Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.1998, Side 16

Heima er bezt - 01.09.1998, Side 16
lega og þvegnar sem best mátti verða. Hnýtt var að báðum endum og gerð flétta úr görn- unum. Var fléttað frá miðju til beggja enda. Hleypt var að gömunum í potti, síðan pikkaðar og svo fullsoðnar. Þær voru settar í drukk eða súr. Laki var stundum þveginn blað fyrir blað en oftast var honum fleygt. Keppur var skorinn frá maga og hvort tveggja síðan hreinsað, gori hleypt út, snúið við og þvegið. Nýru voru sett upp á mjó- an trétein í suðu. Lungu voru hirt til matar, ef þau voru heilbrigð, bundin við skinn í suðu, sett í súrt. Mör og kjöt settu menn í gollurshús og saumuðu fyrir. Það var gefið börnum. Talað var um, að kind gerði í blóð sitt, ef mör var nægur til blóð- mörsgerðar. Þetta var haft eftir karli um veturgamlan sauðgelding, sem hann hafði fargað: „Bíldóttur aftan en botnóttur framan. Braut af sér lamb- ið, þegar hann var horn. Strengdur en þó nokkuð kviðaður. Voru í honum tólf merkur, en fjand- inn sem hálfur fjórðungur það var.“ Saumað var fyrir sláturiður með blóðmörsþræði úr þeli. Hann var ekki eins hár og úr togi. Lifrarpylsa var gerð úr lifur. Lifrin var vanalega barin með flösku. Mjólk var höfð í lifrarpylsu. Magáll var salt- aður, aðeins látinn þorna, síðan reyktur. Önnur verkunar- aðferð var að sjóða magálinn, sauma utan um hann og láta hann svo vindþoma í hjalli. Þriðja verkunaraðferð var að sjóða roskna magála, fella þá í dall og bræða yfir þá tólg. Þeir voru geymdir til sumardagsins fyrsta. Brisi var fleygt. Pungar voru rakaðir, saumað fyrir þá, soðnir, síðan settir í súr. Pungar voru líka reyktir og pressaðir. Mör var hnoðaður eins og smjör í trogi, kistu eða skrínu. Þetta var gert í úti- húsi á kvöldin og hamast að því. Mörtöflur voru gerðar úr mörnum og var hægt að geyma þær svo lengi sem verkast vildi. Skákross var markaður á hverja töflu að ofan, horna á milli. Menn voru á skyrtunni við að hnoða mör, þvoðu sér vel um hendur, brettu upp fyrir olnboga. Kæfa var soðin í potti og látin storkna í pott- inum. Saumað var utan um kæfuskjöld eða hann geymdur í- skinnbjór. Kæfa var líka soðin í potti, bein tínd úr, stöppuð, síðan felld í stóra dalla og feiti rennt yfir. Krof tekið sundur til reykingar: Fimm rif voru talin frá, hvoru megin. Þar var skorið sundur og hryggur limaður sundur. Bógar voru limaður frá framhlut- anum, sem þá nefndist skammrif. Sárin eftir bógana voru vandlega spýtt saman, en áður var salt sett út undir holdfyll- una. Rauf var skorin í hálsvöðva á skammrifinu og band sett í (hanki). Afturhlutinn hét krof. Það var flatt út með því að rif voru Iömuð meðfram hryggn- um. Raufar voru skornar í hæklana á krofinu. Skorið var upp í lærin og salt sett í. Bægimir (svo) voru lagðir í krofið, sitt hvorum megin við hrygginn. Skammrif þar ofan á og háls látinn horfa fram. Þegar kjötið hafði legið hæfilega lengi í salti, var það hengt upp í reyk. Krofin héngu uppi á kroftrjám. Kroftré var svolítið bogamyndað um miðju, svo það yrði stöðugra á eldhúsbita með haki á endum. Því var smeygt (stungið) gegnum raufina á öðr- um hæklinum, brugðið svo yfir bitann og hinum endan- um smeygt í gegnum raufina á hinum hæklinum.Það var siður hjá mörgum bændum að fá sér snafs, ef þeir áttu hann til, þegar þeir hengdu upp kjötið. Gamalt reykhús í Innri-Miðhlíð á Barðaströnd. Kroftré. Eitt af verkunum í sláturtíð var að svíða lappir. Hér eru Arni Björnsson og Sigurborg Hilmarsdóttir við þá iðju. 332 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.