Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.1998, Blaðsíða 7

Heima er bezt - 01.09.1998, Blaðsíða 7
Uppvaxtarárin Ekki urðu böm Egilsárhjóna fleiri og má kalla, að ég hafi alist upp einn, því Freyja fóstursystir mín var talsvert eldri. Við Freyja vomm bræðraböm. Hún varð síðar húsffeyja á Tyrfingsstöðum, giftist Jóhanni Eiríkssyni bónda þar. Einkabam þeirra er Kristín Friðfinna, fyrrum húsfreyja að Tyrfingsstöðum og á þá jörð, nú búsett á Sauðárkróki. Foreldrar mínir voru alin upp í fátækt en komust í sæmileg efni með tíð og tíma. Móðir mín var mikil bú- kona og ákaflega vinnusöm og verkhyggin. Hún saumaði og prjónaði en faðir minn óf voðir nærfellt hvern vetur. Þannig klæddist heimafólk mest heimafengnu og móðir mín saumaði flest nema jakkaföt. Faðir minn sagði oft, að henni væri það mest að þakka, að þau komust í efni. Ætla ég það sannmæli, þótt ekki skorti hann dugnað. Mamma var glaðlynd, félagslynd og líklega draumlynd, hafði gam- an af að lesa. Skáldsögur voru hennar eftirlæti, einkum ástarsögur. Hún las oft upphátt á kvöldin, þegar allir voru háttaðir í baðstofunni, en faðir minn hraut fram við stokk, því hann var ákaflega kvöldsvæfur. Pabbi var mikill bókamaður, hafði enga fræðslu fengið í bernsku og sakn- aði þess alla ævi. Hann notaði hverja stund sem gafst til lestrar, mest voru það fræðibækur og hetjusögur, sem hann las stundum upphátt. Skáldsögur nutu lítillar virð- ingar í hans huga og kallaði hann þær skáldsögurugl, hafði þó gaman af sumum. Gestakomur voru talsvert tíðar, jafnvel langferðafólk kom til að gista, því aldrei var seldur greiði á Egilsá. Gestum var jafnan vel fagnað með líflegu spjalli og góð- um veitingum í mat og drykk. Oft voru þetta kunningjar. Þá var líka glaumur og gleði, sagðar kátlegar sögur og mikið hlegið. Aldrei sótti föður minn svefn að kvöldi, þegar næturgestir voru, var þó árla á fótum sem áður. í bernsku og frameftir árum var ég hálfgerður hrakfallabálkur og næmur íyrir sjúkdómum, kann það að hafa valdið því ásamt öðr- um kringumstæðum, að ég var talsverður einfari. Þegar ég var frískur var ég hins vegar ijörkálfur hinn mesti og þótti ákaflega gam- an, ef krakkar af grannbæjum komu í heimsókn, en það var alltof sjaldan. Helst voru það drengirnir í Flatartungu, Þorsteinn og Oddur Einarssynir, og urðum við Oddur miklir bernskuvinir. Svo voru það börn hjónanna á Ytri-Kotum, Gunnlaugs móður- bróður míns og Friðbjargar Hall- dórsdóttur. Við vorum nánast eins og systkini. En óbrúaðar ár voru milli þessara bæja, sem torveld- uðu samgöngur. Af þessum sökum varð ég að mestu að skapa mína leiki sjálfur og lifði tíðum í hálfgerðum draumaheimi þar sem ýmislegt skrýtið gat gerst og mér fannst reyndar mjög gaman. Þannig samdi ég í huganum ýmislegar furðusögur, stundum með kóng og drottningu og trúlega prinsessu síðar, þegar hvolpavit fór að koma í strákinn. En að skrifa, það datt mér síst í hug. Reyndar fór ég eitthvað að pára, þegar sá tími kom en mest voru það sendibréf. Skólaganga (barnaskóli) var heldur lítil í þá daga, en mest var það heimanám með yfirheyrslu. Farskóli var í sveitinni og kennarinn oftast tvær til þrjár vikur á hverj- um stað í senn. Þetta var helst svona á betri bæjum, þar sem var þrifnaður og ekki mjög léleg húsakynni, þó var víðast kennt í baðstofum. Ég var í barnaskóla, en ekki voru það margar vikur. Farkennarinn var Jón Kristjáns- son, gæðamaður og góður kennari, lét okkur krakkana syngja: „Við börnin þín? ísland við elskum þig öll.“ Jón var eitthvað hjá okkur á Egilsá. Svo tók pabbi kennara, og það gerðu fleiri. Ég var látinn taka fullnaðar- próf þrettán ára, og eftir það tók pabbi kennara fleiri vet- ur, þ.e. að segja tíma úr vetri, mánuð eða svo. En heima- námið varð maður að stunda nokkuð stíft. Seinna fór ég á Laugarvatnsskóla, var þar einn vetur, þann næsta í bændadeild á Hólum. Bóndinn og skáldið Þegar í bernsku eignaðist ég áhugamál af margvislegu tagi og ætla að ræktunaráhuginn væri þar einna efst á baugi. Ein af mínum fýrstu bemskuminningum er bundin baunagarðinum mínum í íjósþekjunni heima. Þar bjó ég Heima er bezt 323

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.