Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.1997, Blaðsíða 10

Heima er bezt - 01.09.1997, Blaðsíða 10
um kennarastöðu þar. Aðal astæðan fyrir þvi að við fórum frá Laugum var sú að við höfðum ekki nægilega tryggt húsnæði, og svo var nú eitthvað sem togaði í mann austur. Fyrsti hluti Hallormsstaðaskóla var tekinn í notkun á miðjunr vetri 1967. Fyrsta veturinn á Hallormsstað vorum við bara tveir kennarar, ég og Guðjón Jónsson frá Eskifirði. Við Þórhildur áttum eftir að ílengjast þarna töluvert. Fyrst vor- um við hjá foreldrum hennar en fluttum síðan í skólann, í íbúð þar. Svo var það haustið 1969 sem við fluttum að Sólheimum sem er í Hall- ormsstaðaskógi. Það er gamalt steinhús sem foreldrar hennar áttu og við gerðum upp. Á sumrin vann ég alltaf hjá Skógrækt ríkisins á Hallormsstað og byrjaði reyndar þar fyrst 1962, vorið sem ég lauk kennaraprófi. Þarna vann ég svo nánast á hverju sumri ffam til ársins 1980. Árin á Hallormsstað voru góð, þó að auðvitað gengi á ýmsu. Skólinn var nýr og í mótun, því fylgja oft ýmsir vaxtarverkir. En svo er það eins og oft er í lífinu, að ekki fer allt eins og maður ætlar. Það komu brestir í hjónaband okkar 1973 og við skildum að skiptum. Þórhildur fór með börnin og flutti að Laugum. Það var úr vöndu að ráða um hvað gera skyldi, fyrst að þessi breyting varð á. Það endaði með því að ég tók mér ársfrí frá kennslu, fór suður og settist í guðfræðideildina. Með prestum í Húnaþingi á héraðsfundi á Skagaströnd, 13. september 1981. Ætlaði að verða djákni Ég ætlaði mér ekki að verða guðfræðingur, fékk leyfi til að sækja tíma í deildinni, án þess þó að taka nokkur próf. Þennan vetur fékk ég nasasjón af því hvernig þetta nám var. Það sem lá að baki var það að um þetta leyti var svo kall- að djáknanám í umræðunni. Þá var miðað við einn vetur í guðfræðideild. Þá hafði verið vígð- ur einn djákni, Einar Einarsson í Grímsey. Hann tók einn vetur í guðfræðideildinni og starfaði í Grímsey, við hlið prestanna á Akureyri. Hann sá um predikanir, barnastarf og fleira. Það vakti fyrir mér að verða djákni og sá möguleiki var ræddur. En það kom í ljós að ekki var grundvöllur fyrir djáknanáminu svo að það gufaði upp. Mér líkaði mjög vel í deildinni og var afar vel tekið. En þar sem ég var aðeins í ársleyfi fór ég aftur og kenndi einn vetur á Hallormsstað. Ég bjó áfram að Sólheimum og dvaldi þar svo áfram á sumrin með börnin hjá mér, lengi vel, og vann við skógræktina. Eftir miklar vangaveltur hætti ég sem kennari og sótti um inngöngu í guðfræðideildina. Ástæðan var fyrst og fremst þessar breytingar á mínum persónulegu högum og svo einnig að ég hafði alltaf haft mikinn áhuga á trúmál- Með börnunum á fermingardegi Laufeyjar. Sitjandi frá vinstri: Laufey og Ólafur. Standandi: Egill og Páll. um. Móðir mín var mjög trúuð kona og ég hafði sterka trú úr mínum foreldrahúsum. Ég hafði líka alltaf haft mikinn áhuga á kirkjunni og öllu sem henni við kom og hafði starfað innan hennar. Ég var líka óspart hvattur til að fara í guðfræðinámið af mörgum góðum mönnum og þar á meðal af Þórarni Þórarinssyni, mínum gamla læri- föður. Það var líka ómetanleg reynsla að vera þennan fyrsta vetur í guðfræðideildinni og hafði auðvitað áhrif á þessa ákvarðanatöku, þar sem ég hafði kynnst deildinni dálítið. Um þetta leyti var deildin líka að opnast. Áður urðu menn að hafa stúdentspróf, en ég hafði bara mitt kennarapróf. Meðan ég var í þessu námi voru töluvert 326 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.