Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.1998, Blaðsíða 38

Heima er bezt - 01.09.1998, Blaðsíða 38
þessu. En eitt var víst. Hólmfríður Sigtryggsdóttir var komin í vist og líkaði vel. Hún virtist ætla að komast yfir ógæfima sem hún varð fyrir af hendi Sigurjóns á Læk. Sá maður hafði ekkert sést í Árdalnum, enda hafði Ásbjörn ekki haldið neina hreppsnefndarfundi meðan sláttur stóð yfir. Sumir vildu meina að Sig- urjón óttaðist að Gangna-Siggi gengi frá honum ef hann sæist í dalnum, en flestir héldu það hjóm eitt. Hvað sem öðru leið, það var komin sunnudagur, og miðsumarsmessa hjá Jóni í Árdal. Það var siður manna í sveitinni að mæta til guðsþjónustu á miðsumarsmessunni hvernig sem á stóð í verkum. Þetta þótti hinn besti siður og enginn harmaði það þó að missumarsmessuna bæri upp á góð- viðrisdag. Yfirleitt var þessi messa kærkomið upplit frá stritinu, góð til- breyting og ástæða til að hittast. Ekki þótti síður ástæða til að sækja mess- una ef góð var tíð. Ef fólk gat ekki litið upp úr stritinu til að lofa guð sinn, þá átti það ekki skilið áfram- haldandi gott veður. Það, sem gerði þessa messu frá- brugðna öðrum miðsumarsmessum, var fyrirhuguð skírn einkadótturinnar á Hóli. Fólkið í sókninni vildi gjarn- an vita hvernig barnið þroskaðist og hvaða nafn hún hlyti. Ásta og Þor- steinn virtust hafa yngst um mörg ár við það að fá þessi litlu stúlku og fólk óskaði þess að þrátt fyrir vafa- saman uppruna, myndi hún líkjast kjörforeldrum sínum sem mest. Fólk- ið í sveitinni samgladdist þeim hjón- um innilega, því að þó að mikið væri skrafað manna á millum, þá var ein- hugur fólksins einlægur ef eitthvað bjátaði á. Alltaf var næsti maður til- búinn til að hjálpa ef eitthvað var að, hvað svo sem gert var eða sagt þess á milli. Þessi einstæða og ef til vill undarlega samstaða var eflaust sterkasta afl sveitarinnar. Og ef til vill var umtalið dálítið skiljanlegt. Um eitthvað varð að tala og ekki var alltaf svo mikið að gerast á lands- mælikvarða. Þó bar það oft við að menn komust í ham ef talið barst að pólitík. Var það nokkuð skipt, flestir studdu framsóknarflokkinn, utan þeir bræður Geirmundur og Gangna- Siggi. Voru þeir raknir sjálfstæðis- menn og glöddust því mjög er stjórn Ólafs Thors tók við. Urðu þá oft snarpar umræður á milli manna, því framsóknarflokkurinn var í stjórnar- andstöðu en íhaldið stjórnaði með krötunum. Þótti bændum þeir hart leiknir. Samt var ekki svo mikil póli- tík í sveitinni. Þorsteinn á Hóli og Sigurjón á Læk voru yfirleitt dugleg- ir að vinna fyrir framsókn, en vinnan fyrir íhaldið féll á herðar Geirmund- ar. Um annað var ekki að ræða í sveitinni. Menn voru annað hvort grænir eða bláir, annað var ekki til. En þennan sunnudag var enginn að hugsa um pólitík fremur en heyskap. í Árdal var mikið um að vera. Sigríð- ur prestmaddama hafði krafist þess að fá að halda skírnarveislu fyrir hjónin á Hóli. Sjálf hafði hún séð stúlkubarnið og langaði til að eiga að einhverju leyti þátt í tilkomu þess. Dóttur hafði hún sjálf ekki eignast, en óskaði þess í bænum sínum að brátt yrði hún amma. Það hlaut bara að vera að Páll og Sigurveig færu að gifta sig og færa henni í heiminn kærkomin ömmubörn. Ásta á Hóli hafði sjálf viljað halda skímarveislu fyrir dóttur sína en að lokum hafði Sigríður talið hana á sitt band. - Þú átt að hugsa urn barnið, elsk- an mín, sagði hún. Ekki standa í kökubakstri og trakteringum. Mig langar að gera þetta, ég vil ekki missa af því að hafa messukaffi á miðsumarsmessunni. Það endaði því með því að þær gerðu þetta í sameiningu og það var mikið bakað á bæjunum þeim. Svo ótrúlega vildi til að allir á bæj- unum sem tilheyrðu Árdalssókn, gátu mætt í miðsumarsmessuna. Gangna- Siggi mætti með sína fjölskyldu alla og þótti mörgum það hinn fríðasti hópur. Ungir sem aldnir komu til messu þennan dag og mikið stóð til. Fólkið safnaðist saman fyrir utan kirkjuna, búið í sitt fínasta púss. Heiða á Hóli stóð hjá frænku sinni og gjóaði augunum í kringum sig. Hún hafði vonast til að hitta Árna við messuna, en hann var hvergi sjáan- legur enn. Þó var heimafólkið komið út og presthjónin búin að heilsa öll- um kirkjugestum. Þegar gengið var til kirkju sá Heiða hvar Ámi kom, en það var enginn tími til að heilsast. Séra Jón var genginn til kirkju með söfnuðinn á hæla sér. Það var falleg athöfn í kirkjunni í Árdal þennan dag. Sólin skein inn um gluggana. Séra Jón var í essinu sínu og mæltist vel. Hann lagði út frá mannkærleika og samhug öllum til handa. Einnig lofaði hann drottinn fyrir gott sumar og bað fyrir söfnuði sínum. Þá var komið að skíminni. Litla stúlkan var klædd í fallega kjól- inn sem Sigríður hafði fært henni. Hún svaf róleg í fangi móður sinnar, sem hafði pela innan seilingar. Hún vildi ekki að litla prinsessan færi að öskra mikið í kirkjunni. Björn, faðir Ástu, hélt á stúlkunni undir skírn, en hinn afinn og amman, tóku að sér hlutverk guðmóður og föður. Barnið var skírt Sóley. Sú stutta var róleg á meðan séra Jón jós hana vatni og tók hana í söfnuð Jesú Krists. Að lokum bauð séra Jón öllum til kaffidrykkju í húsi sínu og gat þess að Sigríður og Ásta væru í sameiningu að bjóða til veislunnar. Athöfninni var lokið og allir voru glaðir. Sóley var nafn sem virtist sóma sér vel á litla stúlkubarninu. Hún hafði jú sprottið óvænt upp í sveitinni þeirra þetta sumarið, og var kærkomið blóm í garðinum þeirra. Það var ekki lítið rausnarlegt kaffi- borðið í Árdal. Rjómatertur og hnall- þórur ýmiskonar virtust óendanlega margar. En sveitungarnir neyttu veit- inganna óspart. Ýmsir gaukuðu líka aur eða einhverju öðru að litlu stúlkunni á Hóli og hún var mun rík- ari eftir daginn en áður. Bændurnir komu sér allir fyrir inni í betri stofunni og ræddu landsins gagn og nauðsynjar. Séra Jón gaf mannskapnum í nefið og gömlu mennirnir tóku vel í það. Þeir ræddu 354 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.