Heima er bezt - 01.09.1997, Page 12
Hjónin með Guðfmnu dóttur sinni á fermingardegi hennar, 26. maí 1996.
aði mig að hugsa um það að vera
þarna 5-6 ár. Fannst það óratími og
gerði mér engar grillur með það.
Ég bjóst ekki við því að klára og
ákvað bara að sjá hve langt ég
kæmist. En ég á mjög góðar minn-
ingar frá þessum tíma, bæði við
nám, félagsstörf og kynningu við
allt þetta góða fólk.
En allt tekur enda og ég lauk
námi 29. maí 1981. Síðasti liðurinn
í prófinu eru prófpredikanir og þær
fluttum við 29. maí. Það var mjög
eftirminnilegur dagur. Þá predika
guðfræðingar fyrir prófdómendum.
Þarna var margt fólk komið til að
fylgjast með útskriftarnemunum.
Þar á meðal var Þórarinn Þórarins-
son, en hann hafði fylgst með mér
allan tímann. Hann bar mikið lof á
predikunina mína og sagði það við
mig á eftir:
„Hún bar alveg af, þín predikun.“ Ekki veit ég nú hvort
það var, en Þórarinn hafði alltaf mikinn metnað fyrir
hönd Eiðamanna, eins og hann sagði, svo var hann sjálfur
guðfræðingur.
Sumarið áður, 1980, fór ég í starfsþjálfun á Akureyri,
hjá prestunum þar. Það var einn liður í náminu að guð-
fræðinemar færu tvo mánuði út á land og ég fór til Akur-
eyrar. Þar fór ég á elliheimili, predikaði í Akureyrar-
kirkju, fylgdist með prestverkum og lærði af prestunum.
Þetta voru þeir sr. Pétur Sigurgeirsson og sr. Birgir Snæ-
björnsson. Þeir reyndust mér sem sannir bræður.
En þegar ég útskrifaðist þá stóðu málin þannig að Ból-
staðarprestakall í Austur- Húnavatnssýslu var laust og ég
ákvað að vígjast þangað. Þá hafði verið prestur þar sr.
Hjálmar Jónsson. Hann var búinn að koma til mín og
hvetja mig til að sækja um Bólstað, því ekki var honum
sama um hver kæmi þangað. Mér leist vel á það, þetta var
í sveit og sveitin átti alltaf sterk ítök i mér. Einnig hafði
vígslufaðir minn sr. Sigurbjörn Einarsson hvatt mig. Það
varð úr að ég sótti um og þremur dögum seinna 31. maí
1981 var ég vígður þangað. Það var einn af þessum stóru
dögum í lífi mínu.
Við vígðumst saman þrjú, sr. Dalla Þórðardóttir á Mikla-
bæ, sr. Torfi Hjaltalín á Möðruvöllum og ég. Við vorum
vígslusystkini og fór vel á með okkur þremur. Þetta var fal-
legur dýrðardagur, glampandi sól og heitt. Ég var settur í
það að útdeila við altarisgönguna, með Sigurbirni biskupi.
Hann vildi fá mig í það, líklega af því að ég var eldri en
þau hin. En einhvern veginn komst ég fram úr því. Þarna
var margt af mínu fólki, faðir minn og Egill sonur minn og
að sjálfsögðu minn gamli skólameistari, Þórarinn Þórarins-
son. Að athöfninni lokinni sagði Þórarinn:
„Nú er ég búinn að fylgja þér alla leið.“
Hann lét sig ekki vanta, gamli maðurinn.
Fjölsbyldan og starfið
Á árunum mínum í guðfræðideild kynntist ég seinni
konu minni, Steinunni Ólafsdóttur, f.27. maí 1944. Hún
er ættuð af Suðurnesjunum, úr Grindavík og Keflavík.
Steinunn átti áður dreng sem heitir Knútur Eðvarðsson, f.
2. febrúar 1970. Saman eigum við svo tvær dætur. Þær
heita: Guðfinna f. 31.janúar 1982 og Gunnhildur f. 19.
júlí 1984.
Það var ekkert að orðlengja það að 1. júlí fluttum við
norður að Bólstað. Við þurftum að viða að okkur nauð-
synjahlutum í búið áður en við fórum. Það var ýmislegt
sem vantaði, ísskápur og fleira nauðsynlegt, sem við átt-
um ekki til. Það var svol2. júlí sem ég var settur inn í
embætti af prófastinum, sr. Pétri Ingjaldssyni í Bólstaðar-
hlíðarkirkju. Það var einn af þessum eftirminnilegu dög-
um.
Fyrstu dagarnir í Bólstað í Svartárdal er ógleymanlegir.
Þarna var ég allt í einu kominn í prestskap sem ég hafði
verið settur inn í. Það var alltaf eitthvað spennandi að
gerast. Fyrsta sumarið var ég mikið einn vegna þess að
Steinunn vann hjá Félagsmálastofnun og hafði gert í
mörg ár, en hún lærði uppeldis og sálarfræði.
Fyrsta prestverkið sem ég vann þarna, var reyndar ekki
í mínu prestakalli, heldur prestakalli sr. Péturs Ingjalds-
sonar. Hann þurfti að bregða sér austur á land í sumarfrí
og bað mig að jarðsetja gamla konu í Höskuldsstaðasókn.
Það var mjög eftirminnilegt. Ég bjó mig undir þetta eins
vel og hægt var, ræddi við ættingja, en ég hafði aldrei séð
blessaða gömlu konuna. Það var skrýtin tilfinning að
328 Heima er bezt