Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.1998, Qupperneq 27

Heima er bezt - 01.09.1998, Qupperneq 27
skiptist á skoðunum, fræðist hvert af öðru og skoðar söfn. Hafa þetta verið gefandi og áhugaverðir fundir. Félagsstörfin hafa nú oft á tíðum hlaðið utan á sig. Ég hef starfað í kvenfélaginu Stjörnunni siðan 1955 og verið í stjórn þess býsna mörg ár, sömuleiðis í Kvenfélagasambandi og Kirkjukórasambandi N-Þingeyinga. Einnig hefur Skógræktarfélagið ver- ið í myndinni, en frá því að það var stofnað um 1950, höfum við hjónin lagt því lið og gerum enn. Þegar félag aldraðra við Öxaríjörð var stofnað 1993, var ég kosin í stjórn og sat í fjögur ár, en nú er ég búin að segja mig frá því, svo og ýmsum öðrum stjórnunarstörfum. Fleira gæti ég nefnt, sem ég hef komið að, en læt þetta nægja. Verð þó að geta þess að ég hef aldrei sóst eftir embættum og tel mig heldur engan veginn vel til forystu fallna, þó ég á hinn bóginn hafi áhuga fyrir að hvert það félag, sem maður er þátttakandi í, staðni ekki, heldur sé lifandi. Áhugamál á ég mörg, líklega of mörg, það er viss hætta á að kraftarn- ir dreifist of mikið. Hvers konar handverk hefur verið mér áhugamál Valþjófsstaðir III, 1997. Elsta byggðin á Kópaskeri 1941, œskuheimili Kristbjargar jyrir miðju, Útskálahúsið, byggt af föður hennar árið 1934. Önnur þessara kúvendinga í lífi mínu utan heimilis, hófst 1989, er við vorum þrjú í sveitinni fengin til að taka upp úr kössum ýmsa safn- gripi, sem geymdir höfðu verið í ára- tugi, með væntanlegt bygðasafn í huga, þeir fyrstu frá 1959, eða í 30 ár. Þetta starf hlóð utan á sig og er frá leið féllu félagar mínir úr skaftinu en ég ílentist í þessu hreinsunarstarfi og brátt kom að því að reyna að koma hlutunum fyrir í gamla skóla- húsinu okkar. Þá fékk ég móðurbróð- ur minn í lið með mér við að skrá og merkja upp á nýtt og koma fyrir öllu, sem borist hafði og ýmsu sem smám saman bættist við og er þetta í raun starf sem aldrei tekur enda. Safnið var svo formlega opnað 28. júlí 1991, og hef ég séð um það að miklu leyti síðan, svo að nú segi ég í gamni, að ég sé orðin þarna forn- gripur, en í alvöru fer að líða að því að aðrir taki við. í gegnum þetta starf hef ég aftur kynnst ágætum hópi fólks, víða að af landinu, með því að það er orðinn fastur liður safnafólks að hittast ár- lega í mismunandi landshlutum, að afloknum sumarönnum, þar sem það ber saman bækur sínar í þrjá daga, allt frá barnsárum og í dag er ég þakklát fýrir þá verkmenningu sem maður ólst upp við í heimahúsum og hefur búið að alla tíð síðan. Bókhneigð hef ég alltaf verið en sjaldan látið það eftir mér að liggja yfir þeim, tek þó ævinlega bók áður en ég sofna og nú seinni árin stend ég mig að því að sækja í gamlar sagnir, ævisögur eða þjóðlegan fróðleik, hvers konar. Ræktunarmál og verndun lands hafa ætíð verið mér hug- leikin viðfangsefni og ekki síður þótt hér verði líklega að teljast fremur erfið skilyrði fyrir tijágróður vegna vorkulda og hinnar óvægnu norðanáttar, beint af hafi (bærinn stendur u.þ.b. 500 metrum ofan við ströndina). En ekki blæs alltaf að norðan og það er fagnaðarefni hvert vor að fara að fást við gróður og eng- in leið að láta staðar numið í þeim efnum. Ég hef fengist töluvert við að rækta lúpínu á gróðursnauðum svæð- um, en um þá jurt hefur ýmislegt verið sagt og skiptist þar í tvö horn. En mitt álit er að hún eigi fyllilega rétt á sér, þar sem maður getur haldið utan um hana og óumdeilanlega bæt- ir hún jarðveg mjög. Alla tíð hef ég haft mikið yndi af tónlist og söng, bæði sem þátttakandi og hlustandi og ekki er mögulegt að hugsa sér líf án þeirra þátta. Ég hef verið svo lánsöm að fá tækifæri til að syngja með í kórum um lengri eða skemmri tíma, undir stjórn frábærra sjórnenda. Gjarnan hefði ég getað hugsað mér að hafa haft fleiri tækifæri til að ferðast um landið í gegnum árin, en það vita þeir, sem fást við búskap, að það er ýmislegt sem bindur mann heima og því fastar sem tíðarfarið er betra að sumrinu, en út af þessu hef- ur þó brugðið og við farið í nokkurra daga ferðir, okkur til mikillar Heima er bezt 343

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.