Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.1998, Blaðsíða 24

Heima er bezt - 01.09.1998, Blaðsíða 24
maður bauð áhöfn og farþega vel- komin til hátíðarinnar og stóð heim- ili hans, ásamt öðrum færeyskum heimilum á Vogey, opið fyrir ís- lensku gestunum, meðan á dvölinni stóð. Daginn eftir kom Per Mohr Dam lögmaður til Vogeyjar í tilefni af komu Gljáfaxa og einnig menn frá helstu fjölmiðlum í Færeyjum, blöð- um og útvarpi. Þannig gafst íbúum allra eyjanna kostur á að fylgjast með þessum at- burði, því útvarp Færeyja hafði við- töl við þá Jóhannes og Jóhann, sem áður eru nefndir og lýsingu af flug- ferð með vélinni yfir eyjunum. Mikil biðröð mynd- aðist eftir því að skoða flugvélina, jafnt hjá ungum sem gömlum, 7. og 8. júlí 1962. skipti, en það var ffá nýju sjónarhomi, sem þeir höfðu ekki séð áður. Ekkert lát varð á aðsókninni og Veðrasamt er stundum á Vogey og var þessi mynd tekin eftir stormhrinu, sem gekk þaryfir og fauk þá gamli af- greiðsluskúrinn við flugbrautina. Lengra frá sjást leijar af bresku flug- skýli, en árið 1962 mátti ennþá sjáýmis ummerki eftir hersetu Breta á þessum slóðum, braggatóftir og múrsteinsbyrgi. I tilefni affyrsta Vogeyjarfluginu var farið i eitt útsýnisjlug með heima- menn, yfir eyjarnar. Hér sést yfir Þórshöfn við það tœkifœri. Á tveim næstu dögum fór Gljáfaxi í mörg útsýnisflug yfir eyjarnar og er taliö að yfir 300 heimamanna hafi þá séð landið sitt úr lofti í fyrsta Bílarnir biða þess að flytjaferða- hópinn til Sörvogs, þar sem veitingar biðu á gestrisnu heimili Larsens fjöl- skyldunnar. komust færri með en vildu, að sögn fær- eyskra fjölmiðla, en far- gjaldið i hringflugið kostaði 46 krónur danskar. Til dæmis gekk sú saga að maður nokkur, sem stofnaði til einkahappdrættis í kunningjahópi sínum, um flugfarmiöa, hafi grætt vel á uppátækinu. Framhald í nœsta blaði 340 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.