Heima er bezt - 01.09.1998, Blaðsíða 25
Umsjón: Ingvar Björnsson
ÁSKRIFANDI
FIÓRÐUNGSINS
Landshluti: Norðurland
Verðlaunaáskrifandi:
Kristveig
Björnsdóttir
Valþjófstöðum 3
Núpasveit við
Öxar^örð
Verólaun:
Bókaflokkurinn
„Faðir minn..., “ 6 bindi.
Viðmœlandi minn að
þessu sinni er Kristveig
Björnsdóttir, til heimilis
að Valþjófsstöðum 3 í
Núpasveit við Öxarfjörð.
Spurningum þeim er ég
lagði fyrir Kristveigu, svo
og því er hana langaði til
að koma hér á framfœri,
svaraði hún á eftirfarandi
máta:
r
g er fædd á Kópaskeri við Ox-
arijörð 2. janúar 1927. For-
eldrar mínir voru Rannveig
Gunnarsdóttir frá Skógum í Öxar-
firði, f. 1901 og Björn Kristjánsson
frá Víkingavatni í Kelduhverfi, f.
1880, og var hún seinni kona hans.
Þau voru bæði af rótgrónum Norður-
Þingeyskum ættum og alin upp við
þær aðstæður, þar sem gestrisni og
rausn réði ríkjum, enda báðir þessir
bæir í þjóðbraut við samgöngur þess
tima.
Árið 1916 var faðir minn fenginn
til að taka við framkvæmdastjóra-
starfi við Kaupfélag Norður-Þingey-
inga, með aðsetur á Kópaskeri, en
fram að þeim tíma hafði fram-
kvæmdastjórinn búið annars staðar,
sem var til mikils óhagræðis fyrir fé-
lagsmenn, eins og samgöngum var
háttað og ekki einu sinni sími nema
á einstöku stað.
Foreldrar mínir settu því saman
heimili á þeim stað árið 1918, í ný-
lega byggðu húsi Kaupfélagsins,
stóru húsi, sem kom til með að
gegna margháttuðu hlutverki, hýsa
skrifstofúr Kaupfélagsins, síma- og
pósthús sveitarinnar, auk stórrar fjöl-
skyldu og mikils gestagangs allan
ársins hring, en þegar þarna var
komið, var aðeins ein Qölskylda fýrir
á Kópaskeri og fyrsta íbúðarhúsið
byggt 1912. Það má því rekja upphaf
þéttbýlis í þorpinu til þessara ára.
Foreldrum mínum varð sex barna
auðið, en af fyrra hjónabandi átti
hann einn son, auk þess tóku þau
þrjár telpur, 8-9 ára, til fósturs eftir
að þær höfðu misst mæður sínar, en
það gerðist ekki á sama tíma, heldur
1918, 1922 og 1935. Auk þess
dvöldu fleiri börn á heimilinu um
lengri eða skemmri tíma.
20. september 1950 giftist ég Hall-
dóri Sigurðssyni, f. 11. febrúar 1925,
á Valþjófsstöðum í sömu sveit,
Núpasveit. Er sá bær 9 kílómetrum
sunnan við Kópasker.
Foreldrar hans voru einnig af rót-
grónum N-Þingeyskum ættum, þau
voru Ingunn Árnadóttir, f. 1899, elsta
dóttir þess manns er byggði fyrsta
íbúðarhúsið á Kópaskeri, og Sigurður
Halldórsson, f. 1886, en hans fólk
hefur búið á þessum bæ frá því um
Heima er bezl 341