Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.1998, Blaðsíða 21

Heima er bezt - 01.09.1998, Blaðsíða 21
í Þórshöfn var öllum hópnum boð- ið til veislu af Kjartani Mohn bæjar- stjóra, Zacharíasi Niclasen forstjóra Skipafélagsins og fleiri ráðamönnum í höfuðstaðnum. Við það tækifæri flutti færeyska skáldið Hans A. Djurhuus, ljóð. Er ekki að orðlengja það, að mót- tökurnar, sem við fengum í Þórshöfn þetta júlíkvöld, fyrir nærri hálfri öld, eru mér ógleymanlegar og sömu sögu höfðu ísfirsku íþróttamennirnir einnig að segja, þegar við sóttum þá, hálfum mánuði síðar. í fyrri ferðinni stönsuðum við í rúmar átta klukkustundir og flugum af stað heimleiðis klukkan tvö eftir miðnætti. Lent var á Reykjavíkur- flugvelli að morgni 4. júlí, eftir um fjögurra stunda flug frá Færeyjum.“ Auk Antons flugstjóra voru eftir- taldir flugliðar í áhöfn Skýfaxa: Garðar Gíslason flugmaður, Jó- hann Gíslason loftskeytamaður og Gunnar Loftsson vélamaður. I seinni ferðinni, sem farin var f7. júlí á öðrum Catalínaflugbáti Flugfé- lagsins, Sólfaxa TF-ISJ, varð sú breyting í áhöfn vélarinnar, að As- geir Samúelsson kom í stað Gunnars Loftssonar. í það sinn var flugtíminn á leiðinni Reykjavík-Þórshöfn- Reykjavík, 8 klukkustundir og 5 mínútur. Eftir að íslenskt millilandaflug varð að veruleika, kom stundum til tals hjá flugmálayfirvöldum hér, að kanna möguleika á flugsamgöngum við Færeyjar og var þá flugvöllurinn á Vogey hafður sérstaklega í huga. Þetta þótti eðlilegt, þar sem Færey- ingar eru okkar nánustu frændur meðal erlendra þjóða og land þeirra í þjóðbraut milli Islands og annarra Evrópulanda, án allra flugsam- gangna annarra en þeirra sem áður er getið. í maímánuði 1954 fór Catalina- flugbáturinn Skýfaxi öðru sinni til Færeyja er Aðalbjörn Kristbjarnar- son flaug þangað tvær ferðir með 22 færeyska sjómenn, sem verið öfðu skipverjar á Austljarðatogurum þá um veturinn. Fyrsta íslenska flugvélin, sem lenti í Fœreyjum, var Catalina-flugbáturinn Skýfaxi, TF-ISK, en það var 3. júlí 1949. Fyrri ferðin var farin frá Reyðar- firði 9. maí og hin síðari frá Egils- stöðum daginn eftir. Lent var í Þórs- höfn í bæði skiptin. Upphaflega var ráðgert að fljúga samdægurs með seinni hópinn, en vegna hvassviðris í Færeyjum var beðið næturlangt á Egilsstöðum. Gekk sú ferð einnig vel þrátt fyrir slæmt veðurlag og mikinn mótvind, að sögn Aðalbjörns, en flugið ffá Austijörðum til Þórshafnar tók að þessu sinni á fimmtu klukkustund. Síðar, þetta sama sumar, fór Sig- urður Jónsson (Siggi flug), þáver- andi forstöðumaður Loftferðaeffir- um. Anton G. Axelsson var fyrsti ís- lenski flugstjórinn sem renndi far- kosti sínum til lendingar í Fœreyj- Eldsneytistaka á Reyðarfirði Jyrir fyrsta íslenska Fœreyjajlugið, 3. júlí 1949. litsins hér, með skipi til Færeyja og dvaldi þar nokkurn tíma,m.a. til þess að skoða flugvöllinn á Vogey og ræða við framámenn í færeyskum samgöngumálum. Eftir heimkomuna samdi Sigurður skýrslu um ferðina, þar sem hann taldi ásigkomulag vallarins svipað og sumra annarra flugvalla er ís- lenskir flugmenn yrðu að sætta sig við að nota, bæði á íslandi og Græn- landi, á þessum árum. I framhaldi af þessu fór hann aðra Heima er bezt 337

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.