Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.1998, Blaðsíða 20

Heima er bezt - 01.09.1998, Blaðsíða 20
Guðmundur Sæmundsson: Flugvélin nálgast Fœreyj- ar. Framundan er eyjan Koltur, en fjœr sér til Vogeyjar, þar sem flug- völlurinn er. Færeyjaflugsins r Fyrstu flugferðir milli Islands og Færeyja eru bundnar sjófluginu á þriðja ogfjórða áratugunum, þegar ofyrhugar þeirra tíma voru að kanna flugleiðina yfir Norður-Atlantshafið, ýmistfrá austri eða vestri. Margir af eldri kyn- slóðinni, muna enn þessar flug- hetjur, er þeir renndu far- kostum sínum til lendingar á Reykjavíkurhöfn: Locatelli 1924, von Grauno 1929, Cramer, Lindbergh, Griemson, dr. R. Light, Thor Solberg, danska liðsforingjanum Rasmussen á „Dantorp 201.“ Allir áttu þessir menn það sameig- inlegt að hafa viðkomu á Islandi og í Færeyjum. Á heimsstyrjaldarárunum síðari gerðu Bretar flugvöll á Vogey, einni Færeyja og mun herflugvélum Bandamanna þá hafa verið flogið milli landanna, þó að tölur þar að lútandi liggi ekki fyrir. Laust eftir styrjöldina var stofnað flugfélag í Færeyjum, „Föroya Flog- felag,“ til þess að halda uppi ferðum á milli Vogeyjar, Skotlands og Dan- merkur. Helstu hvatamenn að stofnun þess voru Nicalsen-bræðurnir í Þórshöfn og C. Moritzen. Leigði félagið þá þegar DC-3 flugvél af skosku flugfé- lagi, sem hóf ferðir í júlí 1946. Einnig var keypt af Bretum, lítil flugvél af Walrush gerð, „Erla kóngsdóttir,“ (Maríuerla), en hennar naut skamma hríð. Þessar ferðir lögðust fljótt niður og fyrirætlanir félagsins fóru út um þúf- ur. Næstu árin voru flugferðir milli Færeyja og annarra landa mjög fátíð- ar, þótt flugvöllur væri á Vogey. Fyrstu íslensku flugvélarnar sem fluttu farþega milli íslands og Fær- eyja voru Catalínaflugbátar frá Flug- félagi Islands, sem leigðir voru til hópferða með íþróttafólk eða sjó- menn og lentu þeir í hafnarmynninu á Þórshöfn. Fyrstu ferðina af þessu tagi fór Anton G. Axelsson á Skýfaxa TF- ISK, í júlímánuði 1949, með 20 manna íþrótta- hóp frá ísafirði. Var flog- ið frá Reykjavík til ísa- Qarðar að morgni 3. júlí og haldið þaðan við- stöðulaust austur á Reyð- arljörð, þar sem elds- neyti var bætt á vélina, því það var ekki fáanlegt í Færeyjum. „Það var tekið frábær- lega vel á móti okkur í Þórshöfn, rétt eins og flughetjunum í gamla daga,“ sagði Anton flugstjóri greinarhöf- undi, þegar hann var inntur eftir ferðalaginu. „Ég hafði í hyggju að lenda á Sör- vogsvatni á Vógey, væri eitthvað að veðri í Þórshöfn, því vitað var að Bretarnir höfðu haft þar bækistöð fyrir flugbáta sína á stríðsárunum. En í Þórshöfn reyndust öll skilyrði hin ákjósanlegustu og þar lentum við kl. 17.30, eftir rúmlega tveggja og hálfrar stundar flug frá Reyðarfirði. Fljótlega dreif að fjölda smábáta og mikill mannfjöldi var saman kom- inn á hafnarbakkanum, en Skýfaxi var fyrsta flugvélin sem lenti í Þórs- höfn eftir styrjöldina. 336 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.