Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.1998, Blaðsíða 28

Heima er bezt - 01.09.1998, Blaðsíða 28
Öll fjölskyldan saman komin við brúðkaup yngsta sonarins, árið 1992. Fimm litlar telpuhnyðrur ófæddar. ánægju. Saman höfum við og farið í nokkrar utanlandsferðir á seinni árum. 1991 fór ég með íslenskum organistum í þriggja vikna ferð til Parísar, Rómar og Capri, og voru það ógleymanlegir dagar, og líklega var hápunkturinn þegar við stóðum öll uppi á sviði og sungum þjóðsöng- inn okkar fyrir páfann og fullan, stóran sal af áheyrendum. Hér á Valþjófsstöðum hef ég nú dvalið í 47 ár og unað mér vel. Lífið hefur í rauninni farið um okkur mjúkum höndum, þó að mikið hafi verið unnið og ekki sé hægt að segja að það hafi allt verið auðvelt fyrr á árum, meðan þægindi voru minni. Ég get t.d. sagt með sanni, að ég upplifði það aldrei á mínum barnaár- um að setja bleyju í sjálfvirka þvottavél (hvað þá nota pappírsbleyj- ur), en daglegt hlutverk var að sjóða þær í potti á eldavélinni, en á þessum tíma var aðalþvotturinn aðeins þveg- inn hálfsmánaðarlega. Mjólkurverkin reyndust einnig ansi drjúg, skyr- og mysuostgerð, svo og smjörgerð og fylgdi þessu mikill íláta- þvottur, en auðvitað var þetta einungis það sem allir bjuggu við á þessum tíma. Ég skil þó varla enn í dag hvemig maður komst í gegnum þetta, ásamt með því að sauma og pijóna allflest á bömin og margt fleira. Hér er „hátt til lofts og vítt til veggja,“ bæjarhús og heimatún standa á sléttlendi með lyngi vöxnum móum á þrjá vegu. Þar ofan við rís svo Valþjófsstaðafjallið í suðaustri, en í norðvestri blasir strandlengjan við, allt norður að Snartarstaðanúpi. Að sunnan tak- markast svo Núpasveit af Öxarnúpi, sem er nokkuð uppi í landinu, skammt ofan við vatnasvæði Jök- ulsár á Fjöllum. Það er því mjög stutt héðan í náttúruperlumar Ásbyrgi og aðra undurfagra staði í nálægð árinn- % ar. Malargryfjan, sem Kristbjörg hóf að rækta upp rétt ofan við vegamótin heim að Valþjófsstöðum. Undan Valþjófsstaðafjalli kemur samnefnd á, þaðan fáum við frábært vatn, rennandi beint inn í krana, en mestu hlunnindin teljast þó raflýs- ingin, en rafstöð var byggð hér þegar árið 1930, og hefur hún síðan tvisvar verið endurbyggð og stækkuð og veitir nú ljósi og yl í fjögur hús. Ég er forsjóninni þakklát fyrir það, hve hún hefur farið mjúkum höndum um mig og mína. Ég ólst upp við ást og umhyggju, en einnig það að fá að taka þátt í daglegum störfum og læra að bera ábyrgð, sem ég tel ómissandi hverju barni. Ég fékk að mennta mig, var einn vetur á Laugarvatni og síðan tvo í Samvinnuskólanum o.fl. skólum. Hefði þó kosið að kunna meira fyrir mér i tungumálum. Seinna giftist ég góðum manni og er þakklát fyrir að vera staðsett í svo nánu sambandi við náttúruna. Ég held að ég hefði ekki unað mér betur í þéttbýli, það er svo gefandi að starfa rneð landinu en um leið að njóta frelsis og næðis, það er ómet- anlegt. Við höfum eignast góð böm, sem alltaf sýna okkur umhyggju, og nú eru barnabörnin orðin 21, allt frískir og duglegir krakkar. Við höfum allt til alls (en erum ekki gefin fyrir lúxus) og hvers getur maður þá meira krafist meðan heils- an er góð? 344 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.