bjó í Ási og þangað var mikill samgangur. En þó haldið væri vel að vinnu, var alltaf reynt að fara til messu þegar messað var. Skólaganga og kennsla Ég var í barnaskóla í minni sveit, í Fljótsdalnum. Þar var farskóli sem starfræktur var í um það bil 5 mánuði á vetri. Þá var skólinn á bæjunum í sveitinni, mánuð í senn á hverjum bæ. Þá var skólinn færður á annan bæ og svona gekk þetta koll af kolli. Við vorum ekki í skólanum allan veturinn samfellt. Oft vorum við hálfan mánuð í einu og svo hálfan mánuð heima og lærðum þá þar. Þetta var því 322 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.