Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.1997, Qupperneq 17

Heima er bezt - 01.09.1997, Qupperneq 17
(')7% hé »_/ ríl Tjótin eru fallegt hérað, gróður- ríkt með fiski- sælum ám og vötnum, fjór- um að tölu. Víða milli þeirra eru lágir ásar, krökkir af berjum hvert sumar. I austri, suðri og vestri er mikill og fagur fjallahringur er umlykur byggðina og hefur í faðmi sínum. Sunn- an úr hálendinu gengur fjallrani til norðurs, Barðs- hyman svonefnda og skiptir sveitinni í Austur- og Vest- ur-FIjót. Nær Fljótahreppur nú frá Stafá í vestri að Almenningsnöf í austri. Flins vegar er talið að sjálf Fljótavíkin nái frá síðarnefnda staðn- um inn að Straumnesi í Sléttuhlíð. Úr norðrinu fellur hafið að strönd- inn, sjálft íshafið, oft viðsjárvert í stórviðrum vetrar, en einnig heillandi um bjartar júnínætur þegar sól er sig- in að hafsbrún og dvelur þar um stund. Inn úr Fljótavíkinni ganga nokkrar minni víkur og er Haganes- vík helst þeirra, sem í 80 ár var aðal verslunar- og samgöngumiðstöð sveitarinnar. Það var árið 1897 sem Haganesvík öðlaðist verslunarstaðar- réttindi og litlu síðar hóf Einar B. Guðmundur Sæmundsson: Haga- nesvífe í Fljótum Kauptúnið í Haganesvík séð frá Neðra-Haganesi 1946. Húsin eru frá vinstri: Félagsheimilið Sólheimar, Grund, Vatnshorn, pakkhús Gránufélagsins, Vatnsendi, Hótel Vík og loks byggingar Samvinnufélags Fljótamanna. Barðshyrna, Brunnárdalur og fjöll fyrir botni Flókadals í baksýn. Fljótin í Skagafjarðarsýslu heita nú einu nafni Fljótahreppur, eftir sameiningu Haganes- og Holts- hrepps fyrir nokhrum árum, en árið 1897 hafði Holtshreppi verið skipt í tvo áður nefnda hreppa. Holtshreppur hinn forni náði einnig yfir Úlfsdalajarðirnar, allt til Fljótahorns fram að 1826, að sýslumörk Eyjafjarðar- og Skagafjarðarsýslna voru færð inn að Almenningsnöf. Við það lagðist Fljótahornsnafnið niður en nafnið Strákar kom í staðinn. Guðmundsson frá Hraunum, byggingu verslunarhúsa aust- anvert við Víkurbotninn. í fyrstu rak Einar verslunina fyrir eigin reikning en seldi hana síðar Gránufélaginu og var verslunarstjóri þess til 1910. Af því félagi tóku við „Hinar sameinuðu ísl. verzlanir,“ sem ráku verslun í Haganesvík til vorsins 1922. Árið 1912 var Kaupfélag Fljóta- manna stofnað. Því vegnaði illa fjár- hagslega og varð gjaldþrota nokkrum áram seinna. Aftur var stofnað kaup- félag 1919, Samvinnufélag Fljóta- manna, sem rak verslun og aðra þjónustu í Haganesvík til ársins 1978. Frá sama tíma hefur Kaupfélag Skagfirðinga rekið útibú á Ketilási í Austur-Fljótum. Heima er bezt 333

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.